SSFblaðið - 01.12.2007, Side 21
AFMÆLI
Helga Jónsdóttir var aðeins 15 ára þegar hún hóf
vinnu í Landsbankanum. Þetta var sumarvinna hennar
en hún segist hafa verið svo ung að hún mátti ekki
afgreiða viðskiptavini en var sett í að raða reiknings-
yfirlitum í umslög. Reiknistofa bankanna var ekki til
og flest þurfti að gera handvirkt sem nú er gert í
tölvum.
„Ég var sumarblóm í Landsbankanum þetta sumar“ segir Helga
og rifjar upp hvernig aðstæður voru þegar viðskiptavinirnir stóðu í
þvögu fyrir framan gjaldkerann, bankabækurnar runnu í sérstökum
rennum frá afgreiðslu til gjaldkeranna og opnað var aftur kl. 16:30
eftir stutta lokun og opið til kl. 19:00. „Það voru engar tölvur hjá
okkur og vélarnar voru handsnúnar," bætir hún við og segir breyt-
inguna á þeim rúmu 30 árum sem hún hefur unnið í Landsbank-
anum vera ótrúlega. „Landsbankinn var ríkisbanki og um banka í
eigu ríkisins giltu sérstök lög. Við höfðum t.d. ekki samningsrétt fyrr
en 1978 og ég man vel eftir eina verkfallinu sem við fórum í, 3 daga
verkfalli árið 1979. Ég var reyndar ekki byrjuð í neinum félags-
störfum þá, enda rétt rúmlega tvítug að aldri."
Skipulagsbreytingar
Helga byrjaði að vinna í Vesturbæjarútibúi, fór svo í aðalbankann og
þaðan í endurskoðunardeild. „Ég ferðaðist mikið um landið, heim-
sótti útibúin og hafði gríðarlega mikil samskipti við fólk. Svo breyttist
starfið mitt en nú er ég komin aftur í deild sem hefur umsjón með
útibúum. Það má kannski segja sem svo að ég sé komin í hring."
Hún hafði ekki unnið lengi hjá Landsbankanum þegar hún var
komin í stjórn starfsmannafélagins. „Ég hef óskaplega gaman af því
að vera innan um fólk“ segir hún. „Vinnan í starfsmannafélaginu
„Það tók dálítinn tíma að gróa um heilt
meðal starfsfólksins. Allt í einu vorum
við komin í varnarstarf, þakkaði fyrir
það sem maður hafði og jafnvel var
það svo að sumir reyndu að láta lítið
fyrir sér fara til að halda vinnunni."
gengur mikið út á samskipti, að stilla til friðar og vera tengiliður milli
stjórnar og starfsfólks og í því felst meðal annars að tilkynna um
skipulagsbreytingar. Það urðu miklar skipulagsbreytingar í
bankanum 1993 og í kjölfarið var um 70 manns sagt upp. Þetta
voru skipanir frá ríkisvaldinu. Bankinn hafði keypt Samvinnubankann
og samnýta átti bæði starfsfólk og tæki. Þá hófst ráðningabann og
um leið var reynt að fækka fólki enn meir. Þetta voru gríðarlega
erfiðir tímar því fólk hafði ekkert annað að fara. Það tók dálítinn tíma
að gróa um heilt meðal starfsfólksins. Allt í einu vorum við komin í
varnarstarf, þakkaði fyrir það sem maður hafði og jafnvel var það
svo að sumir reyndu að láta lítið fyrir sér fara til að halda vinnunni.
Fyrir vikið vantar heila kynslóð í bankann, þ.e. í starfsaldri, ekki
lífaldri þar sem ekki var ráðið inn nýtt fólk f um 10 ár.“
Einkavæðing Landsbankans
Við einkavæðinguna breyttist margt í bankanum. Starfsfólkið fann
sig betur metið en áður. „Við fengum t.d. aldrei jólagjafir frá bankan-
um á meðan hann var ríkisrekinn en það breyttist við einkavæð-
inguna. Eins var það með árshátíðir. Við fengum reyndar alltaf styrk
til að halda árshátíðina en það var í hvert sinn eitthvað sem samið
var um. Nú er allt í boði bankans, bæði fyrir starfsfólk og maka.
Önnur stór breyting og ekki síðri varð þegar feðgarnir keyptu
bankann. Sá eldri er daglega í bankanum og sýnir rekstrinum og
ekki síður starfsfólkinu og því sem það er að gera áhuga.
Aukin menntun
Helga segir áberandi hversu stór hluti starfsfólks bankans sé nú
með háskólamenntun. „Svo er eitt enn sem breyst hefur verulega
en það er að í útibúunum er sífellt færra fólk og þeim hefur reyndar
fækkað nokkuð líka. En í staðinn hefur fjölgað verulega í höfuð-
stöðvum bankans og ótrúlega margt er nú gert miðlægt. En eitt
hefur ekki breyst og það er að bankinn heitir ennþá Landsbanki
- sem betur fer! Fyrir það hef ég oft þakkað," segir Helga með áherslu.
Á þriðjudögum eldar Helga fisk og býður I mat.
Fjölskyldan
Helga sem varð fimmtug á árinu, hætti nýlega sem varaformaður
SÍB en því starfi hafði hún gegnt um 14 ára skeið. Hún er gift Agli
Hólm og til samans eiga þau 5 börn og 8 barnabörn. Fjölskyldan er
samhent og hittist t.d. alla þriðjudaga til að borða fisk en Helga
segist hafa afskaplega gaman af því að bjóða gestum í mat. „Svo
eru að koma jól hjá mér eins og öllum öðrum og þá er að njóta
aðventunnar," segir hún að lokum.
21