Hagtíðindi - 01.07.1924, Side 10
42
HAGTÍÐINDI
1924
Siglufirði, en hitt frá Vestmannaeyjum. Árið áður var þessi út-
flutningur aðeins 217 000 kg og árin þar á undan hverfandi Iftill.
í 1. tölubl. Hagtíðinda þ. á. er skýrt frá sundurliðuðu út-
flutningsmagni íslenskra afurða árið 1923 samkvæmt skeytum, sem
hagstofan fjekk mánaðarlega frá lögreglustjórunum, en nákvæmt
mun það yfirlit ekki vera, sem meðal annars sjest á því, að því ber
ekki saman við útflutningsgjaldsskilagreinar lögreglustjóranna um
útflutning á síld og fiskmjöli. í áðurnefndu yfirliti hefur útflutnings-
upphæðin á síld árið 1923 af vangá verið talin lægri heldur en
skeytin tilgreindu; þau töldu útflutninginn 244 972 tunnur, en samkv.
útflutningsgjaldsskilagreinunum hefur hann verið 247 863 tunnur.
Hafa þá fallið úr skeyti um 2 891 tunnur og er það ekki stórvægileg
skekkja (rúmi. 1 %)• Lakar hefur tekist til um síldar- og fiskmjölið
(þ. e. fóðurmjöl og fóðurkökur og áburðarefni). Dtflutningurinn af
því samkvæmt útflutningsgjaldsskilagreinunum hefur verið 3 336 tonn,
en skeyti komu aðeins um 2 752 tonn, svo að fallið hafa úr skeyti
um 584 tonn eða rúml. 7e af öllum útflutningnum.
Af útflutningsgjaldinu, sem greiðist af öllum útfluttum islenskum
afurðum nema síld og fiskmjöli, má sjá, að verð þeirra hefur verið
áætlað alls 51.6 milj. kr. Ef síldin er áætluð á 30 kr. tunnan, verður
verðupphæð hennar 7.4 milj. kr., og ef fiskmjölið er áætlað að meðal-
tali á 30 au. kg, þá verður verðupphæð þess 1 milj. kr. Ætti þá
verðupphæð alls útflutningsins samkvæmt því að vera 60 milj. kr.
Tollarnir árið 1923.
Samkvæmt lollskilagreinum lögreglustjóranna fyrir siðastliðið
ár hafa tollarnir á árinu orðið alls 3 801 000 kr. Er það aöeins 14
þúsund krónum meira heldur en næsta ár á undan (1922), er toll-
arnir urðu alls 3 787 000 kr. Árið 1921 voru þeir 3 500 000 kr., en
1920 voru þeir 3 614 000 kr. Tollupphæðin í heild sinni hefur þannig
verið svipuð öll þessi ár, en tollgrundvöllurinn hefur ekki verið sá
sami, sumir tollar hafa á þessum árum verið hækkaðir, aðrir lækk-
aðir eða afnumdir og nýir tollar settir í stað þeirra.
Aðflutningstollarnir gömlu.
Vinfanga- og vinandaiollur var 497 þús. kr„ þar af 192 þús.
kr. af ómenguðum vinanda, 9 þús. kr. af kognaki, 233 þús. kr. af
sherry, portvíni og malaga, 20 þús. kr. af öðrum vinföngum og af