SSFblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 23
ÞETTA ER ÉG
Harpa Gunnarsdóttir
Harpa Gunnarsdóttir
hefur starfaö hjá SPRON
í um það bil 26 ár. Á þeim
tíma hefur hún sinnt
ýmsum störfum innan
fyrirtækisins en frá árinu
2005 hefur hún verið
framkvæmdastjóri
þjónustusviðs bankans.
„Þjónustusvið sér um bakvinnslu, skiptiborð
bankans, rekstrar- og starfsmannamál og
aðra stoðþjónustu“, segir Harpa. „Einnig
sjáum við um ýmis sérverkefni sem okkur
eru falin. Við vorum t.d. með úthringiver í
sölustörfum um tíma og erum nú að ráða til
okkar verkefnastjóra sem mun stýra stærri
verkefnum innan SPRON á samstæðu-
grunni.“
Harpa tók jafnframt við framkvæmdastjórn
fjárhagssviðs bankans árið 2006. Fjárhags-
svið samanstendur af reikningshaldi og
hagdeild og annast uppgjör á samstæðunni,
skýrsluskil og margskonar greiningarvinnu.
Starfið er viðamikið en Harpa segist vera
svo heppin að hafa sér við hlið úrvalsfólk
sem vinnur að þessum verkefnum með
henni og stendur sig frábærlega vel. „Maður
gerir ekki svona einn og óstuddur,“ segir
hún. „Enda held ég að sá árangur sem við
erum að skila innan SPRON sé einkum
góðu samstarfi og starfsumhverfi að þakka.
Það er virk valddreifing innan fyrirtækisins.
Fólki er falin ábyrgð og fær svigrúm til að
reyna sig við verkefnin eins og það treystir
sér til. Skipulag SPRON er tiltölulega flatt
og boðleiðir því stuttar og alltaf opið fyrir
umræður. Þetta þýðir að kraftur allra er
virkjaður til fulls.“
Áður en Harpa tók við núverandi starfi var
hún í starfsmannaþjónustu SPRON í
fimmtán ár, þar af starfsmannastjóri síðustu
sex árin. Hún segist hafa byrjað í almennum
störfum og gjaldkerastörfum þegar hún hóf
starf í bankanum, var í nokkrum útibúum og
færðist síðar í bókhald og hagdeild.
„Þegar ég hafði unnið í SPRON í nokkur ár,
fannst mér að ég væri búin að vera nógu
lengi í bankastörfum og fór að vinna hjá
einkafyrirtæki í borginni. Ég var fljót að finna
að það starf hentaði mér ekki vel og snéri
aftur til SPRON eftir 4 mánaða „útlegð."
Starfsumhverfið og andinn í SPRON átti
betur við mig og hér hef ég verið síðan og
unað mér vel. Ég hef fengið tækifæri til að
mennta mig bæði í starfi og með starfi og
fengið sífellt ný og krefjandi verkefni til að
kljást við og læra af, ég kann vel að meta
það“, segir Harpa.
Fjölskylda og áhugamálin
Harpa er gift Guðmundi Baldurssyni og
eiga þau þrjár dætur. Hún segir áhugamál
sín fyrst og síðast snúast um fjölskylduna
og að fylgjast með dætrunum og þeirra
áhugamálum. „Ég hef gaman af því að
ferðast og vera úti og eiga tíma með vinum
og stórfjölskyldunni. Við notum mikinn hluta
frítímans í ferðalög, bæði innanlands og
utan. Við unum okkur vel á sælureit fjöl-
skyldunnar austur í Laugadal en erlendis er
Barcelona í sérstöku uppáhaldi."
23