Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Page 24

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Page 24
118 NÝJAR KVÖLDVÖKUR »Hjúkrunarkonan mín hefir bannað mjer að tala«. Bernie horfði spurnaraugum á ungu stúlkuna, sem með alvarlegum skyldusvip hlúði að honum og bauð honum að vera gætinn. Þegar hún var farin út, sagði hann: »Nú þú kemur víst ekki með góðar frjettir í þetta sinn. Segðu mjer annars hvað skeð hefir. Hvernig líður Myru Nell ?« »Auðvitað er hún sorgbitin. Hún kom hingað þegar fyrsta kvöldið, en hún þol- ir ekki karbollykt«. »Maruffi hefir sloppið. Var ekki svo?« Dreux rjetti úr sjer í sæti sínu; hann roðnaði af drambi og óx sýnilega. »Hefir þú ekki heyrt það?« spurði hann í vafa- róm. »Hvernig ætti jeg að hafa heyrt nokk- uð, þar sem læknirinn er mállaus og hjúkrunarkonan tungulaus engill?« »Maruffi var gripinn sama kvöldið. Alt landið veit það!« Aftur varð andlit litla mannsins rautt af ánægju. »Kæri vinur minn, þú ert auðvítað hetja, en, íil eru — aðrir — sem —« »Hver tók hann?« »Það gerði eg«. »Þú?« Norvin starði á hann vantrúar- augum. »Svo er sem jeg segi. Jeg, Hr. Bernard Effingwell Dreux, gleðimaðurinn, skran- salinn, listagagnrýnandinn og lögreglu- spæjarinn. Jeg fann hann í húsi Joe Poggis. Þeir urðu samferða í steininn«. »Hvernig í ósköpunum. . ?« »Það er löng saga. — Það er alt kon- unni að kenna....« Bernie roðnaði dálítið. »Jeg sagði þjer ekki alt um daginn. Henni fór að þykja alvarlega vænt um mig. Jeg komst ekki undan henni; hún elti mig allstaðar og fór að tala um skiln- að, brottnám o. s. frv., svo mjer leist ekki á blikuna. Auk þess ber hún æfin- lega á sjer lítinn rýting — jeg held f sokkunum. Jeg var vanur að hitta hana á götu- horni einu, en dag einn fjekk hún mig til að fara með sjer heim. Dagstofan er fóðruð með rauðu og var megn fuggulykt þar inni. Jeg sat á stólrönd og gætti hennar með öðru auganu en með hinu rannsakaði jeg stofuna. Þar var falleg mynd af Joe í líkamsstærð, innrömmuð í logagylta umgerð og alt eftir því. I fyrstu var hún mjög feimin og mjer óx hugrekki, en varla hafði jeg sagt nokk- ur orð við hana um að mjer hefði einu sinni þótt vænt um hana, fyr en hún dró rýtinginn upp. Svo virtist þó, sem hún hefði í hyggju að lesa eitthvað yfir mjerr því hún ruddi upp úr sjer einhverri romsu; en alt í einu þagnaði hún, því við heyrðum einhvern hreyfa sig frammi f forstofunni. Frú Poggi varð græn í framan — ekki hvít heldur græn! og jeg fór að hugsa mjer hvernig fyrirsagnir blaðanna mundu líta út næsta morgunn: »Pipar~ sveinninn og kona lögregluþjónsins!« En það var ekki Poggi, vissi jeg, er hann kallaði á hana. Hann var lafmóður eins og hann hefði hlaupið. Hún benti mjer að þegja og fór svo út. Jeg heyrði að þau töluðu saman, en gat ekki skilið nokkurt orð. Þegar hún kom aftur, var hún enn grænni í framan, og sagði að jeg skyldi fara og það gerði jeg. Jeg datt þrisvar og hljóp barn um koll í flýtinum að kom- ast sem lengst burt frá henni.« Blake, sem hlustaði á hann með at- hygli, spurði: »Maðurinn var Maruffi?« »Svo var! Jeg náði í klúbbinn mátu- lega til þess að heyra um handtöku hans og flótta og bardaga ykkar hjer. Allur bærinn talaði um þetta, allir voru undr- andi og óttaslegnir. Það sem undraði mig mest var það, að Cæsar skyldi vera

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.