Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1918, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 01.09.1918, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ 143 yellow soap“ (ensk stangasápa?) og styrkleiki sápuvatnsins 2)4%. Upp úr því voru- umbúðirnar undnar og þeim skift meS 3—4 daga millibili. Ekki er þess getiö, aS sápuvatniS hafi veriö soSiS. AlþýSa notar stundum grænsápu viS bruna. Eflaust er það hrossa- lækning, en vel má vera, aS eitthvaS sé til í þessari sápulækningu. Hún er aS minsta kosti handhæg, einföld og ódýr. Sérstaklega ætti hún aS koma til greina viS óhrein sár. Tennur skólabarna. Af 160 skólabörnum, sem Jón Jónsson héraSsl. á Blönduósi skoSaSi í hitt eSa fyrra höfSu 72% skemdar tennur. Má þetta skaplegt heita, í samanburSi viS þaS sem gerist í þorpum og sjávarsveitum. Prentvillu hefir Sigurjón Jónsson bent á í júlíblaSinu. Er þar sagt aS tekjur enskra lækna séu 500—300 £, en á auSvitaS aS vera 500—3000, og mun þó aS eins gert ráS fyrir lítilfjörlegum meSaltekjum. Fr éttir. Fyrirlestur um góSgerSir viS sjálfan sig og aSra hélt Stgr. Matth. áSur en hann fór á spítalann. Húsfyllir þrátt fyrir þaS, aS kenning Stein- grírns um allar nautnir í lifnaSarhætti sé alt annaS en lúkullisk. MeSal annars mintist hann á aS bannlögin væru víSsvegar brotin, eftirlitiS frá lögreglunnar hálfu einskis virSi og lítiS eSa ekkert meS áfengissölu lækna. Myndi tæpast veita af, aS reka bæSi sýslumenn og lækna úr embættum, ef bannlögunum skyldi stranglega fylgt! — Já, þaS kann víSa aS vera pottur brotinn, en óhætt er þó aS fullyrSa þaS, aS a 11 a lækna þyrfti ekki aS reka frá embætti vegna þessa. M a r g i r þeirra fara mjög samvisku- samlega eftir fyrirmælum laganna, hvort sem eftirlitiS er nokkuS eSa ekki neitt. Steingrímur Matthíasson, héraSslæknir, ljet nýlega gera skurS á sér vegna botnlangabólgu. GuSm. Magnússon gerSi skurSinn og tókst ágæt- lega. Er Stgr. nú kominn af spítala. Embættispróf (lokapróf) taka nú 3 stúdentar í september, meS sér- stöku leyfi: Hinrik Thorarensen, Jón Bjamason og Kristján Arinbjarnar- son. Verkefni, skrifleg, voru þessi: í handlæknisfræSi: Carcinoma mammæ, einkenni, greining frá öSrum sjúkdómum, horfur og meSferS. I lyflæknisfræSi: LýsiS rannsóknaraSferSum viS magasjúk- dóma, og hverja þýSingu þær hafa fyrir aSgreiningu þessara sjúkdóma. í réttarlæknisfræSi: Kona kom til lögreglustjóra og sagSist hafa aliS barn á laun fyrir þrem dögum, og fleygt þvi í sjóinn. BarniS hefir ekki fundist. Lögreglustjóri biSur lækni rannsaka konuna og gefa skýrslu um alt, er aS þessu lýtur.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.