Hagtíðindi

Árgangur

Hagtíðindi - 01.01.1916, Blaðsíða 5

Hagtíðindi - 01.01.1916, Blaðsíða 5
HAGTÍÐINDI GEFIN ÚT AF HAGSTOFU ÍSLANDS 1. ÁRGANGUR NR. 1 J A N Ú A R 1916 STUNDUM hafa heyrst kvartanir um, að hagskýrslurnar kæmu seint út, og verður liagstofan að viðurkenna, að æskilegt væri, að þær gælu komið fyr út. En bæði er það, að margt er það, sem tefur fyrir útkomunni, sem engan veginn er á valdi hagstofunnar, og ennfremur telur hagstofan það fyrstu skyldu sína að rejma að gera skýrslurnar svo úr garði, að þær verði sem áreiðanlegastar og rjett- astar og sem aðgengilegastar til afnola, því að íjettar skýrslur lialda ætíð gildi sínu livað gamlar sem þær verða, en rangar skýrslur og götóttar eru lítils eða einskis virði, enda þólt þær sjeu glænýjar. Fyrir því vill hagstofan einskis láta ófreistað til þess að gera skýrsl- urnar sem áreiðanlegastar og fullkomnastar, enda þólt það seinki eilthvað fyrir útkomunni. fJað versta er, að þrátt fyrir vilja hagstof- unnar í þessu efni, er skýrslunum altof mikið ábótavant, því að það er svo margt, sem hagstofunni er ómögulegt að ráða neina ból á, en vonandi er samt, að ef hagstofan gerir það sem í hennar valdi stendur, þá fari skýrslurnar yfirleitt batnandi og meiri rækt verði við þær lögð af öllum, sem uin þær fjalla, svo að þær geti orðið sannur spegill af högum þjóðarinnar og óþrjótandi uppspretta rjettrar fræðslu um hana. En þó að útkomuliraði sk^'rslnanna sje ekki fyrsta boðorð hagstofunnar, þá er henni samt mjög hugleikið, að skýrslurnar geti sem fyrst orðið kunnar almenningi og að enginn ónauðsjmlegur dráttur verði á útkomu þeirra. Fyrir því hefur hagstofan tekið upp þann sið að láta hverja skýrslu koma í sjerstöku hefti, en safna ekki fleiri skýrslum saman í eitt hefti. En oft getur það komið fyrir, að áður en skýrsla urn eitthvert efni er fullbúin, sje þegar fengin niðurstaða um ýms atriði, sem birla mætti þá þegar, ef einhver staður væri fyrir það. Og eins er um aðalniðurstöðu hverrar skýrslu, að hana mætti oft birta áður en sjálft skýrsluheftið er prentað og áður en farið er að gera yfirlitstöflur, reikna út hlutfallstölur o. s. frv. En mörgum er einmilt að eins um það að gera að fræðast um

x

Hagtíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.