Hagtíðindi - 01.07.1924, Page 15
1924
HAGTÍÐINDI
47
Frá yðrfiskimatsmanni Seyðisfjarðarumdæmis er skýrsla ókom-
in fyrir maí og júnímánuð, svo að tölurnar fyrir það umdæmi eru
teknar eftir skeytum lögreglustjóranna. Skeytum lögreglustjóranna og
skýrslum yfirfiskimatsmannanna ber nokkuð á milli, en þó er sá
munur ekki tiltakanlega mikill það sem af er þessu ári. Útfiutningur
af verkuðum fiski hefur verið töluvert minni fyrri helming þessa árs
heldur en fyrri helming síðastliðins árs, en það stafar einungis af
því, að svo miklar birgðir frá árinu á undan lágu fyrir óútfluttar
um nýár 1923. Af afla ársins sjálfs er miklu meira útflutt í júní-
mánaðarlok nú heldur en í fyrra.
Reiknað í skippundum hefur úlflutningurinn á verkuðum fiski
samkvæmt skýrslum yfirfiskimatsmannanna verið svo sem hjer segir
fyrra helming þessa árs og ársins í fyrra.
1924
Af fyrra árs afla............................ 33 552 skpd.
Af fyrra árs afla, en sama árs verkun ....... 863 —
Af sama árs afla............................. 50 644 —
Alls .. 85 059 skpd.
1923
85 716 skpd.
1 664 —
19 324 —
106 704 skpd.
Fleirburafæðingar.
Á tímabilinu 1850 til 1920 fæddust hjer á landi alls 171344
börn samkvæmt skýrslum prestanna. Fæðingarnar voru samt ekki
eins margar, því að nokkur af börnunum voru tvíburar og þríburar.
Á eftirfarandi yfirliti sjest hve mikið hefur verið um fleirbura-
fæðingar hjer á landi siðan um miðja 19. öld.
Fædd börn Einburnr Tvíburar Priburar Fæðingar
1850—1860 ........... 28 085 27 285 388 8 27 681
1861-1870 ........... 25 690 24 869 397 9 25 275
1871—1880 ........... 23 477 22 712 372 7 23 091
1881—1890 ........... 22 547 21 751 392 4 22147
1891—1900 ....... 23 877 23102 383 3 23 488
1901—1910 ........... 23 291 22 465 401 8 22 874
1911—1920 ........... 24 377 23 618 363 11 23 992
1850—1920 ....... 171 344 165 802 2 696 50 168 548
Af t68 548 fæðingum, sem komið hafa fyrir hjer á landi á
þessu 70 ára tímabili (eða nákvæmar 71 ári vegna þess að árið 1850
er tekið með), hafa 2696 verið tvíburafæðingar eða 38 á ári að
meðaltali, en aðeins 50 verið þríburafæðingar og vantar þá mikið á,