Læknablaðið - 15.09.1982, Síða 38
Tagamet
REYNSLA OG GOTT GENGI UM ALLAN HEIM.
MEIRA EN 20.000.000 SJÚKLINGAR í 115
LÖNDUM HAFA NOTAÐ LYFIÐ.
SANNAST HEFUR LÆKNINGAMÁTTUR LYFSINS
OG ÖRYGGI í NOTKUN.
Upplýsingar um notkun
Lyfjaform:
Fölgrænar filmuhúöaðar töflur, áletraöar TAGAMET öðru megin og SK&F 200 hinum
megin, innihalda 200 mg cimetidine.
Lykjur (ampullur) sem innihalda 200 mg dmetidine i 2ja ml lausn.
Notkun:
Tagamet er Histamin Hí-viðtækja blokkari sem hindrar bæði grunn(basal) og örvað
magasafaflæði af sýru og minnkar pepsin útskilnað.
Ábendingar:
Meðferð skeifugamarsára, góðkynja magasáramyndun, endurtekin sáramyndun, stoma-
sár, bakflasðts vólindabólga (reflux oesophagitis), aðrar kringumstæður þar sem liklegt er
að minnkuð magasafamyndun só heppileg.
Það er einnig ráðlagt við meðferð á Zollinger-Ellison syndrome.
Skömmtun og gjöf:
Fullorönir: Gjöf í meltingarveg: Vanalegur skammtur er 200 mg 3svar á dag með mat og
400 mg við háttumál (1,0 g/dag). Ef ófullnægjandi symptomatisk svörun fæst eða merki
eru um áframhaldandi sáramyndun má auka skammta I 400 mg 4 sinnum á dag (1,6
g/dag) einnig með mat og við háttumál.
Þennan skammt ætti I upphafi að gefa i a.m.k. 4 vikur (6 vikur só um að ræða góðkynja
magasár), jafnvel þótt symptomatisk bót hafi fengist fyrr.
Meðferð má halda áfram I lengri tíma hjá sjúklingum sem kunna að fá bót af minnkun
magasafaframleiðslu og minnka má skammta hjá þeim sem svarað hafa meðferð t.d. i 400
mg að morgni og við háttumál.
Hjá sjúkiingum með skeifugamarsár sem svarað hafa upphafsmeðferð má hindra endur-
myndun sárs með áframhaldandi meðferð með 400 mg við háttumál, eða 400 mg að
morgni og 400 mg við háttumál f a.m.k. 6 mánuði (sjá frekari upplýsingar).
Við bakflæðis vólindabólgu er ráðlagt að gefa 400 mg 4 sinnum á dag með máltíöum og við
háttumál í 4-8 vikur.
Hjá sjúklingum með mjög mikla magasýruframleiðslu (t.d. Zollinger-Ellison syndrome)
getur verið nauðsynlegt að auka skammtinn i 400 mg 4 sinnum á dag eða í einstaka
tilfellum í 2 g/dag.
Við blæðingar frá sári eöa fleiðrum (erosion) i efri hluta meltingarvegar og við meðferð
sjúklinga sem útsettir eru fyrir blæðingu frá efri hluta meltingan/egar er vanalegur skammt-
ur 200 mg 3svar á dag með máltíð og 400 mg við háttumál. Nauðsynlegt getur verið að
auka skammtinn í 400 mg 4 sinnum á dag.
Þar eð ekki víst að Tagamet veiti samstundis symptomatiska bót, ættu sjúklingar að hafa
aðgang að sýrubindandi lyf jum þar til einkenni hverfa.
Stungulyfsnotkun: Tagamet er hægt að gefa í æð eða vöðva.
Skammtur i vöðva er vanalega 200 mg sem endurtaka má á 4-6 kist. fresti.
Skammtur við gjöf í æð er vanalega 200 mg sem gefa á hægt og má endurtaka á 4-6 klst.
fresti. Ef sjúklingur hefur skerta hjarta eða æðakerfisstarfsemi eða ef gefa þarf stærri
skammt ætti að þynna skammtinn og gefa á a.m.k. 10 mín. I slikum tilfellum er innrennsli
(infusion) hentugra.
Skammtur við innrennslisgjöf er 100 mg/klst. i 2 klst. endurtekið á 4-6 klst. fresti.
Hámarksrennslishraði ætti ekki að fara fram úr 150 mg/klst. (eða 2 mg/kg líkamsþunga/
klst.). Með samfelldri innrennslisgjöf ætti meðalrennslishraði allt að 75 mg/klst. á 24 klst.
að nægja.
Heildardagskammtur með hvaða lyfjaformi sem er ætti vanalega ekki að yfirstiga 2 g.
N.B. Skammtastærð ætti að minnka hjá sjúklingum með skerta nýmastarfsemi (sjá
varúð).
Böm: Reynsla af Tagamet hjá bömum er takmörkuð og hefur ekki verið metin I klinískum
rannsóknum (sjá frekari upplýsingar).
Frábendingar, viðvaranir o.fl.
Engar þekktar frábendingar.
Varúð: Skammta ætti að minnka hjá sjúklingum með skerta nýmastarfsemi i samræmi við
creatinine clearance. Eftirfarandi skammtar eru ráðlagðir: Creat. clearance 0-15 ml/min.
200 mg x 2/dag, 30-50 ml/min. 200 mg x 3/dag, yfir 50 ml/mín. venjulegur skammtur.
Haagt er að fjariægja cimetidine með hemodialysis.
Mælt er með tiðu eftirliti með sjúklingum sem samtimis eru á meðferð með blóðþynningar-
töflum þar eð cimetidine lengir frekar prothrombin tíma hjá sjúklingum á þessum lyfjum.
Tagamet getur einnig haft áhrif á lyfjaferii klórdiazepoxíðs og díazepam (en ekki lóraz-
epam og oxazepam) og þannig aukið klínisk áhrif þeirra.
Þótt klíniskar tilraunir i allt að eitt ár hafi ekki sýnt markverðar óvæntar hjáverkanir, ætti að
halda áfram að fylgjast reglulega með sjúklingum á langtímameðterð.
Áður en hafin er meðferð með Tagamet við magasári, ætti að útiloka illkynja vöxt, þar eð
meðferð getur dregið úr einkennum og tafið greiningu.
Hafa ber í huga hjá sjúklingum með sjúkdóma, eða á lyfjum, sem stuðlað geta að
blóðkomafæð, möguleika H?-viðtækjablokkara til að magna slik áhrif.
Notkun i meðgöngu og við brjóstagjöf: Þótt tilraunir i dýrum hafi ekki sýnt hættu af gjöf
Tagamet á meðgöngu eða við brjóstagjöf, hafa bæði þessar rannsóknir og rannsóknir á
konum sýnt að það fer yfir fylgjuþröskuld og skilst út i mjólk. Þvi ætti eins og við flest lyf að
forðast notkun T agamet á meðgöngu og meðan brjóstagjöf stendur nema nauösyn beri til.
Aukaverkanir: Niðurgangur, svimakennd eða útbrot, vanalega væg og sem ganga yfir og
þreyta hafa verið tilkynnt. Væg brjóstastækkun virðist sjakJgæf. Lifrarskaði sem gengið
hefur til baka og sannaður með blóðrannsóknum eða sýnatöku, hefur einstaka sinnum
verið skráður. Ruglástand sem gengið hefur yfir, hefur einnig komið fyrir, vanalega hjá
öldruðum eða þegar mjög veikum sjúklingum (t.d. sjúklingum með nýmabilun). Interstitial
nephritis eða bráð briskirtilsbólga sem gengið hefur til baka þegar Tagamet meðferð var
hætt hefur sóst mjög sjaldan. Hækkanir á plasma creatinine gildi án annarra einkenna
hafa ekki haft kliniska þýðingu.
Eitrunarskammtar: Inntaka allt að 100 taflna í einu hafa verið skráðar nokkrum sinnum án
nokkurs markverðs skaða. Framköllun uppkasta og/eða magaskolun má nota ásamt
symptomatiskri- og stuðningsmeðferð.
Lyfjafræðileg aðgát:
Geymist á köldum stað og fjarri Ijósi.
Frekari upplýsingar:
Rannsóknir sem staðið hafa allt að einu ári hafa sýnt að allt að 80-85% sjúklinga hverra
skeifugamarsár greru á upphafsmeðferð með Tagamet i fullum skömmtum, héldust i
afturtoata á annað hvort 400 mg T agamet við háttumál eða 400 mg 2svar á dag.
Tagamet samrýmist jóna- og sykurinnrennslislausnum sem vanalega eru notaðar.
Tagamet hefur ekki verið metið i klíniskum tilraunum hjá bömum. Samt sem áður hefur
Tagamet verið gefið þar sem minnkun magasafaflæðis var talin nauðsynleg. Tagamet i
skammtastærð 20-40 mg/kg/dag var gefið í dreifðum skömmtum i æð eða meltingarveg.
Tilvitnanir:
1. Pounder, R.E. (1981) Lancet,/', 29.
2. Bodemar, G. and Walan, A. (1978) Lancet, i, 403.
3. Hansky, J and Korman, M.G. (1979) Digest. Dis. Sd., 4,465.
4. Sonnenberg, A. et al (1979) Dtsch. Med. Wschr., 104,725.
5. Hetzel. D.J. et al (1979) MedJ.Aust., 1,529.
6. Mekel, R.C.P.M. (1978) S.Afr.Med.J., 54, 1089.
7. Venables, C.W. et al (1978) Cimetidine. The Westminster Hospital Symposium,
Churchill Livingstone P13.
Tagamet er skrásett vörumerki.
a SmithKline company
SMfTH KLINE & FRENCH CANADA LTD.
MISSISSAUGA, ONTARIO, CANADA
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
STEFÁN THORARENSEN HF.
SÍDUMÚLA 32 - SÍMI86044 - ICELAND