Selfoss - 05.12.2013, Blaðsíða 12

Selfoss - 05.12.2013, Blaðsíða 12
Gastækin frá AGA og HARRIS hafa þjóna› Íslendingum um árabil G A S V Ö R U R • R A F S U ‹ U V Ö R U R • Ö R Y G G I S V Ö R U R • S L Í P I V Ö R U R BÍLDSHÖF‹A 14 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 7000 • WWW.GASTEC.IS OERLIKON er einn stærsti rafsu›uvíra- framlei›andi í Evrópu. Gæ›i og gott ver›. ALLT TIL MÁLMSUÐU OG MÁLMSKURÐAR KITin 1900 HF TIG KITin 320 MIG PEARL 180 MIG/MAG AÐEINS 10 KG Úrval rafsuðuvéla frá KUHTREIBER og GYS NEOPULSE 270 MIG Vöruval góð verslun í alfaraleið Ný tilboð vikulega Heimsendingarþjónusta Opið frá 7:30-19 virka daga og 10-19 um helgar 5. desember 201312 „Mesti sársaukinn er að baki“ „Það skal enginn stela því frá okk-ur að við náðum árangri,“ segir Steingrímur J Sigfússon. Ríkis- stjórnin var í skrúfstykki í Icesafe. En tíminn vann með okkur og undir lok- in vorum við ekki lengur ábyrgðarlaus vandræðagemlingur. Stjórnmálamenn hamast við að gera upp nánustu fortíð í ævisögum og eftirmálum. Hrunið er að baki segja sumir. Aðrir fullyrða að við siglum inn í vandrataða tíma. Þar sem frekari lausagangur mun einkenna mannlíf og efnahagslíf. Ekki fer á milli mála að þeim sem sátu við stjórnvölin hrun- tímann er enn refsað. Steingrímur J Sigfússon, fyrrum ráðherra og formað- ur VG hefur sérstakan skrásetjara fyrir sig í bókinni Steingrímur J, frá Hruni og heim, sem kom út fyrir skömmu. Hvers vegna er gömlu stórnar- flokkunum enn refsað? Steingrímur sagði á bókakynningu á Selfoss sl. laugardag að hann hefði lagt áherslu við sitt fólk í VG í upp- hafi stjórnarþátttöku í febrúar 2009 að það væri áhættusamur leiðangur í vændum. Annað var að „við koltöp- uðum umræðunni.“ Fólk vildi trúa því sem hentaði og kenndu ríkisstjórninni um allt. Og engu henni að þakka. Þá hafi stjórnarandstaðan verið einhver sú ósvífnasta sem setið hefur. Allt var eyðilagt sem lagt var upp með. Og Steingrímur telur upp fleiri atriði. Í fjórða lagi væri reynsla flestra annarra landa á einn og sama veg. Fólk vildi lausnir hér og nú. Það væri erfitt að vera hugsjónamaður við slíkar aðstæð- ur. Og nú væri unga fólkið til í að kjósa hvað sem er. Flokkarnir upplifi tilvistarkreppu. Vandræðagemlingur í bekknum Steingrímur fjallaði um frjálshyggjuna sem var við líði áratuginn og gott bet- ur fyrir hrun. Ástæðu hrunsins mætti rekja til stjórnlausrar ofþenslu þess tíma. Lengsti hluti bókarinnar fjallar um Icesavemálið. Steingrímur gerir upp sín mál. „Það skal enginn stela því frá okkur að við náðum árangri,“ segir Steingrímur. Lengst af hafi rík- isstjórnin verið í skrúfstykki sem ekki var þægilegt. Það var ekki hægt að segja frá viðkvæmum málum. Undir gagnrýninni hafi því ríkisstjórnin setið án þess að geta alltaf borið hönd fyrir höfuð sér. Slagur hafi verið við Nor- ræna fjárfestingarbankann og varð að verja ekki síst sveitarfélögin fyrir hót- unum bankans um að gjaldfella kröfur eða hækka vexti. Sú rimma hafi staðið yfir í tvö ár. Hann segist viss um að það hefði ekki orðið efnahagsleg reisn á Íslandi ef við hefðum hafnað öllum kröfum í Icesave í upphafi. Fljótlega hafi komið í ljós að Lanmdsbankinn myndi eiga inni fyrir kröfum Breta og Hollendinga. Tíminn hafi unnið með okkur og málstaðurinn orðið betri. „Andrúmsloftið breyttist, við vorum ekki lengur þessi úthrópaði ábyrgðarlausi vandræðagemlingur í bekknum sem við vorum fyrst eftir hrunið,“ hefur Björn Þór Sigbjörnsson skrásetjari eftir Steingrími. „Svona gerir maður ekki“ Á kynningarfundinum á Selfossi fór Steingrímur einnig yfir stöðu efnhags- mála. Ríkissjóður var í 216 milljarða króna halla árið 2008. Þar munaði langmestu um gjaldfallnar 190 millj- arða í Seðlabanka sem hafi á síðustu misserum fyrir hrun dælt peningum í bankana – og haldið því áfram allt fram að Hruni. Ríkisstjórnin sem tók við 1. febrúar 2009 taldi rétt að skipta um menn í brúnni - í Seðlabanka, í Fjármálaeftirliti og í ráðuneytum for- sætis og fjármála. Það hafi ekki verið hægðarleikur að koma Davíð Odds- syni úr stóli. Kallaði Davíð á Steingrím á sinn fund og tilkynnti honum að svona gerðu menn einfaldlega ekki við fyrrverandi forsætisráðherra. Dav- íð hafi m.a. beitt sér inni á þingi og þannig tafið mál. Í millitíðinn hafði Steingrímur hins vegar krækt í seðla- bankastjóra sem ætlað vara að sitja til bráðabirgða meðan ekki væri búið að auglýsa eftir nýjum. Eins og kunnugt er leitaði Steingrímur fanga í Noregi í gegnum norsku ríkisstjórnina. Kom hann til landsins með engum fyrvara - en vegna tafa á samþykktinni um ný lög um Seðlabanka Íslands (sem Davíð beitti sér gegn) mátti norski bankastjórinn hýma á hóteli í Reykja- vík og lét lítið fara fyrir sér í heila viku! „Mesti sársaukinn er að baki“ Bókakynningin á Selfossi fór fram sl. laugardag. 4 klst. voru í kynningu á aðgerðum ríkisstjórnar til að bæta hag heimilanna. Steingrímur færð- ist undan því að svara því hvað hann teldi felast í aðgerðarpakkanum. Ótt- aðist þó að áhrifin yrðu auðlegs eðlis, þ.e.a.s. hefðu í sér afleiðingar sem leiddu til meiri verðbólgu. Fólk fengi tímabundið meira milli handanna og neyslan myndi aukast í skjóli þess. Um loforðin fyrir kosningar sl. vor sagði hann fjölmiðla algjörlega hafa brugðist við að ganga á núverandi forystumenn stjórnarflokkanna og heimta skýr- ingar. Hefði álíka kosningabarátta og átti sér hjá Framsóknarflokknum hér á landi átt sér stað í Noregi hefði hún ekki lifað af viku. Fjölmiðlar hefðu aldrei látið menn komast upp með að lofa án skýringa. Frá Hruni og heim er 282 síður og að auki með aðgengilegri nafnaskrá. Bókin kemur út þegar hrunið er að sigla í þátíð. „Mesti sársaukinn er að baki,“ segir Steingrímur. ÞHH 25 börn á námskeiði í Fischersetrinu 25 börn hafa sótt skáknám-skeið í Fischersetrinu á Sel-foss sem lauk sl. laugardag. Helgi Ólafsson skólastjóri Skák- skóla Íslands hafði yfirumsjón með námskeiðinu og honum til aðstoðar var Björgvin Guð- mundsson frá Skákfélagi Selfoss og nágrennis. Þá komu gesta- kennararnir Björn Ívar Karlsson og Björn Þorfinnsson í heimsókn. Hugmyndin er að halda annað 10 skipta námsskeið eftir áramót og byrja þá fljótlega upp úr áramót- um, en það verður nánar auglýst síðar. Síðasta dag kennslunnar var haldið skákmót og hver þátttak- andi fékk viðurkenningarskjal og skákbók að gjöf frá Skáksam- bandi Íslands. Krakkarnir ásamt Helga Ólafssyni skólastjóra skákskóla Íslands og björvini Guðmundssyni frá skákfélagi selfoss og nágrennis. steingrímur J áritar bók sína á sel- fossi. ÞHH

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.