Selfoss - 24.01.2013, Page 2

Selfoss - 24.01.2013, Page 2
2 24. janúar 2013 Bætum lífskjörin Ég gef kost á mér í annað sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem haldið verður þann 26. janúar næstkom- andi. Ég hvet alla sjálfstæðismenn í kjördæminu til að mæta á kjörstað og velja fólk til að skipa sterkan lista Sjálfstæðisflokksins fyrir kom- andi alþingiskosningar. Það er von mín að sem flestir af þeim lista nái kjöri til Alþingis og fái tækifæri til að stuðla að bættum lífskjörum í landinu. Þingmenn Suðurkjördæmis þurfa að gæta hagsmuna fólksins í kjördæminu og berjast fyrir því að kjördæmið beri ekki skarðan hlut frá borði þegar kemur að ráðstöfun fjármagns svo sem til heilsugæslu, löggæslu og samgöngumála. Íbúar Suðurkjördæmis þekkja að niður- skurður á fjárveitingum til þessara málaflokka hefur verið mikill. Fjármálakerfið er of stórt Eftir tímabil sem einkennst hefur af skattahækkunum, pólitískum óstöð- ugleika og efnahagslegri stöðnun, bíða erfið og mikilvæg verkefni næstu ríkisstjórnar. Vinna þarf markvisst að því að bæta lífskjör. Á Íslandi býr duglegt fólk og ekki skortir tækifæri til uppbyggingar. Í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur þó vonleysi og svartsýni á framtíðina náð að grafa um sig. Of margir eru farnir að trúa því að Íslendingar muni um ókomna framtíð fá minna greitt fyrir störf sín en fólk í nágrannalöndunum. Á næstu árum verða laun fólksins í landinu að hækka verulega og mun meira en verðbólgan í landinu. Á næsta kjörtímabili þarf að lækka skatta og auka tiltrú fjárfesta á að hagkvæmt sé að stofna og reka stór og smá fyrirtæki á Íslandi. Aukin fjárfesting mun stuðla að frekari hag- vexti sem leiða mun til hærri launa og bættra lífskjara. Við Íslendingar þurfum að nýta starfskrafta okkar og nátturuauðlindir á sem hagkvæm- astan hátt. Á næsta kjörtímabili þarf að losa fjármagnshöft og nauðsyn- legt er að vanda vel til verka við undirbúning þess. Fjármálakerfið er of stórt og kostnaðarsamt sem leiðir til þess að vextir eru of háir, hærri en víðast hvar annars staðar. Auðvelda þarf fjármögnun til húsnæðiskaupa, t.d. með því að afnema stimpilgjöld af öllum íbúðarlánum og stuðla að því að endurfjármögnun óhagstæðra lána sé auðveldari. Ef 40 ára hús- næðislán með 5% vöxtum er skipt út fyrir lán með 3% vöxtum lækka greiðslur lánsins um 26%. Starfskraftar mínir myndu nýtast vel á Alþingi Ég tel að reynsla mín og þekking muni nýtast vel við að gæta hags- muna íbúa Suðurkjördæmis og vinna að bættum hag þeirra og þjóðarinnar á Alþingi. Ég er fædd- ur og uppalinn í Hveragerði. Ég gekk í Fjölbrautaskóla Suðurlands og útskrifaðist þaðan árið 1993. Ég hef lokið hagfræðiprófi frá Háskóla Íslands og meistara- og doktorsprófi í hagfræði frá Kaliforníuháskólanum í Santa Barbara. Að loknu doktorsprófi starfaði ég við háskólann í Reykjavík, hjá ráðgjafafyrirtækinu IFS greiningu og Fjármálaeftirlitinu. Frá byrjun júní 2012 hef ég starfað á Fjármála- stöðugleikasviði Seðlabanka Íslands. Ég sit í ráðherraskipaðri nefnd, til- nefndur af Seðlabanka Íslands, sem vinnur að endurskoðun á íslenskri fjármálalöggjöf. Í störfum mínum hin síðustu ár hef ég fengið góða innsýn í störf Alþingis og stjórnsýsl- unnar á Íslandi, innsýn sem gerir mig sannfærðan um að starfskraft- ar mínir myndu nýtast mjög vel á Alþingi. Þjóðin er eðlilega vonsvikin vegna brostinna loforða ráðamanna Fyrir meira en fjórum árum hrundi íslenska bankakerfið og hagkerfið fór á hliðina. Í kjölfarið var mynduð ríkisstjórn sem talaði fyrir aukinni fagmennsku, gagnsæi og samvinnu. Þegar maður lítur yfir síðustu ár blasir við að engin alvara hefur verið að baki slíku tali og þjóðin er eðlilega vonsvikin vegna brostinna loforða ráðamanna. Þó ég hafi verið flokks- bundinn sjálfstæðismaður í yfir 20 ár, hef ég ekki áður tekið virkan þátt í stjórnmálum. Ég óska þó eftir því að sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi og síðan kjósendur í Suðurkjördæmi gefi mér umboð til að starfa á Al- þingi í þágu þeirra næstu fjögur ár. Ég hef ekki alið lengi með mér þann draum að verða stjórnmálamaður en áhyggjur af efnahags- og atvinnu- málum þjóðarinnar, skuldamálum heimila og reynsla af ófaglegum vinnubrögðum sitjandi ríkisstjórnar knýja mig áfram til að sækjast eftir sæti á Alþingi. Næstu ár gætu ráðið úrslitum um hvort að Ísland kom- ist aftur í hóp þeirra Evrópuríkja þar sem lífskjör eru hvað best eða hvort að lífskjör hér á landi haldi áfram að versna í samanburði við þær þjóðir sem við viljum bera okk- ur saman við. Ég óska eftir því að sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi velji mig í annað sætið í komandi prófkjöri og gefi mér tækifæri til að vinna á Alþingi við að stuðla að bættum kjörum íbúa kjördæmisins og þjóðarinnar í heild. Oddgeir Ágúst Ottesen, hagfræðingur Jörðin rifnaði með látum „Miskunn Guðs er yfir öllum Eyjamönnum,“ segir Ólafur Gränz trésmiður og útgefandi með meiru sem varð fyrstur manna ásamt Hjalla á Vegamótum var við gosið 1973 á Heimaey. Þeir fóst- bræður voru á göngu austan til á Heimaey og áttu ekki von á því að jörð rifnaði beint fyrir framan þá. Þess er nú minnst að 40 ár eru liðin frá upphafi gossins. Við settum okkur í samband við Óla ... -Hvað er mér efst í huga við þessi tímamót fjörtíu árum eftir Eldgos á Heimaey ?? Efst í huga mér er þegar við fóst- bræður ég og Hjalli á Vegamótum stóðum skammt frá sprungunni í svarta myrkri og jörðin rifnaði með látum og eldur og eimyrja spraut- uðust uppí loftið með drunum um tvö hundruð metra framan við okk- ur þannig að nærumhverfið lýst- ist upp og við fundum hitann frá gosstöðvunum. Einnig finnst mér stórkostlegt að sjá miskunn Guðs og varðveislu yfir öllum Eyjamönn- um. Móttökurnar í Reykjavík voru ævintýri líkastar og allur sá kærleik- ur og velvild sem við fundum við komuna í þangað. Sigfús J. Johnsen var búinn að útvega mér og minni fjölskyldu bráðabirgðahúsnæði um einni klukkustund eftir að ég kom með strætó til Reykjavíkur frá Þorláks- höfn eftir sjóferð okkar frá Vest- mannaeyjum um nóttina. Ég sendi Eyjamönnum og vinum kærleikskveðjur með þökkum fyrir ljúfa samferð. Mér finnst lífshlaup mitt vera samfellt ævintýri í faðmi yndislegr- ar fjölskyldu og vina. Með vinsemd og bestu óskum. Ólafur Gränz Oddgeir Ágúst Ottesen Ég hef ekki alið lengi með mér þann draum að verða stjórnmálamaður en áhyggj- ur af efnahags- og atvinnu- málum þjóðarinnar,skulda- málum heimila og reynsla af ófaglegum vinnubrögðum sitjandi ríkisstjórnar knýja migáfram til að sækjast eftir sæti á Alþingi. Þessi er tekin á fyrirlestri sem að ég hélt í Seðlabanka Íslands um lærdóm af fjármálahruninu og fyrirhugaðar breytingar á fjármálalöggjöfinni. Munum taka rammaáætlun upp segir Sigurður Ingi Jóhannsson oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. „Sú rammaáætlun sem samþykkt var 14 janúar síðastliðinn - var rammaáætlun ríkisstjórnar VG og Samfylkingar. Eftir áratuga vinnu vísindamanna og miklar væntingar um að niðurstaðan yrði sátt milli ólikra sjónarmiða verndar og nýt- ingar ákvað ríkisstjórnin að hleypa málinu upp með öfgapólitík. Átak- anlegt var að horfa uppá þingmenn stjórnarflokkanna vera múlbundna í atkvæðagreiðslunni og greiða at- kvæði gegn góðum atvinnuupp- byggingarmálum sem þeir áður höfðu sagt sig hlynnta. Við Fram- sóknarmenn munum taka þessa pólitísku rammaáætlun upp og reyna að færa hana aftur til þess ferils sem sátt var um“. Sigurður Ingi hlaut rússneska kosningu í 1. sæti á lista Fram- sóknarflokksins fyrir alþingiskosn- ingar í vor. Viðtal við Sigurð Inga mun brtast í heild sinni í næsta blaði sem kemur út 7. febrúar. Í því kemur m.a. fram að hann vill hætta viðræðum um aðild að ESB ... „og taka þær aldrei upp aftur án þess að spyrja þjóðina fyrst í þjóðar- atkvæðagreiðslu.“ Sigurður Ingi jóhannsson Á meðfylgjandi mynd eru góðir vinir í Eyjum. Magnús jónasson og Elín Magnúsdóttir dóttir hans. Ólafur Gränz og fjölskylda bjuggu í jómsborg, en það fór undir hraun. Það hét áður Ottahús og Beykishús. nafnið jómsborg kemur frá borg þar sem norrænir víkingar áttu sér vígi og telja flestir fræðimenn að jómsborg hafi verið einhvers staðar á eyjunni Wolin, við norðvesturhorn Póllands. Íbúar borgarinnar voru nefndir jómsvíkingar og heitir jómsvíkinga saga eftir þeim. Myndin af síðunni www.heimaslod.is

x

Selfoss

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.