Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1927, Blaðsíða 5

Læknablaðið - 01.06.1927, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 83 hausinn er rétt fyrir neöan tniSjan legginn, á stærð viö tóbakspípuhaus i stærra lagi, en opiö mjög lítiö, rétt nálargengt. Nú taka menn pípuna i aöra hönd og prjóninn i hina, dýfa enda hans ofan i ópíumkvoöuna og taka upp þaö, sem loöir á endanum, vinda prjóninum fram og aftur milli fingra sér, til þess aö missa ekki þaö, sem á honum er, og læra hann yfir logann á lampanum. Baka siöan kvoöuna hæfilega, án þess aö brenna hana, þangaö til hún er mátulega þur til þess að hnoöa úr henni litla pillu eða granulum milli lófa sér. Síöan er pillan látin viö gatið á pípu- hausnum, — ekki í opiö, því þá rnyndi það lokast, — og nú er pípuhaus- inn borinn aö loganum og reykjandinn ber varirnar aö enda leggsins og sýgur nú aö sér, djúpt og rækilega þrisvar, fjórum sinnum, og gætir þess vandlega, að setn mest af reyknum komist ofan í lungun. Þá er búiö úr þeirri pipunni, reykjandinn skefur öskuna af pípuhausnum og geymir og fer siðan aö tilbúa næstu pípu. Kínverjar nostra oft lengi viö aö undirbúa reykinguna, og eru þá aö njóta ánægju eftirvæntingarinnar. En sjálf reykingin tekur ekki nema 20—30 sekúndur. hver pipa. Þegar u'm verkanir ópíumreykinga er að ræöa, veröur aö gæta þess, aö ópíum hefir mjög misjöfn áhrif á hina ýmsu kynflokka mannkynsins. Margt og rnikiö hefir veriö skrifaö um verkanir ópiums á hvíta menn yfirleitt og kemur öllum saman um, aö fyrir oss sé ópium mjög skaðlegt, ef notkun þess fer fram úr þvi, sem læknar leyfa. Sama máli er að gegna um Malaja. Eftir því sem Kínverjum fjölgar í Malajalöndunum, breiöast ópíumreykingar út, þó hægt fari enn, meöal Malaja. Stjórnirnar í Malaja- löndunum hafa þvi látiö rannsaka máliö margvislega, og hafa rannsókn- arnefndirnar jafnan komist aö þeirri niöurstööu, að ópíum sé meö öllu óhæft til nautnar fyrir Malaja, þeir hljóti einungis hin svæfandi og veikl- andi áhrif þess og verði undantekningarlaust aö óhófsmönnum og aö sið- ustu ræflar likamlega og andlega. Alt ööru máli er að gegna um Kinverja. Þeir hafa algerlega sérstöðu gagnvart ópium (og raunar Indverjar líka). Því þó þeim sé ekki gefið absolut immunitet gagnvart illum verkunum ópíums, hvað gálauslega sem þeir nota þaö — þvi fer mjög fjarri —, þá neitar því enginn sem því er kunnugur, aö fjöldi þeirra sýgur bæöi hvíld og hressingu úr ópíumpípunni áratugum saman, án þess að sýnilegt sé að þeim verði þaö aö meini. Þeir viröast geta notiö hins besta og sloppiö viö hiö versta úr ópíutn ef þeir nota þaö skynsamlega. Og ennfremur viröist þeim í sjálfs vald sett aö témpra reykingarnar og forðast óhóf, en þaö mun vera býsna sjaldgæft um aðra menn. í þessu samltandi má geta þess, að Kínverjar hafa aöra aöstööu en vér gagnvart fleiri lyfjum en ópíum. Þeir hafa t. d. greinilegt idiosyitcrasi gagnvart joöi. Margur læknir hefir hrekkjast á þvi að gefa þeim joðkali eöa joöoform; þó það sje raunar ekki algengt, aö liætta stafi af því. Hið sarna má segja um ipecacuanha (emetin) og belladonna (atropin), að læknar hrekkjast oft á því að gefa Kínverjum þau. Áhrifin af ópiumpípunni eru læknum vitanlega auöskilin. Hinar einu verkanir, sem maöur veröur var viö kliniskt, eftir eina eða tvær pípur eru þær, aö í byrjun veröur púlsinn lítið eitt hraöari og hraöari (blóöþrýst- ingurinn rís litiö eitt). Eftir örstuttan tima, 20—30 sekúndur, nálgast narkosestigið. Þá veröur púlsinn aftur hægari og hægari en hann var áö-

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.