SSFblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 9
NÝTT MERKI
Ný ásýnd fyrir nýja tíma
SAMTÖK
STARFSMANNA
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA
Á þingi SÍB 2007 var samþykkt að færa nafn félagsins til nútímlegra horfs. Nýja nafnið,
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja, endurspeglar aukna fjölbreytni á fjármála-
markaðnum og minna vægi landamæra. Við stöndum vörð um hagsmuni allra starfsmanna
margskonar fjármálafyrirtækja sem teygja anga sína um allan heim. Skammstöfun nafnsins,
SSF, verður heiti þess í daglegu tali.
Leiðarljós og kjarnagildi SSF eru traust, þekking og metnaður. Við einsetjum okkur að vera
traustsins verð hjá félögum okkar, safna og miðla þekkingu á heimi fjármála og vinnu-
markaðnum almennt, og höfum metnað til að efla fólagið til framtíðar.
Nýtt merki félagsins endurspeglar kjarnagildi okkar. Pað byggir á einu grunnformi, hringnum,
sem táknar samvinnu og stöðugleika, en jafnramt sveigjanleika, skilvirkni og hreyfingu.
í merkinu myndar fjórðungur hrings alla hluta skammstöfunarinnar og úr verður auðþekkjanlegt
tákn fyrir SSF, í senn nútímalegt og sígilt. Merkið, sem er hannað af Magnúsi Arasyni hjá
auglýsingastofunni Jónsson & Le’Macks, verður innleitt á kynningarefni okkar á næstu
mánuðum.
9