Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Blaðsíða 40

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Blaðsíða 40
134 NÝJAR KVÖLDVÖKUR »Cydaria! Fallegt nafn!« mælti Bar- bara og herpti saman munninn. »En eg get þess til, að hún hafi sínar ástæður til að kalla sig því nafni«. »Móðir hennar hefir sagt garðyrkju- manninum annað nafn«, svaraði eg til þess að reyna að mýkja skap hennar. »Það er eins létt að gefa nöfn og — og kossa!« var svarið. — »Og hvað nafnið »Cydaria«, áhærir, þá segir faðir minn, að það sé úr einhverju leikriti«. Við stóðum bæði við gluggann og horfð- um á Cydariu, þar sem hún gekk léttfætt yfir engið og hvarf sjónum okkar inn á milli trjánna. »Hún er farin«, hvíslaði eg — »mis- tress Barbara, hún er farin!« Hún vissi vel, hvað mig langaði til að segja, en hún var ákveðin í að sýna mér engan vin- semdarvott. Viðkvæmni sú, er lýsti sér ! rödd minni, var hennar vegna, en hún vildi ekki skilja það. »Það er óþarfi fyrir þig að vera að andvarpa yfir henni frammi fyrir mér!« sagði hún — »og þó — andvarpaðu eins mikið og þú vilt. Hvað kemur það mér við? En hún er nú ekki farin svo langt — og sjálfsagt hleypur hún ekki svo fjarska hratt, ef þú biður hana að doka við«. »Þegar þú ert komin til Lundúna, mun þig iðra þess, hvernig þú erv við mig núna!« mælti eg. »Eg skal aldrei láta. mér detta neitt í hug, sem þig áhrærir. Þú veizt, að við hirðina eru herrar, sem hafa betra vit og kunna betri siði!« svaraði hún. »Bara að djöfullinn vildi fljúga burtu með hvern einasta þeirra!« hrópaði eg í reiði. — Þá vissi eg ekki hversu margir þessara herra bjuggu sig undir að fá einmitt þá fylgd, sem eg óskaði þeim. Barbara sneri sér að mér. Það var sig- urglampi í augum hennar. »Það getur hugsast, þegar þú fréttir af mér frá hirðinni, að þú þá iðrist eftir, hvernig...« Hún hætti snögglega og horfði út um gluggann. »Þú eignast líklega mann þar«, gat eg til með aumkunarlegum róm. »Það er vel líklegt«, svaraði hún kæruleysis- lega. Til þess að segja sannleikann, skal eg kannast við, að eg syrgði yfir burtför hennar af öllu hjarta, og eg var fullur af- brýðis gagnvart hverjum manni í allrt Lundúnaborg. »Farðu vel, madame , sagði eg með hrygðarsvip og hneigði mig djúpt. Eng- inn sorgarleikari hefði getað lagt aðra eins örvæntingu í hreyfingar sínar. — »Lifðu vel, sir«, svaraði hún. »Eg vil ekki tefja þig lengur, þar sem eg býst við að það séu aðrir, sem þú einnig þarft að kveðja«. »Ekki neinn, fyr en eftir viku«, hrópaði eg glaður yfir að geta hefnt mín með að láta hana skilja, að Cydaria færi ekki fyr. »Eg efast ekki um að þú munir nota tímann vel«, sagði hún um leið og hún gerði hreyfingu í áttina til dyranna með óumræðilegum tignarsvip, eins og" hún væri þegar orðin einhver hefðarfrú og ekki ung stúlka. Sorgbitinn og niðurlútur hafði eg mig út úr dyrunum aðeins til þess að falla 1 hendurnar á lávarði mínum, sem var að ganga um gólf úti á svölunum. Hann tók í handlegginn á mér og hló góðlátlega og' ertnislega: »Nú, þið hafið haft ofboðlitla við- kvæmnisstund þarna inni, refurinn- þinn«, sagði hann. »Jæja, það er ekkert út á það að setja, ekki sízt þar sem stúlk- an er á förum til Lundúna í fyrramálið«. Eg svaraði: »Það var eins saklaust og lafði mín sjálf hefði getað óskað sér«. Að þessu brosti hann og kinkaði kolli. — »Mistress Barbara vill naumast líta við mér«. Hann varð alvarlegri, þrátt fyrir að brosið stöðugt var á vörum hans. »Fólkið hérna í þorpinu pískrar sitthvað um þig, Símon. Þú ættir að hlýða vinsam-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.