Reykjanes - 19.09.2013, Side 12
Eldri borgarar halda árshátíð sína
laugardaginn 12.október í Stapa kl.18:00.
Fordrykkur, matur, skemmtiatriði,
happdrætti, dans.
Hljómsveitin Húsbandið spilar.
Miðasala og borðapantanir miðvikudaginn
2.október á Nesvöllum frá kl. 16-19.
Óbreytt miðaverð kr. 6000.
Árshátíd
FEBS
Fluconazol ratiopharm
eitt hylki - stakur skammtur
árangursríkt
gott verð
einfalt
Sveppasýkingu
í leggöngum
Einungis 1 hylki tekið um munn við
Nýjung
án lyfseðils
á Íslandi!
Notkunarsvið: Fluconazol ratiopharm inniheldur fluconazol. Án ávísunar frá lækni er Fluconazol ratiopharm
notað við sveppasýkingum í leggöngum af völdum gersveppsins Candida hjá konum sem áður hafa verið
greindar með sveppasýkingu. Frábendingar: Ofnæmi fyrir fluconazoli eða skyldum azól-lyfjum eða einhverju
öðru innihaldsefni lyfsins. Samhliða meðferð með cisapridi, astemizoli, terfenadini, pimozidi, erythromycini
eða quinidini. Gæta skal sérstakrar varúðar ef eftirfarandi á við: Í mjög sjaldgæfum tilvikum getur Fluconazol
ratiopharm valdið alvarlegum húðviðbrögðum með blöðrumyndun og húðlosi (Stevens-Johnson heilkenni).
Ef húðútbrot koma fram á meðan á meðferð með Fluconazol ratiopharm stendur skal strax hafa samband
við lækni, sem ákveður hvort nauðsynlegt sé að grípa til frekari aðgerða. Samhliða meðferð með halofantrini
eða terfenadini. Meðfædd eða áunnin breyting á starfsemi hjartans (lengingu QT bils). Samhliða notkun lyfja
sem einnig geta lengt QT bilið á hjartalínuritinu, t.d. lyf við hjartsláttartruflunum í flokki IA eða III. Truflun
í jafnvægi blóðsalta, einkum minnkuð þéttni kalíums og magnesíums. Hægur hjartsláttur sem þarfnast
meðferðar, hjartsláttartruflanir eða alvarleg hjartabilun. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki skal nota Fluconazol
ratiopharm á meðgöngu eða við brjóstagjöf. Skömmtun: Við Candidasýkingu í leggöngum: Eitt Fluconazol
ratiopharm 150 mg hylki í stökum skammti. Algengar aukaverkanir: Höfuðverkur, húðútbrot, kviðverkur, uppköst,
niðurgangur og ógleði, breyting á lifrargildum. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Maí 2013.
HAFNARSPORT
DREIFINGARAÐILI
HAFNARSPORT.IS
ENGIN AUKAEFNI,
ROTVARNAREFNI
NÉ ÖNNUR BÆTIEFNI.
19. september 201312
Albert Karl Sanders
Albert Karl fæddist á Ísafirði 20. mars 1929. Hann lést árið 2003, . Foreldrar hans voru
Karl Sanders, stýrimaður í Noregi, og
Jónína Albertsdóttir á Ísafirði. Albert
Karl nam rafvirkjun við Iðnskóla Ísa-
fjarðar og lauk sveinsprófi 1951. Hann
starfaði í nokkur ár á Rafmagnsverk-
stæðinu Neista og hjá Ísfirðingi hf. og
Togarafélaginu á árunum 1953-1963.
Albert Karl starfaði hjá varnarliðinu
á Keflavíkurflugvelli á árunum 1964-
1974. Hann var bæjarstjóri í Njarð-
vík 1974-1986 og var veitustjóri hjá
Varnarliðinu frá 1986.
Hann var formaður skíðaráðs Ísa-
fjarðar í nokkur ár og var einnig for-
maður Knattspyrnufélags Ísafjarðar
um skeið. Albert Karl var formaður
Sjálfstæðisfélagsins á Ísafirði á árunum
1953-1958 og bæjarfulltrúi á Ísafirði
1954-1962. Hann var formaður Raf-
iðnaðarfélags Suðurnesja 1969-1974
og átti sæti í stjórn Rafiðnaðarsam-
bands Íslands 1969-1976. Albert
Karl starfaði einnig mikið innan
Sjálfstæðisflokksins og var um árabil
formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfé-
laganna í Njarðvík og varaformaður
kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna
á Reykjanesi. Albert átti sæti í stjórn
sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs og
var formaður stjórnar Heilsugæslu-
stöðvar Suðurnesja á árunum 1974-
1984. Hann stóð að stofnun Hitaveitu
Suðurnesja og átti sæti í stjórn fyr-
irtækisins og var formaður stjórnar
um skeið. Hann átti einnig sæti í
stjórnum fjölmargra annarra stofnana,
m. a. í stjórn Sambands sveitarfélaga
á Suðurnesjum, Dvalarheimilis aldr-
aðra á Suðurnesjum, Landssambands
sjúkrahúsa, Brunavarna Suðurnesja,
Landshafnar Keflavíkur og Njarðvíkur
og í stjórn Vinnueftirlits ríkisins.
Starf KFUM og KFUK er að hefjast
Fundirnir í KFUM og KFUK eru að hefjast aftur eftir sumarfrí.
Fundir byrja nú í vikunni eftir Ljósanótt.
Á fundum margt til gamans gert, sungið, farið í leiki og keppnir, íþróttir, gestir koma í heim-
sókn, margskonar föndur, leiklist, tón-
list, bingó, hæfileikasýningar og margt
fleira. Einnig eru ferðalög og íþróttamót
fastir liðir í starfinu. Á hverjum fundi er
hugleiðing um Guðs orð.
Reynt er að mæta þörfum hvers og
eins með fjölbreyttri dagskrá og aldur-
skiptum deildum. Svo má ekki gleyma
að það kostar ekkert að vera með og
mæta í KFUM og KFUK.
KFUM og KFUK er æskulýðshreyf-
ing sem hefur að markmiði að vekja
trú á Krist og hlynna að andlegri, lík-
amlegri og félagslegri velferð einstak-
lingsins.
Fundartímar í Reykjanes-
bæ:
Mánudagar: KFUM og KFUK (drengir
og stúlkur) 2. - 4. bekkur Hátún 36 í
Keflavík kl. 14.30 – 15.30. Hefst 16.
september.
Mánudagar: KFUM (drengir) 5. - 7.
bekkur, Hátún 36 í Keflavík kl. 17.30
– 18.30
Miðvikudagar: KFUM (stúlkur)
5. - 7. bekkur, Hátún 36 í Keflavík kl.
19.30 - 20.30
Fimmtudagar: KFUM og KFUK
(drengir og stúlkur) 5. - 7. bekkur
Akurskóli í Njarðvík kl. 17.00 – 18.00.
Sunnudagar: KFUM og KFUK 8.
- 10. bekkur, Hátún 36 í Keflavík kl.
20.00 – 21.30
Fundartímar í Grindavík:
Fundirnir hefjast 19. september:
Fimmtudagar: KFUM og KFUK 4.
- 7. bekkur kl. 17: 30-18: 45.
Fimmtudagar: KFUM og KFUK 8.
– 10. bekkur kl. 19: 30-21: 30
Hvetjum krakka til að kíkja á fundi
og taka þátt í skemmtilegu æskulýðs-
starfi.
KFUM og KFUK á Suðurnesjum.
Merkir Suðurnesjamenn
Matur
eða pólitík
Reykjanes hitti þessa heiðurs-menn á Ljósanótt. Ætli þeir hafi verið að ræða um pólitík
eða mat? Eða bara kannski eitthvað
allt annað?
Heimaey og Ísland
Margar skemmtilegar sýn-ingar voru haldnar á Ljósanótt. Reykjanes rakst
á þessa skemmtilegu og flottu lista-
verk af Heimaey og Íslandi. Glæsilegt
þegar búið er að kveikja á kertunum.
Listaverkin nefnast Nýja-Ísland og er
framleitt af HSprautun í Hafnarfirði.
Auglýsingasíminn er
578 1190
Netfang:
auglysingar@fotspor.is
fotspor.is