Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Page 22

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Page 22
116 NÝJAR KVÖLDVÖKUR heyrði þá samtímis, að Marherita rak upp hræðsluóp. í þetta skifti sigtaði Maruffi mjög vandlega. »Fjögur!« taldi Blake. Hann vissi að skotið hafði hitt hann, en hann var ekki enn orðinn þróttlaus; og nú voru aðeins tvö skot eftir. Sjer til undrunar hnje hann þá alt í einu niður. Gegnum dimma þoku sá hann ítalann snúa sjer við og miða á ungu stúlkuna, sem reyndi að opna hurðina. »Maruffi!« hrópaði hann. »ó, Guð!« svo lokaði hann augun- um til þess að sjá ekki hvað skeði. En hann heyrði ekkert, því hann datt áfram og misti meðvitundina. Á leið sinni til St. Philips stræti ljet O’Connel sjer gremjast nýjungar þær, er Norvin Blake hafði sagt honum. Honum fanst það næstum því persónuleg móðg- un, að hann hafði ekki fengið að vera við handtöku Maruffis. Þegar hann nálgaðist ítalska hverfið, sá hann lögregluþjóna, sem komu hlaup- andi. »Hvað gengur á?« »Maruffi er flúinn!« hrópaði hann. »Johnson er særður, og —« O’Connel heyrði ekki meira því hann tók þegar á sprett. Það var mannsöfnuður fyrir framan búðarholu eina, þar sem lögregluþjónn- inn beið eftir sjúkravagninum, og áður en O’Connel hafði heyrt alla söguna um flótta Maruffi, kom O’Neil akandi að búðinni. Hann stökk niður úr vagninura og hrópaði: »Hvar er Maruffi ?« Lögreglustjórinn bölvaði í hljóði þeg- ar hann heyrði hvað skeð hafði og gaf lögregluþjónunum nokkrar stuttar fyrir- skipanir. Stuttu síðar tók O’Connel hann afsíðis og mælti: »Maruffi reynir ekki að flýja úr bæn- um fyr en dimt er orðið. Hann á heitmey og jeg geri ráð fyrir að hann biðji hana að fela sig. »Það var hún sem kom upp um hann — hún og Blake« — O'Connel hrópaði upp: »Veit hann, að hún gerði það? Sje svo, er enginn vafi á, að hann leitar hana uppi«. »Ef til vill! Stúlkurnar búa einar og mjer væri rórra ef jeg vissi þær örugg- ar. Jeg skal hleypa yður út hjá húsinu í leiðinni«. Andartaki síðar lögðu þeir af stað í vagninum. Áður en þeir komu að húsinu, sáu þeir menn hlaupa þangað og þeir heyrðu skot. O’Neil stökk út úr vagninum, er hann heyrði skerandi hræðsluóp kvenmanns og svo hlupu þeir O’Connel upp stigann. Þeir staðnæmdust við læstar dyrnar. »Blake, Norvin Blake!« hrópaði O’Con- nell. »Brjótið upp hurðina!« skipaði O’Neil. Hann kastaði sjer af öllu afli á hurðina, en þó þeir reyndu báðir, þá stóðst hui'ðin allar árásir þeirra. »Guð minn góður! Hann er þama inni!« hrópaði lögreglustjórinn. »Við skulum reyna enn einu sinni. Gegnum rifu á hurðinni sáu þeir viðureignina inni í herberginu og þeir hömuðust sem óðir menn. Ennþá var rekið upp skerandi neyðar- óp og í örvæntingu sinni stakk O’Neil hendinni inn í rifuna og braut úr hurð- inni. Gegnum gatið sá hann Maruffi hlaupa að glugganum. Á leiðinni greip hann kertið, sem logaði framan við dýr- lingsmyndina og bar það að gluggatjöld- unum ,sem þegar stóðu í ljósum loga. Svo stökk hann upp í gluggann og hvarf. »Fljótt nú! Hann hefir kveikt í her- berginu!« hrópaði O’Neil og þaut niður stigann. Loksins tókst O’Neil að brjótast inn. Hann þaut að glugganum og reif glugga-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.