SSFblaðið - 01.12.2007, Síða 17
NÁM
menntun. Mér fannst orðið tímabært að gera
eitthvað gagnlegt og skemmtilegt fyrir sjálfa
mig og því valdi ég þessa leið. Ég er mjög
ánægð með útkomuna og hef fengið margt
fleira út úr náminu en bókvitið. Ég hef kynnst
mörgum frábærum persónum, bæði kenn-
urum og nemendum, og bundist sumum
vinarböndum. Sjálfsmynd mín er skýrari og
kjarkurinn er meiri. Eftir námið hef ég meiri
áhuga og skilning á því sem gerist í vinnunni
og þjóðlífinu."
Persónan
Kristín segist fædd og uppalin á stór-
Reykjavi'kursvæðinu. Hún er 51 árs og
tveggja barna móðir. “Dóttir mín heitir
Jóhanna Bettý og er 23 ára nemi í bygginga-
tæknifræði í Háskólanum í Reykjavi1<. Sonur
minn heitir Helgi og 18 ára nemi á upplýsinga-
og tæknibraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Við búum í Reykjavík. Ég var aðeinsl 6 ára
þegar ég byrjaði að vinna sem sumarstarfs-
maður hjá Búnaðarbanka íslands. Síðan eru
liðin ansi mörg ár og ég er enn í sama starfs-
umhverfi. Það hefur að vísu breyst mikið, sér-
staklega nú á síðustu árum.“
Hvað varðar áhugamál segist Kristín hafa
mikla ánægju af því að ferðast, bæði innan-
lands og utan. “Ég er að fara í jólaferð til
Rudesheim í Þýskalandi að loknu prófi í
desember og hlakka mikið til. Ég vil gjarnan
ferðast meira en ég hef gert undanfarin ár og
ætla ég mér að bæta úr því,“ segir hún að
lokum.
Sævar Þór Ríkharðsson er sérfræðingur í
fyrirtækjaviðskiptum í Austurbæjarútibúi
Landsbankans. Starf hans felst að mestu
í fjármögnunar- og lánaráðgjöf ásamt því
að halda góðum samskiptum við þau
fyrirtæki sem hann hefur umsjón með.
Námið
„Ég er í MSc námi í fjármálum fyrirtækja við
Háskólann í Reykjavík og klára það í vor,“
segir Sævar. “Ég lauk einnig BSc í viðskipta-
fræðum með vinnu og útskrifaðist úr því
námi vorið 2005. MSc námið er skipulagt
með það í huga að hægt sé að stunda það
með vinnu. Stærsti hluti þess er kenndur af
erlendum kennurum sem koma 3-4 sinnum
á önn og kenna þá í nokkra daga í senn, t.d.
frá miðvikudegi til laugardags. Oftast er kennt
eftir hádegi virku dagana og allan laugar-
daginn þannig að keyrslan er ansi mikil þá
daga. Þess á milli þarf að skila verkefnum
eða æfingum. Þegar um er að ræða fög hjá
innlendum kennurum er kennt einu sinni í
viku, seinnipart dags, frá kl. 16 til 20.“
Nám og vinna
Sævar segir sér ganga ágætlega að sinna
náminu með vinnu og vinnunni með náminu.
„Til þess að geta sinnt krefjandi starfi og
stundað námið með, hef ég tekið námið
svolítið í skorpum þar sem mikið er að gera í
kring um verkefnaskil og próf. Þess á milli
eiga vinnan og fjölskyidan minn tíma. Ég
reyni að gera þetta svona til þess að fjöl-
skyldan fái tíma og svo börnin þurfi ekki að
kynnast mér upp á nýtt að námi loknu,“ bætir
hann stríðnislega við og heldur svo áfram: „Ef
maður ætlar að vinna í þessu umhverfi sem
ég er í, er nauðsynlegt að auka samkeppnis-
hæfni sína. Einnig eru íslensku fjármálafyrir-
tækin orðin svo stór að möguleikarnir eru
nánast endalausir og til að geta tekið fullan
þátt í því fannst mér nauðsynlegt að mennta
mig enn frekar. Það er hagur minn og
vonandi bankans líka, sem hefur stutt mjög
vel við bakið á mér í náminu og er ég
virkilega þakklátur bankanum fyrir það.“
Sævar sjálfur
Sævar er fæddur og uppalinn í Reykjavi1<, í
Breiðholtinu og býr þar enn. „Ég er í sambúð
og á tvo syni sem eru 6 og 11 ára. Ég hef
unnið í Landsbankanum í 16 ár og byrjaði
þar sem sumarstarfsmaður árið 1988. Hvað
varðar áhugamál, er ég mikill ÍR-ingur og
æfði handbolta og spilaði með liðinu til 25
ára aldurs. Ég þjálfaði þar líka í mörg ár, allt
frá 6. flokki upp í meistaraflokk kvenna. Ég
æfði líka fótbolta en þó ekki mjög mikið en
hef gaman af því að hitta vini mína í bolta og
mæti þegar ég get. Mér finnst gaman að
ferðast og góð afslöppun þykir mér að lesa
og horfa á kvikmyndir. Síðast en hreint ekki
síst er það tíminn með flölskyldunni, sá tími er
bæði dýrmætur og frábær."
Árangur af raunfærnimati í VOW
verkefninu
Nú í haust lauk verkefninu Gildi starfa sem
SSF ásamt Glitni, Landsbankanum og
Kaupþingi tóku þátt í ásamt Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins og fleiri aðilum hérlendis og
erlendis. Þetta verkefni gekk út á að útbúa
aðferðafræði til að meta færni sem þjónustu-
fulltrúar hafa áunnið sér í starfi og með
margskonar símenntun innan fyrirtækjanna.
Einn hluti verkefnisins gekk út á að þátttak-
endur útbjuggu eigin færnimöppu þar sem
allt er tekið saman sem hver og einn hefur
starfað við, námskeið í starfstengdum efnum
og áhugamálum, hvaða störf og hvaða
áhugamál hver og einn hefur haft. Einnig
voru útbúin sérstök færniviðmið sem nýtast
við að meta færni í starfi. Miðað er við að
þessi gögn séu jafnframt undirbúningur að
því að leggja fram gögn sín til mats inn í
nám á framhaldsskólastigi. Alls luku nítján
þjónustufulltrúar þessu mati í vor og nú í
október fóru þrjár af þeim ásamt Sigurði
Albert frá SÍB í heimsókn í Viðskiptaháskól-
ann á Bifröst til að kynna útkomu verkefnis-
ins og fá fyrstu viðbrögð skólans við gögn-
um í færnimöppunni. Hulda Rafnarsdóttir
umsjónarmaður frumgreinadeildar í fjarnámi
kom síðan til Reykjavi"kur og hitti þær þrjár
og færði þeim mat skólans á gögnunum.
Niðurstaða af viðræðum við skólann á
Bifröst er sú að raunfærnimat muni auðvelda
og flýta mikið fyrir mati á umsækjanda og þá
sérstaklega ef viðkomandi óskar eftir að fá
starfsreynslu metna til eininga. Af þessu má
sjá að tvímælalaust er ástæða fyrir félags-
menn sem hafa unnið gögn sín með þessum
hætti að láta reyna á að fá sig metin inn í
frumgreinadeild.
Rétt er að geta þess að einn þátttakandi í
verkefninu lét meta sín gögn inn í MK og var
mjög sáttur við niðurstöður þess. Þar með
liggur fyrir að tveir skólar hafa fengið til
umsagnar gögn úr raunfærnimatinu og báðir
hafa tekið sérlega jákvætt í þá aðferðafræði
sem þar er lögð til grundvallar við fram-
setningu efnis.
17