Reykjanes - 19.09.2013, Qupperneq 4

Reykjanes - 19.09.2013, Qupperneq 4
4 19. september 2013 www. fotspor.is Hressar Myllubakkakonur Kátir núverandi og fyrrverandi starfsmenn Myllubakkaskóla við setningu Ljósanætur. Hildur, Sigur-björg, Ásta, Óla Björk og Elsa. Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur: Lærum og leikum með hljóðin Bryndis Guðmundsdottir tal-meinafræðingur hjá Fræðslu-skrifstofu Reykjanesbæjar og Talþjálfun Reykjavíkur, hefur nýtt áralanga reynslu sina í starfi og þróað íslenskt efni fyrir börn, Lærum og leikum með hljóðin. Um er að ræða námsefni í fram- burði, orðaforða og hljóðkerfisvitund sem er notað í leik- og grunnskólum víða um allt land. Um heildstæða fram- leiðslu er að ræða með bókum, spilum, myndbandsefni, spila-hljóðamottum, límmiðum og fl. Efni Bryndísar er ætlað öllum barnafjölskyldum og fag- fólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Það er tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Bryndís hlaut tilnefningu fyrir Lærum og leikum með hljóðin til EUWIIN/KVENN viðurkenningar 2011 (European Womens Inventors and Innovation Network). Aðferðin Uppbygging Lærum og leikum með hljóðin tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og því hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Hægt er að byrja skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja. Þá má velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega án þess að fylgja röðinni með því að smella á táknmynd með vísan í hvert hljóð. Mmm…segir strákurinn sem fékk ís, Fff…fh… heyrist í reiðu kisunni o. s. frv. Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2. Nýung í hljóðaleiknum Það er mikilvægt að fylgjast vel með tækninni í útgáfu á vönduðu efni fyrir börn. Rannsóknir á mál-minni- hlutasamfélögum, eins og íslenskan vissulega er, sýna að þau tungumál eiga undir högg að sækja í hinum rafræna heimi. Bryndís afréð því að víkka útgáfuna og hefur unnið nýtt íslenskt smáforrit/ App sem byggir á sömu aðferðafræði og allt hennar námsefni. Á lifandi og skemmtilegan hátt er börnum kennt að segja íslensku mál- hljóðin rétt, þau læra hljóð íslensku bókstafanna og fingrastafrófið um leið og lestrarferlið er undirbúið. Í smáforritinu má taka upp og hlusta á hvernig barnið segir orðin. Hægt er að skrá nafn, aldur og kyn þess sem æfir og vista hversu langt barnið er komið í hljóðunum. Þannig er hægt að fylgjast með því hvernig barninu miðar í hljóðanáminu og æfa jafnvel betur þau hljóð sem barnið náði ekki góðum tökum á. Þá má skrá athugasemdir jafnóðum og senda í netpósti. Einvala lið íslenskra listamanna og hugmyndasmiða kemur að því að búa til íslenskt smáforrit fyrir börn og aðra sem vilja læra íslensku á nýstárlegan hátt, undir leiðsögn talmeinafræðings. Búi Kristjánsson og Halla Sólveig Þor- geirsdóttir teikna líflegar og skemmti- legar myndir sem höfða vel til barna á öllum aldri. Raddir þeirra Felix Bergs- sonar og Védísar Hervarar Árnadóttur í hlutverki Mána og Maju, ná listilega vel til ungra sem aldinna. Menntamálaráðuneytið og Barna- menningarsjóður styrkja íslenska smáforritið. Kids Sound Lab - kennir ensku málhljóðin Bryndís gefur út smáforritið Kids Sound Lab, með sömu aðferðafræði og hún hefur þróað í Lærum og leikum með hljóðin. Smáforritið Kids Sound Lab kennir á lifandi og skemmtilegan hátt um ensku málhljóðin, framburð þeirra og staðsetningu talfæra fyrir hljóðin. Hljóðin eru sett upp í sömu röð og enskumælandi börn tileinka sér hljóðin í máltökunni og hægt er að fylgja þeirri röð eða velja sjálfur hvaða hljóð er æft hverju sinni. Mjög skemmtileg nálgun fyrir alla þá sem eru að læra ensku og er smáforritið kjörið í enskukennsluna fyrir framburð og orðaforða. Ráðgefandi aðilar eru dr. Barbara Hodson við Wichita State University, KS og Dr. Katherine Abbott Verdolini við University of Pittsburg, PA. en þær eru leiðandi sérfræðingar í heiminum á sviði hljóðkerfisvitundar og raddar- innar. Verkefnið er styrkt af Átaki til atvinnusköpunar hjá Nýsköpunarmið- stöð Íslands. Grindavík: 6. P bregður undir sig betri fætinum Kennsla fyrir utan fjóra veggi skólastofunnar er að verða mikilvægari og stærri þáttur í skólastarfi í Grunnskóla Grindavíkur. Nemendur í 6. P halda áfram þar sem frá var horfið síðasta vetur varðandi útikennsluna. Á næstunni stendur til að kynnast Þorbjarnarfelli, náttúrunni og umhverfi þess. Reynt verður að samþætta náms- greinar í þessu verkefni. Þar má nefna að gert verður listaverk í samvinnu við Rósu S. Baldursdóttur myndmennta- kennara þar sem Þorbjörn verður í aðalhlutverki. Nemendur brugðu sér í hlíðar Þorbjarnar og veltu nokkrum steinum og komust að því að það er oft líf undir steini. Gott er að minna á að í aðalnámskrá grunnskóla segir: Grunnskóli skal stuðla að víðsýni hjá nemendum, skilning þeirra á ís- lensku samfélagi, sögu þess og sér- kennum, högum fólks og á skyldum einstaklingsins við samfélagið, um- hverfið og umheiminn. Nemendum skal veitt tækifæri til að nýta sköpunarkraft sinn og að afla sér þekkingar og leikni í stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Skólastarfið skal leggja grundvöll að frumkvæði og sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra. Með útikennslu gefst gott tæki- færi til nálgunar á þessum þáttum námskrárinnar. (Heimasíða Grindavíkur) Illugi Gunnarsson,menntamálaráðherra, bryndís Guðmundsdóttir og Vigdís Finnbogadóttir fv.forseti.

x

Reykjanes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.