Selfoss - 05.12.2013, Page 2
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Flott jólaföt
fyrir flottar konur
St. 38-58
2 5. desember 2013
Byggingarvísitalan hækkað um 18,5% en heitavatnið um 38% á sama tíma.
Selfossveitum gert að endurskoða boðaðar hækkanir
Umræða hefur verið um hækkun á heitu vatni í Árborg. Bæjarráð sam-
þykkti í fyrri viku að beina því til
framkvæmda- og veitustjórnar að
farið verði yfir forsendur gjaldskrár-
hækkana Selfossveitna. Í aðdraganda
kjarasamninga hafa ASÍ og SA lagt
áherslur á að sveitarfélög og aðrir
aðilar fari sér hægt í gjaldskrárhækk-
unum. Veitustjórn er ætlað að ganga
út frá sömu sjónarmiðum.
Hækkanir á heitu vatni í Árborg
hafa verið 38% á árunum 2011-2013
en hækkun vísitölu byggingarkosnt-
aðar frá 1. janúar 2011 til 1. desem-
ber 2013 hafa verið ríflega helmingi
lægri eða 18,5%.
Á fundi framkvæmda- og veitu-
stjórnar lagði meirihlutinn til að
gjaldskrá Selfossveitna hækkaði um
5%. Fulltrúar Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna lögðu þá fram bókun
og andmæltu hækkuninni. Segja þeir
hækkunina verulega umfram það sem
stjórn framkvæmda- og veitustjórnar
hafi áður samþykkt. Myndi hækkun-
in hafa í för með sér rúma 40% hækk-
un á heitu vatni á kjörtímabilinu.
Illa dulin skattahækkun
eða hvað?
Þá benda fulltrúarnir á að á fundi
stjórnar þann 9. október síðastliðinn
hafi verið ákveðið að hækka gjald-
skrána um 3,3%. „Sú ákvörðun var
í samræmi við ákvörðun stjórnar frá
36. fundi 20. júní um að gjaldskráin
fylgi almennum verðlagshækkunum.
Sú gjaldskrárhækkun sem hér er lögð
til er verulega hærri en sú samþykkt
heimilar og spár um almenna verð-
lagsþróun fyrir árið 2014.
Að mati undirritaðra er þessi aukna
hækkun ekkert annað en illa dulin
skattahækkun á íbúa Sveitarfélags-
ins Árborgar, dulbúin sem hækkun
gjaldskrár á heitu vatni.
Undirritaðir benda á að ef þessi
tillaga verður samþykkt hefur verð á
heitu vatni í sveitarfélaginu hækkað
um rúm 43% á kjörtímabilinu sem
er langt umfram launaþróun helstu
launþegahópa. Ákvörðun um slíka
stórhækkun á lífsnauðsynjunum á
öll heimili í sveitarfélaginu er tek-
in án tillits til tekna og stöðu. Því
mótmæla undirritaðir nefndarmenn
þessari auknu hækkun eindregið. „
Eggert Valur Guðmundsson,
nefndarmaður S- lista.
Andrés Rúnar Ingason, nefndar-
maður V- lista.
Fulltrúar D-lista skýrðu
breytingarnar í bókun: Breyting á
vaktafyrirkomulagi og hækkun að-
fanga umfram verðbólgu sem ekki
lágu fyrir á fundi þann 9. október
2013 skýrir breytingu frá því sem
framkvæmda- og veitustjórn hafði
áður samþykkt. Sem dæmi þá hef-
ur orðið umtalsverð hækkun á raf-
magni. Einnig voru endurnýjanir
á mælum færðar úr fjárfestingum í
rekstur í bókhaldi sviðsins. Breytingar
á forsendum á fyrri samþykkt úr
3.3% í 5.0% , þegar fyrri gjaldskrár-
breyting var ákveðin, þýðir um 150
kr. hækkun á meðalheimili á mánuði
í sveitarfélaginu.
Það er skylda okkar sem kjörinna
fulltrúa að reka veiturnar ekki með
tapi.
Gunnar Egilsson, formaður, Ingvi
Rafn Sigurðsson Tómas Ellert Tóm-
asson
Tillagan var síðan samþykkt með
þremur atkvæðum fulltrúa D-lista.
Fulltrúar S-lista og V-lista greiddu
atkvæði á móti.
Bæjarráð hefur sem sagt gert
framkvæmda- og veitunefndinni að
endurskoða þessa ákvörðun. Virðist
sem bæjarstjórn hafi verið skikkuð til
að hverfa frá fyrirhuguðum hækkun-
um. Áður á skóla- og frístundasviði
og nú þurfa veitumeistarar að reikna
upp á nýtt. ÞHH
Matseðill
með
hátíðlegu
yfirbragði
Hendur í höfn í Þorláks-höfn skartar tónleikum og upplestri á laugar-
daginn. Guðni Ágústsson kynn-
ir nýútkomna bók sína kl.19.00
og klukkustund síðar verða þau
Unnur Birna Björnsdóttir og
Jóhann Vignir Vilbergsson með
tónleika á ljúfum nótum.
Að vanda verður hægt að panta
mat en allir eru velkomnir hvort
sem þeir vilja borða eður ei.
„Matseðillinn verður með há-
tíðlegu yfirbragði og er kaffihúsið
okkar komið í sannkallaðan jóla-
búning og því er óhætt að lofa
ljúfri og notalegri stemningu,“
segir Dagný Magnúsdóttir.
Þjórsárskóli skreyttur og
nemendur komnir í jólaskap
Nemendur í 5. -7. bekk í Þjórs-árskóla eru komnir í jólaskap.
Síðasta föstudag voru gluggarnir í
skólanum skreyttir með fallegum
myndum, sett voru ljós á tré úti á
skólalóðinni og jólatréð var skreytt.
Í heimilisfræði er síðan verið að baka
smákökur sem boðið verður upp á í
skólanum, seinustu vikuna fyrir jól.
Jóladjass Kristjönu Stefáns
endurvakinn í Tryggvaskála
Kvartett Kristjönu Stefáns-dóttur slær gamla takta og endurvekur árlega
jóladjasstónleika á Selfossi sem settu
skemmtilegan blæ á jólaundirbúning
margra sunnlendingar á árum áður.
Að þessu sinni verða tónleikarnir í
Tryggvaskála 19. desember og hefjast
kl.21 að staðartíma.
Árið 1996 kom út hljómdiskurinn
„Ég verð heima um jólin“ sem hljó-
mað hefur á heimilum fjölmargra
landsmanna á undanförnum árum.
Eins og áður, skipa kvartettinn,
auk Kristjönu, þeir Gunnar Jóns-
son á trommur, Smári Kristjánsson
á bassa og Vignir Þór Stefánsson á
píanó.
stokkeyrarkirkja á aðventunni 2013. ÞHH
Jólaglugginn á
Konubókastofunni
Fyrsti jólaglugginn í Árborg var opnaður með athöfn 1. desember – sem jafnframt
var fyrsti sunnudagur í aðventu. Á
hverjum degi fram að jólum verður
gluggi opnaður í sveitarfélaginu. Í
hverjum glugga er að finna bókstafi
sem saman mynda setningu eða orð.