Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.1930, Side 25

Læknablaðið - 01.10.1930, Side 25
LÆKNABLAÐIÐ 167 Sumir rithöfundar eru þeirrar skoÖunar, aÖ meÖ vaxandi menningu hafi konum orðið hættulegra að fæða. — Villikonán í fyrndinni fæddi sjálf- krafa og hjálparlaust, eins og skepnurnar og beit eÖa sleit sundur nafla- strenginn. Samræmi 'milli stærðar fósturs og grindar raskaðist meö vax- andi höfuðstærð barnsins, vegna stærri heila. Og með vaxandi hjálp komu fleiri óhreinar hendur til að smita konuna og verkfæri og aðgerðir bætt- ust við, er greiddu sýklunum götu. Og ekki bætti um, þegar abortus af lít- illi fyrirhyggju og kunnáttu komst i móð. Stgr. Matth. R. Coffey: Experimental transplantation of urcter in which a trans- fixion suture is used to complete the anastomosis. — Northwest Medecine, March 1930. I Lbl. nóv. 1929 bls. 177 skýrði eg frá aðferðum Grey Turner’s og R. Coffey’s til að lækna ectopia eða extrophia vesicœ. Nýlega sendi Coffey mér ofannefnda ritgerð eftir sig, þar sem hann skýr- ir frá hvernig hann, eftir ítrekaðar tilraunir á hundum, hefir fundið mjög einfalda og hættulausa aðferð til að græða ureteres inn í vegginn á rectum. Og getur þessi aðferð ekki einungis komið að góðu gagni við ectopia vesicæ, heldur einnig þegar það óhapp vill til, að ureter skaddast við operation og ekki er unt að skeyta hann saman. Hann klípur um proximala ureter-stúfinn með æöatöng, stingur síðan gegnum hann með mjórri, beinni nál, þræddri með catgut, bindur fyrst um neðri helminginn og síðan utan um allan stúf- inn og reyrir allfast að, til þess að necrosis komi sem fyrst. Þessu næst sker hann 1V2 ctm. langan skurð framan á rectumvegginn gegnum serosa og muscularis inn að mucosa og flær mucosa nægilega bera til að ureter-endinn komist vel fyrir. Síðan festir hann ureter-endann í neðra sárhorninu með sama catgut- þræðinum (anchorstitch). Að því búnu tekur hann nýja nál þrædda með silki, stingur henni gegnum mucosa og bindur þræðinum utan um ureter, rétt ofan við fyrri sauminn. Loks lokar hann serosa-muscularis-sárinu yfir ureter með fyrri catgut- þræðinum. Eftir einn eða tvo sólarhringa hafa þræðirnir reyrt sundur bæði ureter og mucosa og þvagið rennur hindrunarlaust, en ureter grær fastur von bráðar. , Þessi aðferð er afarhandhæg i samanburði við fyrri aðferðina (sem lýst var í Lbl. i fyrra), þar sem Coffey notaði ureter-þvagleggi, er hann stakk upp í ureter-opin með hjálp rectoscops, að undangenginni ítarlegri hreins- un á rectum. Við þá aðferð þurfti mestu nákvæmni og góða aðstoð, en hér má alt takast intraperitonealt. Coffey er listamaður í sinni teknik, og eg hygg, að þessi aðferð hans marki stórvægilega framför í ureter-kírúrgíunni og sennilega á ýmsum fleiri svæðum, þar sem er um kirtlagöng að ræða. Hugmyndina til þessarar aðferðar segist Coffey hafa fengið, þegar vin- ur hans, skurðlæknir einn þar vestra, skýrði honum frá slysi, er nýlega hefði hent hann við meiri háttar aðgerð í kviðarholi. Hann hafði í ógáti bundið um báða ureteres, en án þess að skera þá sundur. Þegar sjúkling- urinn fékk fullkomna anuria á eftir, uppgötvaði hann slysið og gerði nephro-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.