Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.1922, Síða 10

Læknablaðið - 01.03.1922, Síða 10
40 LÆKNABLAÐIÐ Sjúkrahúsið á Eyrarbakka. Það er engin smáræöisbygging nýja sjúkrahúsiö á Eyrarbakka. Lengdin er um 18 m. og breiddin 8, húsiö tvílyft, 1)ygt úr steinsteypu, kjallari und- ir því öllu og allhátt ris á þakinu. Gert er ráð fyrir 23 sjúkrarúmum, en 2 sjúkrastofur meö 5 rúmum má nota til einangrunar á sjúkl. með næma sjúkd. Miöstöövarhitun á aö setja í húsið og búa það yfirleitt út eftir nýtískuhætti. Þó hús þetta sé mikið og veglegt, veröur tæpast sagt, aö gerð þess og skipulag hafi tekist eins vel og á uppdrættinum af sjúkrah. á ísaf. Stofu- göngin eru of þröng til þess að sjúkrabörur hafi greiöan gang, skuröstofa er ekki sem best sett rétt viö innganginn þ.'r sem umferð er mest, skol- unarklefi enginn á neðri hæð annar en salernið. Nokkur óþægindi eru þaö og að hafa baðklefa i kjallaranum. Allþröngt er þeim og skipað rúmun um i annari stofunni á neðri bygð. — En það er auðveldara að setja út á slíkt skipulag en að bæta það. Þetta er fyrsta sjúkrah., sem Guðj. Sam- úelsson hefir gert uppdrátt af, og er von að það beri þess nokkur merki. Um hitt er enginn vafi, að húsið er fært í flestan sjó ef læknirinn er það og þeir sem því stýra. En erfitt verður að reka svo dýrt hús og mikið, ef hagur almennings er bágborinn eins og útlit er fyrir að hann verði næstu

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.