Læknablaðið - 01.10.1930, Page 26
i68
LÆKNABLAÐIÐ
stomia bá'ðu rnegin svo aÖ þvagiö fékk framrás og sjúklingum létti. En
eftir nokkra sólarhringa resorberaÖist catgutiÖ og ureteres opnuðust á ný.
Streymdi þá þvagið rétta leið og nephrostomi-sárin lokuðust af sjálfu sér.
Coffey notaði fyrst silkiþráð til að reyra ureter, en komst brátt að raun
um að catgut gerði sarna gagn, en silkiþráð notar hann í öllu falli til að
reyra sundur ureter -j- mucosa recti. í fyrstu notaSi hann að auki phenol-
um liquidum til að brenna með slímhimnuna, svo að hún opnaðist fyr.
En þetta reyndist honum óþarft.
Victor Panchet hefir nýlega skýrt frá þessari aðferð Coffey’s og lýst
henni nákvæmlega í Société des chirurgiens dc Paris, og lýkur miklu lofs-
orði á hana. Hann vill nota diathermi-hníf, bæði til að skera sundur serosa-
muscularis og til að cauterisera slímhimnuna með, svo að fyr komi necrosis-
gat á hana. Stgr. Matth.
Dauðhreinsað girni kaupa máske sumir læknar í umbúðaverslunum. Vara-
samt getur það verið, því próf. Knorr í Múnchen fann að 80% af sýnis-
hornum voru ekki tryggilega dauðhreinsuð. (Múnch. med. W. No. 14, 193°)-
Holnálar til þess að stinga inn í æðar, fást nú af sérstakri gerð, sem á
að vera mikil vörn gegn því að blóð storkni í þeim. Þær nefnast „Ainit“-
nálar. Þá hafa og ker verið gerð úr „Athromit", til þess að láta blóð renna
í, og storknar það seint i þeim, svo að nota má til blóðgjafar.
(Múnch. med. W. No. 14, 1930).
F r é 11 i r.
Embætti. Knútur Kristinsson, fyrv. héraðsl., hefir verið settur til að
gegna héraðslæknisembættinu í Hornafirði, í sjúkdómsforföllum Hinriks
Erlendssonar, sem liggur í Sct. Jósefs spítala, Rvík.
Háskólinn. Dómsmálaráðherrann hefir lagt fyrir að greiða ekki í vetur
þóknun fyrir kenslustörf Kjartans Ólafssonar augnlæknis. Skv. ósk Lækna-
deildar sinnir augnlæknirinn þó kenslunni endurgjaldslaust, fyrst um sinn.
12 nýir stúdentar hafa innritast í Læknadeild í haust. Er það með
fæsta móti.
Utanfarir lækna. Ólafur Jónsson læknir er nýkominn heim, eftir nokk-
urra mánaða dvöl við skurðlækningadeild á Sahlgrcnska sjukhuset í Gauta-
borg. — Jóuas Sveinsson er nýsigldur til tveggja ára dvalar ytra, til sér-
fræðináms í handlækningum. Mun ætla sér aðallega til Sviþjóðar og Austur-
rikis. — Pétur Thoroddscn, héraðsl. á Norðfirði, og Árni Iiclgason, héraðsl.
á Patreksfirði, eru nýfarnir utan.
Á ferð í bænum. Ólafur Ólafsson, héraðslæknir í Stykkishólmi, kom hing-
að nýlega, snögga ferð.
Innheimtu- og afgreiðslumaður Lbl. er hr. Þorvaldur Jónsson,
Grettisgötu 37, Rvík.
Félagsprentsmið j an.