Kópavogur - 26.04.2013, Blaðsíða 14

Kópavogur - 26.04.2013, Blaðsíða 14
14 26. apríl 2013 Rokkað í Digraneskirkju – þemamessur og fjölbreytt helgihald Kántrý-, fornbíla- og mótorhjólamessa -kirkjan á að vera öllum opin, segir Sr. Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur. Það er gaman að hafa fjölbreytni í helgihaldinu þannig að allir finni sig í kirkjustarfinu og það er langt síðan við byrjuðum að vera með svona þemamessur“ segir sr. Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur í Digraneskirkju. Hinir ýmsu viðburðir í kirkjunni hafa vakið mikla athygli og eru sumir svo vel sóttir, að kirkjan er löngu búin að sprengja utan af sér húsnæðið en hún tekur um 320 manns í sæti. „Við erum búnir að vera með tvær kántrýmessur í vor. Önnur var síðasta laugardag sem var mjög vel sótt. Tón- listin var flutt af bandi sem kom saman vegna þessa þema og kallar sig „Kántrý- bandið Digra“ segir sr. Gunnar. „Það voru spiluð kántrýlög, sum hver við texta sem ég bý til sjálfur og í messunni tók fólk upp á því að dansa línudans, al- gjörlega óumbeðið, og ég sá ekki annað en menn kynnu vel að meta. Ég bjó til íslenskan texta við lagið „Folsom Prison Blues“ og svo enduðum við á sálminum „Í bljúgri bæn“ sem er í raun þekktur slagari“ segir sr. Gunnar. Hann nefnir að kántrýmessurnar séu vissan hátt upphitun við fyrir hina árlegu mótorhjólamessu sem verður annan í hvítasunnu, 20. maí, og er löngu búin að sanna ágæti sitt. „Þá yfirfyllist kirkjan og allir taka þátt af mikilli inn- lifun“. Sr. Gunnar segir að lagavalið í mótorhjólamessunni sé aldrei það sama. ,,Í fyrra vorum við með Led Zeppelin tónlist við texta sem ég hef samið og nú er undirbúningur fyrir mótorhjólames- suna í fullum gangi“ segir sr. Gunnar sem sjálfur er mikill mótorhjólamaður og ekur um á öflugum vélfáki, Yamaha Wild Star 1600 cc hvorki meira né minna. „Það er jú ansi öflugt hjól“ segir hann aðspurður. „ Og við komum víðar við í helgi- haldinu“ segir sr. Gunnar og nefnir að á sunnudaginn verði vorhátíð sunnudagaskólans, síðasta samvera fyrir sumarfrí, og þá verður ekki hefðubundin messa heldur verða allir með í samverunni með börnunum og pylsupartí að lokinni helgistund. „Síðan verð ég að nefna fornbíla- messuna á Uppstigningadag, þann 9. maí, en þá koma félagar úr Forn- bílaklúbbnum ásamt vonandi fleiri klúbbum sem hafa sérstakan áhuga á þeim menningararfi þjóðarinnar sem varðveittur er í gömlum bílum“. Bílarnir verða til sýnis á bílaplani kirkjunnar og Fornbílaklúbburinn býður upp á gamaldags kirkjukaffi eftir messuna. Einar Clausen syngur að venju „Áfram veginn í vagninum ek ég“. Svona er hægt að sameina áhugamálin kirkjustarfinu“ segir Sr. Gunnar glaðbeittur. Aðspurður um viðbrögð fólks við að sóknarpresturinn fari svo óhefð- bundnar leiðir í helgihaldinu segir hann þetta mælast vel fyrir. „Við erum að reyna að höfða til sem flestra og það er okkar prestanna hlutverk, að fá fólkið í kirkjuna og boða kristið orð“ segir hann galvaskur og greini- legt að þarna fer maður með margar hugmyndir um hvað hægt sé að gera til að fá fólk til að taka meiri þátt í kirkjustarfinu. Nánar um dagskrá helgihalds í kirkjunni er að finna á www.digraneskirkja.is n Undirfötin fjársjóður sem eykur á munúð Erna Skipholti 3 Sími: 552 0775 www.erna.is Fyrir orrustuna um Milvian brú yfir Tíberfljót, 28. október 312 fyrir réttum 1700 árum, sá Konstantín mikli teikn krossins á himni og orðin “in hoc signo vinces” “Undir þessu tákni muntu sigra”. Árið 313 er Konstantín var orðinn keisari veitti hann kristnum mönnum trúfrelsi eftir langvarandi ofsóknir. Menin eru smíðuð á Íslandi eftir hugmynd Dr Gunnars Jónssonar og fást silfurhúðuð á 3.500,- úr silfri: 5.900,- (með demanti: 11.500,-) og úr 14k gulli á 49.500,- (með demanti: 55.000,-). IN HOC SIGNO VINCES (Undir þessu tákni muntu sigra) „Folsom Prison Blues“ e. Johnny Cash í þýðingu Sr. Gunnars Sigurjónssonar: „Ég heyri lestar hljóminn“ Ég heyri lestar hljóminn sem kemur eftir mér Ég heyri óm af öllu sem enginn annar sér. Endastöð er engin og eilíft ferðalag Þá grár ég er og genginn þann Guðsvolaða dag. Þegar allt er þá á enda ævi dagatal. Þá á ég þessa einu ósk þá hún er hér að Guð þá fái fundið fyrirheit í mér. Þá færist lestin framhjá og frelsarann fæ sjá. Soooey! Ég lifði mínu lífi við lesti, böl og fíkn Og nú er lestin nálgast er náð Guð ein mín líkn. Ég bænar bið og vona er bærist lestin nær Að berist hún í burtu svo berist undan fjær. Ég heyri klukkna hljóminn Ég heyri´ í drottins hjörð Ég heyri engla óminn enduróma‘ um jörð Lestin fer þá framhjá ferðin hefst hjá mér Hjá drottni fæ að dvelja daglega hjá þér.

x

Kópavogur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.