Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Qupperneq 11

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Qupperneq 11
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 105 ur ófrýnilega til mín, tautaði nokkur blótsyrði fyrir munni sér og dragnaðist burtu og inn í annan klefa. »Það var svei- niér gott að losna við þennan peija, sá var ekki uppbyggilegur!« hugsaði eg með uiér og fór að kveikja í pípunni aftur. En í sama bili kom eftirlitsmaðurinn að dyr- unum. »Má eg líta á farseðil yðar, herra uiinn«, segir hann svona blátt áfram. Eg rétti honum auðvitað seðilinn, og bjóst svo við að hann mundi fara, en hann stóð þarna og leit fyrst á töskuna og svo á mig og svo á töskuna aftur. »Þessi taska má ekki standa svona«, segir hann svo. »Nú, má hún það ekki?« svaraði eg, til þess að segja eitthvað, annað hefði auð- vitað verið ókurteisi. »Já, sjáið þjer ekki, að hún stendur al- veg í gangveginum ?« segir hann. »Já, hún gerir það líklega«, svaraði eg. »Það verður að flytja töskuna!« sagði hann og var nú gróflega byrstur. »Já, einmitt það«, segi eg; og svo leit eS út um gluggann og fór að blístra til þess að gefa til kynna, að mig langaði ekkert til að halda þessu samtali áfram. I sama bili var gefið merki á stöðinni og lestin fór að hreyfast. »Bíðið þér nú bara við, þangað til við komum til Hedehusene«, sagði eftirlits- Uiaðurinn, og eg gat heyrt á málrómnum, uð hann var reiður, »þá skal eg sýna yð- Ur, að hér dugir engin þrjóska!« Að svo Kiæltu sneri hann sér við og fór snúðugt burtu. »Hvað ætli gangi að manninum?« hugs- aði eg með mér; en svo datt mér í hug, að það væri fjarska heitt, og hugsaði sem svo, að þetta kæmi alt af hitanum- Eg kveikti svo ennþá einu sinni í pípunni og sat hinn rólegasti við gluggann og virti hina gulu kornakra fyrir mér um leið og brunuðum áfram. Alt í einu blístraði eimvélin og lestin stansaði. Við vorum komnir á næstu stöð. Rétt á eftir kemur eftirlitsmaðurinn og með honum annar — heljar mikill bur- geis, með gyltan borða um húfuna og á gullbryddum einkennisbúningi. Það var lestarstjórinn. »Þarna er hann!« sagði eftirlitsmaður- inn og benti á mig — »og þarna er hand- taskan!« bætti hann við og benti á tösk- una. »Þetta getur ekki gengið, minn góði maður«, mælti sá gullbryddi valdsmanns- lega — »þessi taska má ekki standa þarna!« Mér fór nú að leiðast þessi reki- stefna altaf um sama hlutinn, svo eg svaraði, svona hálf-kaldranalega: »Það er eg nú búinn að heyra áður!« En nú varð hann alveg bálvondur. »Hvað á þetta að þýða?« hrópaði hann. »Hvers vegna viljið þér ekki flytja tösk- una?« Eg er því nú heldur óvanur að sleg- ist sé upp á mig svona alveg að rauna- lausu, svo það fór heldur að þykna í mér líka. Eg sagði: »Ef einhver skyldi spyrja yður um það, þá getið þér skilað til hans frá mér, að eg hafi sagt, að yður kæmi það ekkert við!« »Svo þér svarið skömmum ofan á alt saman!« sagði hann alveg æfur. »En þessi taska skal verða yður dýr, áður en lýkur, því skal eg lofa yður!« Hann skelti hurðinni í lás, og lestin fór aftur af stað. Mér var nú satt að segja farið að líða hálf illa, en mér þótti þó vænt um, að eg hafði svarað þessum herrum eins og þeir áttu skilið. Voru þeir kannske settir og launaðir af ríkinu til þess að slást upp á saklausa ferðamenn? I' þessum hugsun- um sat eg þangað til við komum til Taastrup. En þá tók ekki betra við. Nú komu þeir aftur, eftirlitsmaðurinn, og sá gullbryddi — lestarstjórinn — og höfðu H

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.