Selfoss - 05.12.2013, Page 10
5. desember 201310
Jóra sigraði glæsilega í kappræðu-
keppni POWERtalk á Íslandi
POWERtalk eru alheims-samtök sem leggja áherslu á einstaklingsmiðaða þjálfun í
tjáningu. POWERtalk virkjar fólk
til þátttöku í umræðum, býður
leiðtogaþjálfun og eykur færni við
kynningar og fundarstjórnun.
Fólk fær margskonar þjálfun
í POWERtalk, meðal annars er
haldin kappræðukeppni á vegum
samtakanna. Þetta árið tóku fjórar
POWERtalk deildir þátt og svo fór
að lokum að Jórur sigruðu.
Ekki verður fundað í desember en
Jórur funda í Selinu við Engjaveg 1.
og 3. mánudag í hverjum mánuði
og eru allir velkomnir sem gestir á
fundi.
Sóknaráætlun
Suðurlands
Vaxtarsamningur Suðurlands og SASS úthluta
50 milljónum króna til 39 spennandi verkefna á Suðurlandi.
„Þetta er mikil viðurkenning á því að ég er að gera eitthvað rétt með góðu fólki, segir Siggeir
Ingólfsson ferðafrömuður á Eyrar-
bakka. Verkefni Siggeirs og félaga
Þróun heilsárs ferðamennsku á Stað
hlaut 500 þúsund króna styrk að
þessu sinni. „Það sem er framundan
er að markaðsetja Eyrarbakka sem
náttúruperlu allt árið. Þessi gamla
götumynd í þessu litla þorpi við
Atlandshafið er einstakt á heims-
vísu. Þessu vil ég koma á framfæri,“
segir Siggeir.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
hafa úthlutað styrkjum sem er ætl-
að að efla atvinnulíf og nýsköpun.
Þetta var síðari úthlutun á árinu.
Að þessu sinni skipta 39 verkefni
á Suðurlandi með sér 50 milljón-
um króna. Þaðer forvitnilegt að sjá
hversu mikil sköpun á sér stað – um
allt Suðurland. Við munum fjalla
nánar um úthlutunina og einstök
verkefni í blaðinu.
Verkefni og styrkþegar:
Stofnun ferðamálaklasa í Rangárþingi Ytra og Ásahreppi f.h. óstofnaðs klasa.
Reynir Friðriksson 2.000.000
Stofnun klasa um bókabæinn austan fjalls. Undirbúningsfélag um bókabæinn á
Suðurlandi 1.000.000
Vatnajökull Photo - Markaðssetning ljósmyndaferðaþjónustu. Rannsóknarsetrið á
Hornafirði 1.000.000
Markaðsátak Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja.
Ferðamálasamtök Vestmannaeyja 2.750.000
Snjallleiðsagnir í Skaftárhreppi. Friður og frumkraftar 2.050.000
Sóknarfæri við Sjóndeildarhringinn. Kötlusetur ses 1.500.000
Fuglar á Suðurlandi f.h. Klasa um fuglatengda ferðaþjónustu.
Guðríður E. Geirsdóttir 1.500.000
Ferðamálin í Hveragerði. Ferðamálasamtök Hveragerðis 1.000.000
Gagnvirk miðlun. Sigva Media 1.000.000
Þórsmörk Winter Adventure. Stjörnunótt ehf 500.000
Vetrarnýting á hálendi Íslands. Snow Kite South Iceland Adventure 1.000.000
Matarupplifun í Uppsveitum. Hótel Geysir, Friðheimar, Efsti-Dalur II og Bragginn
Birtingaholti 1.000.000
Markaðssetning- haust og vetrardýrð á fjöllum. Veiðifélag
Skaftártungumanna/Hálendismiðstöðin Hólaskjóli 500.000
Þróun heilsárs ferðamennsku á Stað. Friðsæld ehf 500.000
Orgelsmiðjan rær á ný mið. Hagleikssmiðja Björgvin Tómasson orgelsmiður sf 1.000.000
Skoðunarferð um fiskvinnslu. Auðbjörg ehf 600.000
Markaðssetning fjárhundasýningar í Gröf. Jón Geir Ólafsson 225.000
Fjöruveiði. MudShark.is Magnús H. Jóhannsson 400.000
Eldfellspenninn. Viktor Þór Reynisson 250.000
Eldfjöllin heilla. Guðrún Ósk Jóhannsdóttir 125.000
Hönnun og markaðsmál - sótt á ný mið. Gróðrarstöðin Ártangi ehf 500.000
247golf.net - Markaðssókn á nýja markaði. 24seven ehf 1.500.000
Markaðssókn í Noregi. Fagus ehf. 2.150.000
Icelandic Horse Expo - undirb. sölusýningar íslenska hestsins.
Háskólafélag Suðurlands 2.000.000
Markaðssókn á höfuðborgarsv.- Hornafjarðar heitreyktur makríll. Sólsker ehf. 600.000
Vöruþróun afurða úr héraði. Fjallkonan sælkerahús 500.000
Humarklær - Nýsköpun í sjávarútvegi. Haukur Ingi Einarsson 500.000
Shell-Off Lobster Meat / Humar úr skelinni. Páll Marvin Jósson 650.000
Heimavinnsla á fetaosti. Gottsveinn Eggertsson 400.000
Heimaframleiðsla og sala sauðfjárafurða í Skaftárhreppi. Erlendur Björnsson 4.000.000
Heilsuréttir fjölskyldunnar - vöruþróun tilbúinna rétta. S.B. Heilsa ehf. 1.000.000
M-Hirzla / vöruhönnunn. Emilía Borgþórsdóttir 700.000
Studio 7Eyjar. Black Sand og Diza Ásdís Loftsdóttir 400.000
Lifandi Bú Búland. Guðný Halla Gunnlaugsdóttir 200.000
Njálurefill - hönnun, þróun og markaðssetning nýrra afurða. Fjallasaum ehf. 1.000.000
Ironman - fýsileikakönnun á þríþrautakeppni á Íslandi. Sigmundur Stefánsson f.h. óstofnaðs
áhugamannah. um verkefnið 1.000.000
Uppbygging rannsóknartengds framhaldsnáms. Rannsóknarmiðstöðin í
jarðskjálftaverkfræði á Selfossi og Háskólafélag Suðurlands 8.000.000
Nýting sóknarfæra í hágæðamálmsmíði með CNC stýrðum iðnv. Eyjablikk ehf 3.000.000
Markaðssókn og tímabundin ráðning starfsmanns. ÖB Brugghús ehf 2.000.000
„Það er framundan að markaðsetja
eyrarbakka sem náttúruperlu allt
árið,“ segir siggeir Ingólfsson ferða-
frömuður á eyrarbakka. Hann er
sannarlega frumkvöðull. Hér er hann
að tilkynna vinum sínum og félögum
meðal eyrarbakkastráka á Hrossa-
kjötssamkomu í Félagsheimilinu stað
á eyrarbakka að framtíðarstarfsemin
þar hafi fengið hálfa millj. kr. í styrk.
Fyrir hönd Jóru kepptu þær Vilborg eiríksdóttir, elín Finnbogadóttir og sigríður
Pálsdóttir. Liðstjóri var Anna Kristín Kjartansdóttir. elín varð einnig ræðumaður
dagsins og var hún vel að því komin.
Fellur frá
hækkunum
Bæjarráð Árborgar hef-ur samþykkt að gjöld í leik- og grunnskólum
hækki ekki milli áranna 2013
og 2014. Fyrr hafði meirihluti
bæjarstjórnar lagt til hækkan-
ir í fjárhagsáætlun fyrir árið
2014. Arna Ír bæjarfulltrúi
amfylkingarinnar hafði lagt til
í fræðslunefnd að horfið yrði
frá hækkunum og sveitarfélag-
ið tæki undir með samtökum
atvinnulífs, verkalýðshreyfingu
og fjármálaráðherra í aðdrganada
kjarasamninga.
Um er að ræða leikskólagjöld,
gjöld fyrir skólavistun, mat í
leikskóla, skóla og skólavistun.
Ennfremur beinir bæjarráð því
til framkvæmda- og veitustjórn-
ar að farið verði yfir forsendur
gjaldskrárhækkana Selfossveitna
út frá sömu sjónarmiðum.