Hagtíðindi - 01.01.1924, Blaðsíða 11
1924
HAGTÍÐINDI
7
ember. Samkvæmt þeim hefur hann verið 759 329 kg í nóvember
og auk þess 223 511 kg viðbót frá fyrri mánuðum áður ótalin.
Skýrslum yflrfiskimatsmannanna og skeytum lögreglustjóranna ber
nokkuð á milli um útflutninginn á verkuðum sallfiski, hvernig sem á
því stendur. Telja skýislur yfirfiskimatsmanna úlflutninginn alls á
árinu um 650 000 kg minni heldur en skeyti lögreglustjóranna.
Vegna þess að skýrslur yfirfiskimatsmanna eru nákvæmlega sundur-
liðaðar, verður að gera ráð fyrir að þær sjeu ábyggilegri. Skekkjan
gæti ef til vill stafað af því, að eitthvað af óverkuðum fiski væri
af vangá talið með verkuðum fiski í skeytum lögreglustjóranna eða
að sömu farmsendingar væru vegna umhleðslu taldar úlflultar í
tveim umdæmum. Pó er ekki óhugsandi að eilthvað kunni að hafa
verið útflutt, sem yfirfiskimalsmönnunum hafi ekki verið kunnugt
um, er þeir sendu síðustu skýrslu sína, og ætti það þá að bætast við.
Reiknað í skippundum verður útflutningurinn á verkuðum fiski
alt árið 1923 samkvæmt skýrslum yfirfiskimatsmannanna þessi.
Aflað og veikað 1922 .................. 89 228 skpd.
Aflaðll922, en verkað 1923 ............ 3 653 —
Aftað og verkað 1923 .................. 165 049 —
Alls ... 257 930 skptl.
Byggingarkostnaður i Reykjavík árið 1923.
Frá húsameistara ríkisins hefur Hagstofan fengið eftirfarandi
sundurliðaða áætlun um byggingarkostnað húss í Reykjavík árið
1923 sem næst meðalverði ársins. Áætlunin er miðuð við steinsteypu-
hús, sem er að stæiö 8.5 X 7.2 metrar, 1 hæð, portbygt, krossreist,
með geymslukjallara, loft og gólf úr timbri og úlveggir allir innan
þiljaðir með pappa á milli, húsið annars innan strigalagt og málað,
en án allra rörlagninga. Til samanburðar er settur byggingar-
kostnaður sama húss næsta ár á undan og árið 1914 og ennfremur
hvað byggingarkostr.aðurinn hefur verið miðað við 100 árið 1914.
Byggingnrkostnaður Hlulfnllslölur
1914 1922 1923 1914 1922 1623
Trjesmíði..................... 866 kr. 4 330 kr. 3 897 kr. 100 500 450
Múrsmíði...................... 319 — 1 675 - 1 477 — 100 525 463
Málaravinna................... 191 — 1 003 — 945 — 100 525 500
Erfiðisvinna.................. 735 — 2 624 — 2 624 - 100 357 357
Timbur...................... 2 209 — 6 097 — 5 779 — 100 276 267
Hurðir og gluggar............. 329 — 1 086 — 1 010 — 100 330 307