Selfoss - 05.12.2013, Page 9

Selfoss - 05.12.2013, Page 9
95. desember 2013 Jólaskreytingardagur Það ríkti mikill stemning á skreytingardegi Vallaskóla sl. föstudag. Aðventan framundan. Allt var fært í búning. Meira að segja framhurðirnar á mörgum stofum. Guðbjartur skóla- stjóri tók lagið með krökkunum í hverri kennslustofu. Gleði og eftir- vætning úr hverju andliti. Mörg í rauðum búningum í tilefni dagsins. Námskeið á vegum Kötlu jarðvangs 8. desember Aðventan á árum áður Fræðslunetið heldur námskeið í Skógasafni nk. sunnudag þar sem fjallað verður um uppruna jólanna, gamla íslenska jólasiði og jólasveina. Farið er í undirbúning jóla og aðventu áður fyrr, einnig verða sýnd dæmi um jólaskraut og jólakort og er gestum boðið að föndra einfalt jólaskraut. Á eftir skunda allir yfir í Skógakaffi þar sem fólk getur keypt sér hressingu og átt saman notalega stund. Nánari upplýsingar í síma 857 0634 (Rannveig) eða á netfangið rannveig@katlageopark.is. Skráning hjá Steinunni hjá Fræðslunetinu í síma 560 2038 eða steinunnosk@ fraedslunet.is Samantekt og næstu skref Samantekt um skilaboð íbúa-þings í Skaftárhreppi, sem haldið var í október, verða brátt birtar, segir á heimasíðu sveitarfélagins. Verkefnisstjórn hefur fundað og farið yfir þau mál sem rædd voru á þinginu og velt upp leiðum til að fylgja hinum ýmsu málum eftir. Þar er til skoðunar hvað aðstand- endur verkefnisins, Byggðastofn- un, Skaftárhreppur og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, geta gert en auk þess snúa mörg verkefni að heimamönnum og frumkvöðlum. Verkefnisstjórn mun jafnframt koma niðurstöðum á framfæri við stjórn- völd, stofnanir og aðra aðila eftir því sem við á. Næsta skref í verkefninu er að haldinn verður opinn eftirfylgni- fundur á Kirkjubæjarklaustri eftir áramót. Að minsta kosti í 2 mílna fjarlægð Í sökinni: réttvísin, gegn Páli Páls- syni og Guðrúnu Gísladóttur. (Upp kveðinn 26. okt. 1857) „Í máli þessu eru hin ákærðu, söðlasmiðr Pál Pálssom og vinnu- kona hans Guðrún Gísladóttir, við aukarétt Rangárvallasýslu, þann 25. júní f. á., dæmd, hinn fyr nefndi í 10 og hin síðarnefnda í 8 vandarhagga refsingu, út af óhlýðni þeirra við úrskurð suðramtsins, frá 31. marz 1852 er skyldar þau, vegna hneixl- arlegrar sambúðar þeirra, til að skilja samvistir, þannig, að Guð- rúun Gísladóttir, innan 15. maí s. á., tæki sér aðsetr í annari sókn, að minsta kosti í 2 mílna fjarlægð frá heimili Páls Pálssonar. (Þjóðólfur 5. 12. 1857) Með fengnu leyfi herra amt- mannsins yfir suðuramtinu heldur Lúðraþeytara-fjelagið í Reykjavík litla Tombólu, í Good-Templara-húsinu hjer í bæn- um. Ágóðanum verður varið til þess að borga skuld, sem hvílir á lúðrum þeim, sem bærinn á. Til skemmtunar verða þeyttir lúðrar. Veitingar frá Hermes. Reykjavík 5. desember 1887. Lúðraþeytara-fjelagið í Reykjavík. 5. DESEMBER: Með greinarstúfum sem hér birtast bregðum við á leik. Leitað er fanga í gömlum blöðum og tímaritum. Útgangspunkturinn verður dagsetning viðkomandi útgáfublaðs. Að þessu sinni er útgáfudagurinn 5. desember. Efnið sem hér birtist felur í sér dagsetninguna 5. desember. Atburðir eru látnir ráðast af því að þessi dagsetning finnst í textanum. Þeir geta verið mis forvitnilegir, en við látum dagsetninguna stjórna ferðinni. Eitt stórt jólahús Það þurfti næstum því himnastiga til að koma skreytingunum fyrir á glugga Sunnulækjarskóla sl. föstudag. Skólinn býður upp á að vera eitt stórt jólahús. Piparkökuhúsin máttu sín lítils í samanburði. Eða voru þau ekki líka falleg og biðu aðventunnar. Fullt út úr dyrum hjá VISS Það var fullt út úr dyrum við opnun jólamarkaðar VISS á Selfossi sl. föstudag. Glæsi- legar vörur á boðstólum og allt rauk út – eða næstum því allt. Kveikt var á jólatrénu sem Rótarýklúbburinn á Selfossi gaf að venju. Kaffihúsa- stemning eins og venjulega á þessum skemmtilega degi. Jólakveðjur fylgja frá VISS-fólkinu.

x

Selfoss

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.