Kópavogur - 26.04.2013, Blaðsíða 6
6 26. apríl 2013
Stefnumót við Bjarta framtíð
Björt framtíð bauð almenningi á stefnumót við flokkinn um síðustu helgi. Þar var oddviti
flokksins í Suðvesturkjördæmi mættur
ásamt fjölskyldunni en Ari Eldjárn og
fleiri snillingar tróðu upp við þetta
tækifæri.
Við sérhæfum okkur í
vatnskössum og bensíntönkum.
Gerum við og eigum nýja til á lager.
Flokkur heimilanna
opnar kosningamiðstöð
Flokkur heimilanna opnaði kosn-ingaskrifstofu sína í Hamraborg um síðustu helgi. Húsfyllir var
á skrifstofunni og hér sjást efstu menn
á listunum í Kraganum og Reykjavík.
Frá vinstri:
Kristjana Jónsdóttir, Arnþrúður
Karlsdóttir, Pétur Gunnlaugsson, Ás-
gerður Jóna Flosadóttir og Birgir Örn
Guðjónsson.
Menningarhátíð VG
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna hlýddi á upp-lestur á menningarhátíð VG ásamt syni sínum á laugardag. Fjöl-mennt var á hátíðinni og var dagskrá við hæfi fólks á öllum aldri.
Framsóknarmenn í Smáralind
Eygló Harðardóttir og Willum Þór Þórsson, frambjóðendur Framsóknarflokksins í Suð-
vesturkjördæmi hittu vegfarendur í
Smáralind um síðustu helgi. Þau eru
hér með formanninn á milli sín- ekki
í holdi – heldur í anda.
Pönnukökur að hætti
Sjálfstæðismanna
Sjálfstæðismenn hafa farið víða um kjördæmið og bakað pönnu-kökur fyrir gesti og gangandi.
Hér er Bryndís Loftsdóttir frambjóð-
andi Sjálfstæðisflokksins ásamt Hauki
Ásgeirssyni og Rósu Guðbjartsdóttur
við pönnukökubakstur um síðustu
helgi.
Auglýsingasíminn er
578 1190
Netfang:
auglysingar@fotspor.is.