Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Síða 13

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Síða 13
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 107 Þér eruð sakaður um brot á járnbrautar- reglunum og auk þess um að hafa sýnt embættismönnum járnbrautarinnarmegn- ustu ókurteisi og ósvífni«. Lögregluþjónninn með vasabókina skrifaði eitthvað. Svo leit hann upp og sagði: »En hvar er þessi taska?« Hinir fóru nú allir að skima í kringum sig líka og spurðu hver í kapp við annan: »Já, hvar er taskan?« Eg áleit að mér kæmi ekki neitt við að fræða þessa herra neitt, eins og þeir nú voru búnir að láta við mig, svo eg steinþagði. Þá sneri hann sér að mér — hann — þarna embættis- maðurinn, sá sem kom síðast — og sagði: »Hvað hafið þér gert við töskuna?« »Ekki neitt«, svaraði eg. »Já, en hvers vegna er hún þá horfin?« spurði hann. »Nú, úr því þér spyrjið mig um það«, sagði eg, »þá býst eg við að eigandinn hafi hirt hana«. »Áttuð þér þá ekki töskuna?« spurði hann auðsjáanlega steinhissa. »Ekki tangur eða tætlu í henni«, svar- aði eg. »En hvers vegna sögðuð þér það ekki, maður — hvers vegna sögðuð þér það ekki strax?« Hann brosti nú hýrlega til mín. Lögregluþjónarnir glottu. En þeir kumpánar, lestarstjórinn og eftirlitsmað- úrinn, voru heldur kindarlegir. — Eg svaraði: »úr því að þér eruð nú fyrsti maður lnn, sem talar almennilega til mín síðan eg fór frá Roskilde, þá ætla eg nú að trúa yður fyrir leyndarmálinu: Það hefir sem se enginn spurt mig um, hvoi*t eg ætti töskuna!« »Jæja«, sagði hann og hló við, »við hiðjum yður auðvitað svo auðmjúklega fyrirgefningar á öllu þessu ónæði og ó- Þægindum, sem þér hafið orðið fyrir! Svo tók hann aftur með hendinni til húf- unnar og ætlaði að fara. En þá sagði eg rétt svona: »Nei, vitið þér nú hvað, herra minn, eg er nú ekki annað en einfaldur skósmíða- sveinn, en svo mikið veit eg, að hjá okk- ur skósmiðunum líðst það ekki að »moli- stera« mann svona alveg upp úr þurru og skilja svo við hann án þess að bætur komi fyrir og fullar sættir séu komnar á«. »Nú, þér krefjist skaðabóta?« sagði hann nokkuð þurlega. »Það var nú eiginlega ekki það sem eg átti við«, sagði eg, og svo gerði eg hon- um skiljanlegt, að það væri nokkuð ann- að, sem gæti komið sér vel, svona í hit- anum. Þá hló hann aftur og sagði: »Já, það getur verið nokkuð til í því. — Við skulum þá koma inn á skrifstof- una«. Við lögðum svo af stað, öll fylking- in, því lestarstjórinn, eftirlitsmaðurinn og báðir lögregluþjónarnir fóru með. Þeim fanst víst ekki ráðlegt að vera ut- an við sættina — og það var nú nokkuð til í því. Þegar við komum inn á skrifstofuna, þá sátu þar einir tveir eða þrír aðrir gullbryddir náungar. Sá, sem hafði boðið okkur inn, heilsaði þeim og sagði: »Herrar mínir, þetta er — hm, hm, — og svo leit hann á mig. »Frederik Olsen skósmiður!« bætti eg við. »Já, og herra Olsen hefir orðið fyrir óþægindum á lestinni, en er nú kominn til að sættast við okkur«, mælti hann. Svo opnaði hann skáp og tók út koníaksflösku og eitt staup, sem hann setti á borðið og fylti. »Gerið þér svo vel, herra 01sen!« sagði hann. »Nei, herra minn«, svaraði eg, »með þessu herjans lagi komast engar sættir á, því að svona förum við aldrei að í skó- 14*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.