Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1938, Blaðsíða 23

Læknablaðið - 15.01.1938, Blaðsíða 23
„Háfjallasól“ Þýðing háfjallasólar í lækningastarfi lyflækna: 1 daglegii starfi (praxis) læknanna liefur geislun líkamans með ultra- fjólubláum geislum náð mikilli útbreiðslu. Á þessu svæði var það, að hin tilbúna báfjallasól — Original Hanau — ruddi sér til vegs í allra fremstu röð fyrir öryggi í starfrækslu og ágæta tækni. Síðan 1906 hafa verið seld yfir 200 000 áhöld, sem sannar best álit og endingargildi þeirra við læk- ningastarfið. Mörg þúsund framgjarnra Iækna við háskólaklinikur, við sjúkrahús, við heilsuhæli og í lækningarstofum þeirra sjálfra víðsvegar um heim, hafa síðan 1906 notað hina tiibúnu háfjallasól kvartslampans — Originai Hanau. 1 fir 2600 skyrslur hafa birzt um þetta mál' í vísindalegum ritum, læknis- Iræðislegum kennslubókum og tímaritum, fram til þessa tíma. Verkanir háfjallasólarinnar: Geislun alls líkamans með ultra- fjólubláu geislum kvartslampans, “Tilbúinni háfjallasól” — Original Hanau —, veitir oft heilsubót þeg- ar aörar lækningaaðferðir hafa brugðist, þeir auka áhrif annara læknismeðala og flýta fyrir verkun- um þeirra. Batinn kemur í Ijós í húðinni á þann hált að hún verður rauð af blóðstreymi og síðan brún .(sólbruni, Erythem). Blóðþrýstingurinn minnkar, öll efnáskifti líkamans aukast og um leið örfast öll lífTærastarfsemin. Sjúklingurinn hressist í.útliti, lí- kamsþyngdin vex, matarlystin glæð- ist (oft í matargræðgi), svefninn batnar, verður djúpur og eðlilegur. Hinn öri blóðstraumur í húðinni lýsir sér, eins og reyndar hjá heil- brigðu fólki, með hraustlegum, brúnleitum hörundsblæ, hressilegu yfirbragði og þægilegri tilfinningu um þrótt og hreysti, ekki aðeins líkamlega heldur einnig andlega. Hver sem tekur sólböð háfjallasóla- rinnar — Original Hanau —- finnur andlegt fjör færast í sig, kemst í gott skap og verður glaðlyndur. Hja sjúklingum verða áhrifin sefandi, lifgandi og styrkjandi á Iíðanina allstaðar í hinum sýkta líkama, sem fær nýtt fjör og elfdan mótstöðukraft gegn sjúkdómsbölinu. Ef þér óskið fáið þér sundurliðaða lýsingu með myndum hjá Itaftækjaeinkasölu ríkisins, Iteykjavik, Sími: 4526.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.