Hagtíðindi - 01.07.1924, Side 6
38
HAGTÍÐINDI
1924
KafTi og sykur.
Innflutningur á kafli og kaflibæti hefur orðið minni heldur en
árið á undan. Á eftirfarandi yflrliti sjest, hve innflutningurinn hefur
verið mikill síðustu 5 árin.
1919 1920 1921 1922 1923
Kaffi óbrent ,.. 741 975 kg 190 661 kg 332159 kg 451 950 kg 378 941 kg
— brent ... 12 835 — 8 986 — 6 896 — 12 753 — 16 447 —
Kaflibætir ... 248 215 — 240 902 — 175 585 — 213 750 — 206 720 —
Samtals ... 1 003025 kg 440 549 kg 514 640 kg 678 453 kg 602108 kg
Innflutningur á sykri var 3 051 184 kg Er það líkt og tvö árin
á undan. Aannars hefur innflutningurinn síðustu 5 árin verið svo
sem hjer segir.
1919 ..... 3 436 pús. kg
1920 ..... 1 919 — —
1921 ..... 2 978 — —
1922 ..... 3152 — —
1923 ..... 3 051 — -
Te, súkkulaSi og brjóstsykur.
Af tei fluttust inn 2520 kg Er það miklu minna heldur en
næsta ár á undan, en annars hefur innflutningur þess undanfarin
ár verið harla misjafn (1919: 12000 kg, 1920: 1500 kg, 1921: 1500 kg,
1922: 3800 kg).
Af súkkulaði flultist inn 71384 kg og af kakaó 17 666 kg. Er
það hvorttveggja með meira móti í samanburði við innflutning und-
anfarinna ára. Pó er súkkulaðiinnflutningurinn nokkru minni heldur
en næsta ár á undan. 5 síðustu árin hefur innflutningur á þessum
vörum verið:
Súkkulaði Kakaó
1919 ... 70 þus. kg. 25 þús. kg
1920 ... 47 — — 13 — —
1921 ... 65 — — 11 — —
1922 ... 78 — — 14 — —
1923 :.. 71 — — 18 — —
Af brjóstsykri og konfekt fluttusl inn 22 224 kg. Er það svipað
eins og undanfarin ár. Árið 1921 var innflutningur þessi að vísu
nálega helmingi minni, en aftur á móti var hann hjerumbil tvöfald-
ur árið 1919 (1919: 44 þús. kg, 1920: 22 þús. kg, 1921: 13 þús. kg,
1922: 24 þús. kg).