Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1982, Blaðsíða 13

Læknablaðið - 15.09.1982, Blaðsíða 13
LÆK.NABLADIÐ 201 karlar, næsta áratuginn álíka, en' seinasta áratuginn voru karlar fleiri (1.5:1). Flestar rannsóknir sýna hæstu aldurstíðni hjá ungu fólki, en tvær rannsóknir, önnur frá Aberdeen og hin frá Oxford, sýna tvítoppa (bimodal) aldursdreifingu, p.e. aukningu einnig hjá eldra fólki (2, 3). Skýring á eldri aldurs- toppnum er ekki ljós. Hjá okkur finnst sjúk- dómurinn á öllum aldri, en flestir eru á aldrinum 31-40 ára og næstflestir 21-30 ára, sem kemur heim við aðrar rannsóknir. Fáar rannsóknir finnast á tíðni sjúkdómsins miðað við útbreiðslu við greiningu, einkum hvað varðar proctitis ulcerosa. í nýlegri yfir- litsgrein er nýgengi proctitis ulcerosa talið frá 3 til 8 á 100.000 íbúa og algengið 40 til 100 á 100.000 íbúa (11). í sömu grein er nýgengi proctocolitis ulcerosa talið 2 til 7 á 100.000 (11). í rannsókn frá Oxford frá árunum 1951 til 1960, par sem árlegt nýgengi blæðandi ristil- bólgu var 6.5 á 100.000, var árlegt nýgengi proctitis ulcerosa 1.1 á 100.000 eða 17 % (3). í rannsókn frá Aberdeen var nýgengi proctitis ulcerosa 3.2 á 100.000 árin 1974 til 1976 (12), en á tímabilinu 1967 til 1976 var nýgengi colitis ulcerosa par 11.3 á 100.000 (2). í okkar rannsókn höfðu að meðaltali 32.3 % proctitis ulcerosa, lægst fyrsta áratuginn 1950 til 1959 eða 21.4 %, nýgengi 0.6 á 100.000, en hæst síðasta áratuginn, 1970 til 1979, 36.8 %, eða nýgengi 2.7 á 100.000. Fleiri konur höfðu proctitis í Aberdeenrannsókninni (12), en í rannsókn frá Reading í Englandi höfðu fleiri karlar proctitis (13). í rannsókn frá St. Mark’s spítala í London frá fyrri árum voru um pað bil helmingi fleiri konur með proctitis en karlar (14), en í seinni rannsóknum frá sama sjúkra- húsi höfðu fleiri karlar proctitis en konur (15, 16). Hjá okkur hafa fleiri karlar en konur proctitis, 58 karlar (57 %) á móti 44 konum (43%) eða 1.32/1, sem er hærra en í ofan- greindum rannsóknum (12, 13, 14, 15, 16). í okkar rannsókn er nýgengi proctitis lágt fyrsta áratuginn, en seinasta áratuginn, 1970 til 1979, er nýgengið komið upp í 2.7 á 100.000, sem er sambærilegt rannsókninni frá Aberde- en (12), hærra en rannsóknin frá Oxford (3). í rannsókn frá St. Mark’s spítala á útbreiðslu sjúkdómsins við fyrstu greiningu hjá 269 sjúklingum höfðu 79 (30 %) proctosigmoiditis og 24 % pancolitis (16), en hjá okkur höfðu í heild 36% proctosigmoiditis og 13.6% pan- colitis. Hjá okkur lækkar heildarhlutfall pan- colitis úr 19.6 % niður í 9.3 % síðasta ára- tuginn. Hjá okkur eru karlar fleiri en konur í öllum útbreiðsluflokkum nema pancolitis, en par eru konur fleiri en karlar, hlutfall karlar/- konur 0.79, sem er líkast pví sem finnst víðast annars staðar. Okkar niðurstöður varðandi kynjahlutfall og tíðni proctitis ulcerosa gefa tilefni til pess að velta vöngum yfir pví, hvort rannsókn okkar sé á allan hátt sambærileg við rannsókn annarra svo sem frá Aberdeen og Oxford. Tíðni proctitis ulcerosa hjá okkur er hærri en í ofangreindum rannsóknum, einkum seinasta áratuginn. Ein skýring gæti verið sú að í okkar rannsókn komi fram fleiri sjúklingar með vægan sjúkdóm, sem greinast hér utan spítala, en komi betur í leitirnar en annars staðar. Önnur skýring gæti verið sú, að sjúkdómurinn greinist fyrr hér en annars staðar, en ekkert ákveðið bendir til að. svo sé í raun. Enn önnur skýring gæti verð sú, að sjúkdómurinn hér.á landi sé vægari en annars staðar. Flestar rannsóknir, eins og áður er getið, sýna fleiri konur en karla. Líkist pað peim hópi í okkar rannsókn, sem hafði colitis distalis og pancoli- tis, en mjög frábrugðið peim hópi, sem hafði proctitis og proctosigmoiditis, par sem karlar voru verulega fleiri. Því getur verið að pegar litið er á blæðandi ristilbólgu í heild, séu karlar í raun fleiri en konur, en karlar fái vægari sjúkdóm í byrjun en konur svæsnari. Aðrar skýringar gætu verið á pessu, m.a. sú, að karlar leiti fyrr til læknis en konur og greiningin dragist pví á langinn hjá konum og að pær hafi pví svæsnari og útbreiddari sjúkdóm við greiningu. Hjá okkur er um verulega vaxandi nýgengi á sjúkdómnum að ræða síðustu fimm árin. Þetta er erfitt að skýra, par sem ekki er um aðrar sambærilegar rannsóknir frá sama tíma- bili að ræða annars staðar. Augljós skýring á pessu vaxandi nýgengi gæti verið sú að síðustu fimm árin eru framsýn, sem gefur tilefni til nákvæmari leitar og betri greiningar. Þessi síðastnefnda skýring er pó ekki einhlít, par sem hún varpar ekki ljósi á hið mikla og breytta kynjahlutfall síðustu fimm árin, en pá greindust mun fleiri karlar en konur. Aukið nýgengi sjúkdómsins skýrist að miklu en ekki öllu leyti af tíðari greiningu vægs sjúkdóms, p.e. proctitis og proctosigmoiditis. Hið breytta kynjahlutfall síðustu fimm árin bendir hins vegar til að hér sé um raunverulega vaxandi nýgengi vægs sjúkdóms að ræða fremur en betri greiningu og er pessi aukning mun meiri

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.