SSFblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 18
NÝTT NAFN
VRLI
Greiðslumiðlun - VISA ísland hefur allt frá
upphafi verið í forystu á sínu sviði og tekið
mörgum mikilvægum breytingum á 24 ára
giftusömum ferli. Þær skípulagsbreytingar
sem nú verða á starfseminni miða sem fyrr
að framförum í þjónustu, auk þess sem
svigrúm eykst fyrir framsæknar lausnir og
útrás á alþjóðlega markaði. í nýrri stefnu-
mótun segir að VALITOR sé markaðsdrifið
þekkingar- og þjónustufyrirtæki með það
hlutverk að láta viðskipatvinum í té framúr-
skarandi lausnir og þjónustu á sviði greiðslu-
miðlunar og stuðla þannig að árangursríkum
viðskiptaháttum. Þetta undirstrikar þann
metnað okkar og ásetning að hvika hvergi
frá arfleifð öryggis í þjónustu okkar.
f krafti árvekni og þekkingar ætlum við að
bjóða framsækna og eftirsóknarverða
þjónustu á alþjóðlegan mælikvarða og vera
fyrsti valkostur í samstarfi banka, sparisjóða
og söluaðila á íslandi og öðrum völdum
mörkuðum.
Nýtt skipulag er rammi sem endurspeglar
áherslur i rekstrinum. Fyrirtækinu er nú skipt
í þrjú afkomusvið: Alþjóðalausnir, Fyrirtækja-
lausnir og Kortalausnir. Stoðsvið verða
fjögur: Áhættustýring, Fjármálasvið, Upp-
lýsingatæknisvið og Þróunar- og kynningar-
svið. Með nýju skipulagi er skerpt á ábyrgð
og verkaskiptingu innan fyrirtækisins, boð-
leiðir einfaldaðar og grunnur lagður að
hraðari ákvarðanatöku og aukinni snerpu
í þjónustu.
Nafnið Greiðslumiðlun - VISA ísland er
lýsandi og hefur þjónað sínu hlutverki vel.
Nú kalla nýjar áherslur hins vegar á nýtt og
þjálla nafn, ekki síst með hliðsjón af sókn
fyrirtækisins á markaði utan íslands.
VALITOR er nýtt nafn á traustum grunni. Við
erum þess fullviss að það muni venjast vel
og reynast verðugur arftaki forverans.
Á tímum hinna gífurlega öru breytinga sem
eiga sér stað allt í kringum okkur getum við
ekki spáð fyrir um framtíðina með öruggum
hætti. Við verðum að skapa hana. Þessar
breytingar á stefnu fyrirtækisins og skipulagi
eru afrakstur þeirrar framtíðarsýnar okkar að
vaxa og eflast og reyna sífellt á eigin þol-
mörk. Við lítum svo á að breytingarnar séu
grunnur að góðri þjónustu og arðbærum
vexti til framtíðar. Besti mælikvarðinn á
hvernig til tekst verður ánægja viðskiptavina.
i
Höskuldur H. Ólafssson, forstjóri VALITOR
18