Hagtíðindi - 01.07.1924, Qupperneq 16
48
HAGTÍÐINDI
1924
að komið hafi 1 þríburafæðing á hvert ár að meðaltali, Þó hafa
ekki ósjaldan komið fyrir 2 þríburafæðingar sama árið (og árið 1880
jafnvel 3), en þá hafa árin verið því fleiri, sem eDgin þriburafæðing
hefur komið fyrir á. Fjórburafæðing hefur aldrei komið fyrir hjer á
landi á þessu tímabili. Af hverjum 1000 fæðingum á þessu tímabili
hafa þannig 983.7 verið einburafæðingar, 16.o tvíburafæðingar, en
0.3 þríburafæðingar.
Yfirlitið sýnir einnig greinilega, að fæðingunum í heild sinni
hefur mjög fækkað á þessu tímabili, einkum þegar þess er gætt, hve
fólkinu hefur fjölgað á landinu. Þegar tala fæðinganna er borin sam-
an við mannföldann, þá kemur í Ijós að:
1850—1860 komu 43.9
1861—1870 — 37.o
1871—1880 — 32.5
1881—1890 — 30.u
1891—1900 — 31.4
1901—1910 — 28.n
1911—1920 — 26.7
fæðingar á hvert 1000 landsbúa.
Nánari upplýsingar um fleirburafæðingarnar fást eigi úr skýrsl-
um prestanna fyr en nú á síðustu árum (síðan 1916).
Árin 1916 — 22 fæddust alls 266 tvíburar og 8 þríburar. Á hvert
þessara 7 ára koma þannig að meðaltali 38 tvíburar eða nákvæm-
lega sama tala sem á alt timabilið 1850—1920, en þriburarnir hafa
aftur á móti orðið meir en 1 á hvert ár að meðaltali.
Kynferði tvíburanna þessi 7 ár hefur verið þannig:
2 sveinar................ 97
Sveinn og mey............ 79
2 meyjar................. 90
Af þriburunum voru:
3 sveinar............. 2 2 sveinar og 1 mey .... 3
3 meyjar.............. 1 1 sveinn og 2 meyjar .... 2
Meðal fleirbura er æfinlega miklu meir um andvana fædda
heldur en meðal einbura og svo hefur einnig verið hjer þessi ár. 227
af tvíburunum voru báðir lifandi, 28 annar lifandi, en hinn andvana
og 11 báðir andvana. Hafa þannig verið andvana 25 börn af 532 eða
eða 4.7 af hundraði, en 1916—20 voru 3.i andvana af hverju
hundraði fæddra alls. Af þríburunum þessi árin var 1 barnið and-
vana, en hin öll lifandi.
PrentBmiðjau Gutenberg.