Hagtíðindi - 01.10.1976, Blaðsíða 1
A G T
GEFIN IJT AF
I Ð I N D I
HAGSTOFU ÍSLANDS
61. árgangur
N r. 10
0 k t ó 1> e r
1976
TILKYNNING FRÁ KAUPLAGSNEFND, DAGS. 13. OKTOBER 1976.
UM VISITÖLUHÆKKUN LAUNA FRÁ 1. NÓVEMBER 1976.
r 3. grein rammasamnings aðila vinnumarkaðarins 28. febrúar 1976 segir meðal annars svo:
"Ef vísitala framfærslukostnaðar verður hærri en 586 stig 1. október 1976 og minnst 5, ‘lajo hærri
en vísitalan 1. júni 1976, skulu laun samkvæmt samkomulagi þessu hækka frá 1. nóvember 1976
í hlutfalli við hækkun vfsitölunnar umfram 586 stig eða umfram þá visitölu, er reiknuð var út 1.
júnt 1976 að viðbættri 5, 2°jo hækkun, hvort sem hærra er."
r sömu grein nefnds rammasamnings segir og, að við umræddan útreikning umframhækkunar
skuli miða við framfærsluvfsitölu með tveim aukastöfum, að frádreginni þeim hækkun hennar, er
leitt hefur af hækkun á vinnulið verðlagsgrundvallar búvöru, svo og að frádreginni þeirri hækkun
vísitölu, sem orðið hefur vegna verðhækkunar á útsöluverði áfengis og tóbaks.
Kauplagsnefnd skal samkvæmt rammasamningnum framkvæma utreikning þennan og tilkynna
hækkun launa frá 1. nóvember 1976, ef til hennar kemur. __
Niðurstaða þessa útreiknings Kauplagsnefndar liggur nú fyrir og er húnsú.að laun þauer hérum
ræðir skuli hækka um 3, ll'yo fra og með 1. nóvember 1976.
Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli.
Skýring frá Hagstofunni. Vtsitala framfærslukostnaðar var reiknuð aukalega miðað
við 1. júnf 1976 vegna akvæða f rammasamningi aðilá vinnumarkaðarins 28. febrúar 1976 um, að
laun skyldu hækka frá 1. júlf 1976, ef júnfvfsitala 1976 færi upp fyrir ákveðið mark ("rautt strik"!
sbr. tilkynningu Kauplagsnefndar dags. 8. júnf 1976, er birt var a bls. 131 f júlíblaði Hagtfðinda
1976. Samkvæmt ákvæðum f sama samningi var framfærsluvfsitalan einnig reiknuð aukalega miðað
við 1. okt. 1976, sbr. tilkynningu Kauplagsnefndar hér fyrir ofan. Reyndist októbervfsitalan vera
630, 63 stig eða 4, 28‘ýo hærri en agústvísitalan. Niðurstöður útreiknings októbervfsitölu eru að öðru
leyti ekki birtar f Hagtfðindum, en hver sem er getur fengið upplýsingar um þærá Hagstofunni. —
Samkvæmt sama rammasamningi verður ákveðin launauppbót frá 1. mars 1977 eftir febrúarvfsitölu
1977, ef hún fer upp fyrir ákveðið mark.
T ÖLFRÆÐIHANDBÓK 1974 KOMIN OT .
fjúnfs. 1. kom út ný tölfræðihandbók, kennd við árið 1974, enda er hún gefin út f tilefni af
1100 ára afmæli fslandsbyggðar. f riti þessu er útdráttur úr tiltækum tölfræðiupplýsingum um land
og þjóð, og þar er að jafnaði ekki farið langt út f einstök atriði. Tölfræðihandbækur eru gefnar út
árlega af hagstofum flestra landa og af alþjoðastofnunum, og þekktust þeirra er "Statistical Year-
book" frá hagstofu Sameinuðu þjóðanna. Eru þetta handhæg uppsláttarrit, þar sem fyrirhafnarlftið
má fá upplýsingar um ýmis efni, sem annars þyrfti oft að gera töluverða leit að.
Hagstofan hefur tvisvar áður gefið út slíkt rit, þ.e. Arbók Hagstofu fslands 1930 og Tölfræði-
handbok 1967.
Æskilegt hefði verið, að rit þetta hefði komið út fyrr, en það gat ekki orðið vegna þess, að
margar upplýsingar varðandi árið 1974 urðu ekki tiltækar fyrr en seint á árinu 1975 og jafnvel fyrst
á yfirstandandi ari. Þótti sjálfsagt að bfða eftir tölum, sem voru væntanlegar áður en langt liði,
svo að sem flestar töflur f bókinni yrðu með upplýsingar fyrir árið 1974. — Þá var og leitast við að
láta töflur ná aftur til ársins 1874, og jafnvel lengra aftur f tfmann þar, sem þvf var við komið.
Tölfræðihandbók 1974 er 265 blaðsfður og fhenni eru 289 töflur. Töfluheiti, dálkafyrirsagnir
og textalfnur f töflum eru með enskum þýðingum. Til þess að auðvelda uppslátt, er aftast fbókinni
stafrófsregistur, bæði á fslensku og ensku, þar er einnig heimildaskrá. — Til frekari vitneskju um
efni þessarar bókar fara hér á eftir kaflaheiti f henni:
1. Landið. 2. Mannfjöldi. 3. Vinnumarkaður. 4. Landbúnaður. 5. Sjávarútvegur. 6. Iðnað-
ur. 7. Húsnæðismál og byggingarstarfsemi. 8. Orkumál. 9. Verslun. 10. Utanrfkisverslun. 11.
Samgöngur. 12. Laun, verðlag, tekjur, neysla. 13. Peningamál. 14. Þjóðhagsreikningar. 15.
Opinber fjármál. 16. Heilbrigðis- og félagsmál. 17. DÓmsmal. 18. Mennta- og menningarmál.
19. Kosningar.
Tölfræðihandbók 1974 kostar 1500 kr. (óbundin), og fæst á Hagstofunni, sem er í Alþýðuhúsinu
(3. hæð), Hverfisgötu 8-10, Reykjavík (inngangur frá Ingólfsstræti). Sfmi 26699.
Sjá efnisyfirlit á bls. 190