Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Síða 48

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1929, Síða 48
142 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hinu Júgó-slavneska konungsríki. Belgrad stend- ur þar, sem Sava-fljótið fellur í Dóná, rjett fyr- ir ofan bæinn Semlin, sem áður var ungverskur, en nú er innlimaður í Júgóslavíu. — Við mann- tal 1911 hafði borgin 92.000 íbúa, en vegna hörmunga þeirra, sem yfir hana gengu í heims- styrjöldinni, er talan nú, þrátt fyrir stækkun landsins, nokkru lægri. Hjá borginni stendur gamalt vígi, sem ennþá hefir verndað nokkurn hluta af hinum gömlu gröfum sínum og horn- vígum, múrum og virkisjarðhúsum. Borginni er skift í 6 umdæmi — hin svonefndu »Kvarts«, og í seinni tíð hefir borgin verið stækkuð nokkuð og fegruð. — Höll (Konak) sú, sem Alexander kon- ungur og Draga drotning voru myrt í 11. júní 1903, hefir nú verið rifin niður. Múhameðískt bænahús er þar frá dögum Tyrkja. — Nafnið Belgrad þýðir »Hvíta borgin«. Borgin er æfa- gömul. Rómverjar höfðu þar víggirtar herbúðir. Síðar komst borgin undir Búlgara, Byzantina, Ungverja, Tyrki og Austurríkismenn, komst svo aftur undir Tyrki og varð fyrst 1867 frjáls höf- uðborg í Serbíu. 48. Guatemala. Hún er höfuðborg í samnefndu lýðveldi í Mið- Ameríku og hefir 90.000 íbúa. Helmingur íbú- anna eru Indíánar eða kynblendingar. — Jarð- I skjálftar eru þar tíðir og húsin því lág. 49. Bern. Hún er höfuðborg í fylkinu Bern og hinu svissneska eiðsbandalagi. Hún hefir aðeins ca. 88.000 íbúa og stendur því, hvað fólksfjölda snertir, langt að baki Basel, Zuncn og Genf. Borgin stendur við Aar-fljótið. Einkennilegt er það við borgina, hve þök núsanna skagá langt fram yfir gangstjettirnar, svo að þær verða svipaðar og bogagöng. Mest er töluð þýska, en einnig franska og ítalska. Nafnið Bern "er til komið á þann hátt, að Bertold hertogi af Záh- ringen, sem grundvallaði bæinn á 12. öld, kall- aði hann Bern til minningar um, að forfeður hans höfðu ríkt í Verona, sem áður fyr kallað- ist Bern. Síðar hjeldu menn, að nafnið kæmi af því, að dag þann, sem bærinn var grundvallað- ur, var óvenjulega stórt bjarndýr skotið þar. Þessvegna settu menn bjarndýr (Bár) í skjald- armerki borgarinnar og því eru bjarndýr alin í bjarndýragryfju í borginni. Þar er ríkisháskóli og mikilfengleg dómkirkja (mótmælenda). Sam- bandsstjórnin situr í Bern og alþjóðapóstsam- bandið hefir þar skrifstofur. í Bern hafa marg- ir alþjóðasamningar verið gerðir, t. d. um al- þjóðaritsíma, eignarrjett bókmenta o. s. frv. 50. Æuito. Hún er höfuðborg í Ecuador í Suður-Ame- ríku. Tölur, sem gefnar hafa verið upp um í- búatölu borgarinnar, leika á milli 40.000 og 80.000. 51. Reval. Reval er höfuðborg í strandríkinu Eistland. Stendur hún við lítinn vog við finska flóann og' hefir hjer um bil 75.000 íbúa. Meðan hún var undir rússneskum yfirráðum, var hún fjórða stærsta verslunarborgin hvað umsetningu snerti. Sjerstaklega var verslað þar með korn. Borgin hefir á sjer gamalt snið og hefir varðveitt hina gömlu múra sína. Mikið er þar enn af timbur- húsum. , Þegar hinar gömlu virkisgrafir hafa verið fyltir upp, hafa útborgirnar verið bygðar alveg upp að múrunum. 14- hluti íbúanna eru Þjóðverjar, helmingur Eistar, hitt Rússar, Finn- ar og Gyðingar. Þegar baltiska járnbrautin var lögð fyrir rúmum 50 árum, varð Reval til. — Eistiska nafnið á borginni er Tallinn, sem þýð- ir »Borg hinna dönsku«. Hún er nefnilega grundvölluð af hinum danska konungi Valdemar sigursæla eftir orustuna við Reval 1219. 52. Caracas. Hún er ásamt hafnarbænum höfuðborg í Venezuela í Suður-Afríku og hefir ca. 72.000 í- búa. — Borgirnar La Paz, Æuito og Bogota, sem nefndar eru hjer að framan, ásamt Caracas, eru

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.