SSFblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 16
NÁM
Nám með vinnu
Inga Dóra Konráðsdóttir vinnur í Kaup-
þingi í Garðabæ þar sem hún hefur
umsjón með skjalagerð, þinglýsingum,
skráningum ýmiskonar, vanskilum og
fleiru sem því fylgir. Inga Dóra er Norð-
lendingur, alin upp í Vatnsdalnum, bjó á
Akureyri en flutti til Reykjavíkur árið 2000.
„Ég hafði verið að gutla í kvöldnámi um
nokkurra ára skeið og lært m.a. rekstrar-
hagfræði, þjóðhagfræði, stærðfræði og
bókfærslu en mér fannst mig vanta meiri
menntun,“ segir Inga Dóra. „Ég skoðaði það
nám sem í boði var og leist vel á hagnýtt
viðskipta- og fjármálagreinanám í MK. Það er
sérsniðið að þörfum fjármálafyrirtækja og
ætlað fólki sem ekki hefur háskólamenntun."
Inga Dóra segir námið hafa nýst sér vel í
vinnu en einnig eflt sjálfstraust hennar. „Þó
ég hafi kunnað sumt af því sem kennt var og
verið að vinna á tölvur um margra ára skeið,
var svo margt sem ég lærði nýtt. Gerð heima-
síðna, hvernig nota á Excel til fulls, hvaða
möguleika Word hefur og að gera Þower
Point show vel úr garði. Ég gat auðvitað
unnið með þessi forrit áður en með þessu
lærði ég ansi margt nýtt sem kemur sér vel
í vinnu og gerir mig að hæfari starfsmanni."
Fyrir mitt leyti finnst mér standa upp úr;
enskan, lögfræðin, fjármálamarkaðurinn og
tölvukennslan.
Kennslan er sniðin að þörfum fólks sem
vinnur í fjármálageiranum. Þannig er ekkí
kennt fyrstu vikuna í mánuðinum og ekki
þann 15. hvers mánaðar þegar álagið er hvað
mest.
„Það er heilmikið aukaálag að vera í skóla eftir
fullan vinnudag og ég er ekki viss um að ég
hefði getað þetta með lítil börn,“ segir Inga
Dóra. „Ég sá hvað þær sem voru með lítil
börn fundu miklu meira fyrir álaginu en við
hinar. En hópurinn sem ég var í er gríðarlega
skemmtilegur og við hittumst ennþá
reglulega."
Það er ekki alveg ókeypis að stunda nám og
Inga Dóra segir það hafa hjálpað sér mikið að
SÍB og bankinn greiddu námskeiðsgjaldið að
fullu.“ „Bankinn setti það sem skilyrði að ég
væri áfram í tvö ár eftir námið en það er alveg
eðlilegt og mér Ijúft að uppfylla - enda ekki á
leiðinni eitt eða neitt“, bætir hún við.
Kristín Jóhanna Helgadóttir tilheyrir
þjónustuhópi í Viðskiptaumsjón hjá
Kaupþingi. Starf hennar felst í skráningar-
vinnu, daglegri yfirferð og afstemmingu,
leiðbeiningum og ráðgjöf vegna bein-
greiðslukerfis. Auk þess svarar hún fyrir-
spurnum sýslumanna og lögfræðinga
vegna þrotabúa, dánarbúa og fjárræðis-
sviftinga.
Námið
„Eftir langt hlé frá skólasetu byrjaði ég í
Hagnýtu viðskipta- og flármálagreinanámi í
Menntaskólanum í Kópavogi í janúar 2003“,
segir Kristín. „Ég var með 18 ára gamalt
stúdentspróf og treysti mér ekki til þess að
fara beint í háskólanám. Ég hafði um nokkurt
skeið verið að leita að einhverju hagnýtu námi
sem gæti nýst mér í starfi og brúað bilið yfir í
frekara nám og greip því fegins hendi
tækifærði sem námið í MK bauð. Það var 2ja
ára ngm sem ég lauk í desember 2004. Eftir
það tók ég hálfs árs frí. Haustið 2005 byrjaði
ég í diplómanámi í Háskólanum í Reykjavík,
með áherslu á fjármál og rekstur."
Diplomanámið er 45 eininga nám, þ.e. hálft
Bs nám. Kristín valdi diplómanám því hún vildi
hafa það val að geta lokið námi eftir 45
einingar eða haldið áfram og klárað Bs, þar
sem diplómanám í HR er metið að fullu inn í
Bs námið. í diplóma í fjármálum og rekstri er,
eins og nafnið bendir til, lögð áhersla á
stærðfræði, hagfræði og fjármál fyrirtækja,
sem henni þóttu mjög áhugaverðar greinar.
Námið er 5 annir, tvær haustannir, tvær vor-
annir og ein sumarönn, miðað við fullt nám.
HMV, háskóli með vinnu, er skipulagður með
þarfir vinnandi fólks í huga og er því kennt
seinni part dags frá kl. 16:20 fram til kl. 19.
Hvert fag er kennt einu sinni í viku á haust-
og vorönn en á sumarönn er hvert fag kennt í
4 vikna lotu. Námið er skipulagt miðað við
þrjú fög á önn. Þeir sem eru í fullu námi
sækja því skólann þrjá daga í viku. Því til
viðbótar er heimanám og verkefnavinna, sem
oft krefst mikils tíma.
Heimili og skóli
Kristín segir að sér hafi gengið nokkuð vel að
sinna náminu með vinnunni. „Ég hef mætt
miklum skilningi hjá samstarfsfélögum mfnum
og yfirmönnum varðandi vinnutíma og hef
getað mætt í skólann alla daga. Ég hef heldur
aldrei orðið vör við ósætti, þó oft væri mikið
álag í vinnunni. Mínar persónulegu aðstæður
eru þannig að ég hef getað látið námið ganga
fyrir. Ég byrjaði í fullu námi og var í þremur
fögum fyrstu tvær annirnar. Eftir það hægði
ég ferðina, því mér fannst álagið vera of mikið.
Ég vil geta notið þess að vera í náminu og
haft gaman af, segir hún. „Of mikið álag
veldur mér streitu og spillir ánægjunni. Nú á
þessari önn er ég aðeins í einu fagi og finnst
það frábært. Eftir þessa önn á ég tvö fög eftir
og eru þau kennd hvort á sinni önninni,
vorönn og sumarönn. Ég mun því, ef allt
gengur vel, klára námið næsta sumar og
útskrifast um áramótin þar á eftir. Hins vegar
eru margir samnemendur mínir í fullu námi
með fullri vinnu, eiga stórar fjölskyldur og lítil
börn. Ég dáist að dugnaðinum í því fólki.
Margir hafa þó minnkað við sig vinnu og
einbeita sér að náminu. Sumir eru að sækja
tíma bæði með dagskóla- og HMV-
nemendum. Ég get ekki neitað því að ég hef
oft fundið fyrir álagi og verið mjög þreytt, en
uppgjöf hefur aldrei verið inni í myndinni.
Stjórnendur skólans styðja mjög vel við alla
nemendur sína, með ýmsum aðferðum. Þeir
koma til móts við þarfir og óskir nemenda án
þess þó að slaka á námskröfunum."
Árangurinn
„Ég vildi bæta við mig þekkingu og efla mig,
bæði persónulega og gagnvart vinnu“, bætir
Kristín við. „Ég trúi því líka að launakjörin batni
og möguleikar í starfi aukist með aukinni
16