Selfoss - 24.01.2013, Blaðsíða 14

Selfoss - 24.01.2013, Blaðsíða 14
14 24. janúar 2013 Hér aðs skjala safn Ár nes-inga hef ur á und an förn-um ár um feng ið fjölda merkra ljós mynda safna. Hér aðs- skjala safn ið fékk ásamt Hér aðs- skjala safni Aust firð inga og Hér- aðs skjala safni Skag firð inga styrk frá Mennta og Menn ing ar mála ráðu- neyti til at vinnu skap andi verk efn is tengd inns könn un og skrán ingu á ljós mynd um á söfn un um þrem ur. Sveit ar fé lag ið Ár borg og Menn- ing ar ráð Suð ur lands styrktu svo sér stak lega verk efn ið hér í sýsl unni. Á hér aðs skjala safn inu eru nú um 125.000 ljós mynd ir. Í tengsl um við verk efn ið er bú ið að skanna inn tæp lega 30.000 ljós mynd ir og skrá um helm ing þeirra. Mik ið vinna ligg ur að baki skrán ingu á ljós mynd um og oft á tíð um er ekki hægt að greina ná kvæm lega frá við burð um eða þekkja þá ein stak linga sem eru á mynd un um. Mik il vægt er að geta leit að til al menn ing og fá að stoð við skrán ingu á ljós mynd um. Birt- ing ljós mynda með þess um hætti er því í raun sam vinnu verk efni íbúa hér aðs ins og skjala safns ins. Þekk ir Þú fólk ið? Nú er hann enn á norðan Síðasti dagur á mörsugi er í dag fimmtudaginn 24. janúar – hálfnaður er vetur og á morgun birtist fyrsti þorradagur, bónda- dagurinn, en gömlu mánuðirn- ir hófust alltaf á sama vikudegi. Fimmti vetrarmánuðurinn góa hefst á sunnudegi en laugardagur- inn, síðasti dagur í þorra, er gjarn- an kallaður þorraþræll og minnir á að ætíð skyldi þrællinn ganga eftir húsbónda sínum. Frægasta kvæð- ið um þorra var eftir Fjallaskáldið Kristján Jónsson og heitir Þorra- þrællinn 1866. Nú er hann enn á norðan næðir kuldaél yfir móa og mel myrkt sem hel. Þetta vísubrot lætur Krist- ján bóndann í kvæðinu segja við minnkandi heystabba sinn á harðindavetri og verður sungið víða á þorrablótum á næstu vikum. Kristján var kominn á þrítugs- aldur þegar hann komst í Latínu- skólann þar sem hann myndaði skáldaklíku með Valdimar Briem, Jóni Ólafssyni og fleiri skólabræðr- um, en Sigurður málari var fjár- haldsmaður hans. Hann flosnaði upp úr skóla 1868 og lauk ævinni ári síðar austur í Vopnafirði þang- að sem hann hafði ráðið sig sem barnakennara. Vilhjálmur oss vinarkveðjur vandað hefur viðmótsblíður var sem refur Vopnafjarðar gáttaþefur. Þetta svar fékk þingmaður úr Vopnafirði frá 17 ára strák í kaupstaðarferð, Kristjáni sem þá bjó á Hólsfjöllum og átti enn nokkur ár í að hleypa heimdrag- anum. Hann uppskar mikinn ljóðaarf á skömmu æviskeiði eins og fleiri íslensk skáld. Ljóð hans voru mörg full af lífsleiða og þjáningu en saga er sögð af þessum fáskiptna manni í brúð- kaupsveislu austur á Fjöllum á æskuárum hans. Brúðhjónunum seinkaði svo skáldið steig fram á mitt gólf og lék í bundnu og óbundnu uns fólkið grét af hlátri. Þegar brúðhjónin mættu lét hann sig hverfa og þótti öllum sem veislan væri búin þegar hún hófst. Matthías Viðar Sæmunds- son íslenskufræðingur hefur gert merka bók af ljóðunum og ævi skáldsins og þessi pistill er unn- inn úr því efni. Ingi Heiðmar jónsson úr Harð Haus (2) Hér er mynd úr smiðju Tómasar jónssonar af ungum og fræknum fótboltaköppum á sjöunda áratugnum ásamt Gylfa Þ. Gíslasyn þjálfara. Við þekkjum mörg andlit á myndinni en ekki öll. Þeir sem þekkja drengina eru hvattir til að hafa samband við héraðsskjalasafnið. Þá þökkum við fyrir aðstoð við að greina slökkviliðsmenn á mynd sem birtist í síðasta tölublaði. Þá mynd tók Sigurður jónsson. „Þurr skyldi þorri“ -Ekki er víst að svo verði er Selfyss- ingar og fleiri munu blóta þorra á laugardag, 26. janúar. Heyrst hefur að súrsaður matur sé ekki lengur í uppáhaldi, meira um hangikjöt og uppstúf. Það er sem fyrr Kjartan Björnsson sem fer fyrir þorrablóts- fólkinu og mikið stendur til. Smáfréttir SELFOSS-SUÐURLAND Auglýsingasími: 578 1190

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.