Læknablaðið - 01.11.1938, Blaðsíða 3
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYICJAVÍKUR
RITSTJÓRN: HELGITÓMASSON, JÓH. SÆMUNDSSON, JÓN STEFFENSEN
24. árg. Reykjavík 1938. 7. tbl. ...
Sexualhormon-lækningar
á kvensjúkdómum.
Eftir Árna Pétursson lækni.
Fyrirlestur fluttur i L.R. þann 12 maí 1937.
Háttvirtu fundarmenn!
Umtalsefni mitt hér í kvöld er:
SexualhormonmeÖferS á gynæko-
logiskum sjúkdómum.
ÞaÖ er tvent, sem ég þegar í staÖ
vil biðja velvirÖingar á. HiÖ fyrra
er það, ef vera skyldi að þetta efni
hefÖi verið á dagskrá í félag-
inu nýlega, en um það hefir inér
láðst aÖ spyrja formann félagsins.
jægar ég gaf kost á erindinu, en
sjálfur ókunnugur því, sem hér
hefir fariÖ fram siÖustu árin, þar
sem ég af sérstökum ástæðum hefi
ekki getað sótt félagsfundi nú um
all-langt skeið;
Hið siðara er ])að. að ég get ekki
farið langt út í einstök atriði þeirr-
ar meðferðar, sem ég ræði um,
Tieldur vil ég reyna að benda á
Tielstu leiðarlínur hormon-meðferð-
arinnar.
Er tvent sem veldur þessu; ann-
ars vegar það, að ég hefi sjálíur
með mínu takmarkaða materiale svo
litið upp á að bjóða, að naumast
er hægt að draga nokkrar ályktan-
ir af því (á því þarf ég þó ekki
að biðja afsökunar, sjúkrahússlaus
fátækralæknir í Reykjavik, þar sem
grónir gynækologar stóru landanna
hafa jafnvel af litlu að státa enn
sem komið er), og hins vegar það,
að þessi grein læknisfræðinnar, þó
í örum vexti sé og góðum viðgangi,
er enn svo ung, að tæplega mun
vera hægt að tala um neinar ,,nor-
mal methóður" í þessum lækning-
um. Hér er alt á byrjunarstigi, læt-
ur hylla undir mikla möguleika —
er interressant.
Það segir sig því sjálft, að ég
hefi við samningu þessa erindis orð-
ið að sækja fróðleik minn í þau rit
um þessi efni, sem ég hefi komist
yfir, og skal þá þegar með þakk-
læti minnast vinar míns, dr. med
Ebbe Brandstrups, sem hefir ver-
ið mér innan handar hvað þetta
snertir, sent mér bæði frumsamið
eftir sjálfan sig og svo rit annara
höfunda, sem um þetta mál hafa
fjallað.
Það, sem fyrst liggur þá fyrir,
er að glöggva sig á biologi hinna
kvenlegu kynfæra. athuga verkanir
sexualhormonanna á þau og
revna síðan að mynda sér skoðun
á því, hvernig þau skuli notuð til