Læknablaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 16
156
LÆKNABLAÐÍÐ
í norðlægum löndum en ann-
ars staðar «g liaí'a þeir geisað
sem skæður faraldur meðal
Eskimóa i Grænlandi og Norð-
ur-Canada.
Á þessari ráðstefnu voru
saman komnir færustu scr-
fræðingar í vörnum gegn næm-
um sjúkdómum, svo að ráð-
stefnan varð mjög lærdómsrik
fyrir alla þátttakendur. Þótti
hún takast sérlega vel, vera vel
undirbúin bæði frá bendi Heil-
brigðisstofnunarinnar (WHO)
og þátttakenda. Menn lcynntust
bver öðrum og lærðu margvís-
lega innig i einkasamtölum
milli funda, og það því fremur
sem beita mátti að allur bópur-
inn væri innilokaður í sama
búsi allan daginn, því að fundir
voru haldnir í stúdentalieimili,
þar sem hádegisverður var
snæddur á staðnum, svo að
menn þurftu ekki að fara út
úr búsinu daglangt.
Öll erindi og allar uniræð-
ur var tekið upp á segulband
og verður gefið út í heild af
WHO.
Frá Itrhnum
Árni Björnsson, cand. med., hefur
fengiS leyfi til að stunda almennar
lækningar hér á landi. Leyfisbréf
lians var gefið út 10. ágúst 1953.
Þórarinn Guðnason hefur verið
viðurkenndur sérfræðingur í hand-
lækningum. Leyfisbréf hans var
gefið út hinn 3. okt. 1953.
Jón Hannesson, cand. med., hefur
fengið leyfi til að stunda almennar
lækningar liér á landi. Leyfisbréf
dags. 2. okt. 1953.
Baldur Jónsson, cand. med., hefur
fengið leyfi til að stunda almennar
lækningar hér á landi. Leyfisbréf
dags. 20. okt. 1953.
Björn Guðbrandsson. Ileilbrigðis-
málaráðuneytið hefir h. 5. apríl
1954 gefið út leyfisbréf handa Birni
Guðbrandssyni, cand. med & chir.,
til þess að mega stunda almennar
lækningar liér á landi, og enn frem-
ur leyfisbréf til þess að mega starfa
sem sérfræðingur í barnasjúkdóm-
um.
Námsferill Björns að afloknu
læknisprófi frá Háskóla íslands var
sem liér segir: Kandidat, Lands-
spítalanum 1945—1940. Kandidat,
St. Lukes Hospital New Bedford,
Massachusetts, Bandaríkjunum 1940
—1947. Aðstoðarlæknir New York
Foundling Hospital, New York,
1947—1948. Aðstoðarlæknir Childr-
en’s Hospital, Washington D.C. 1948
—1950. Embættispróf í læknisfræði
i Maryland 1940, og í Washington
sama ár. Einnig almennt læknapróf
í Illinois 1953. Lauk sérfræðinga-
prófi og fékk viðurkenningu sem
sérfræðingur í Bandaríkjunum 1952.
(skriflegt í Hiroshima Japan, munn-
tegt i júni 1952 i San Francisco.
Björn hefir nú opnað lækninga-
stofu í Reykjavik.
Uppprentun úr Læknablaðinu er bönnuð nema að fengnu leyfi höfunda.
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er í Félagsprentsmiðjunni h.f.,
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 757.