Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Side 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2004
EYJAMAÐUR VIKUNNAR
Ætluðum alltaf að vinna mótið
Saga Huld Helgadóttir er
Eyjamaður vikunnar.
Júní
18. JónsmessugleÓi í HerjólfsM
18. ■ 20. Landsmót lúirasveita.
19. Hljómsveitin Buff í Höllinni.
19. Golf: Meistaramót Volkswagen.
19. Kvennahlaup ISI.
23. ■ 27. ShellmótiS.
26. Sumarstúlka Vestmannaeyja 2004 í Höllinni.
29. Landsbankadeild kvenna: ÍBV ■ Fjölnir kl. 20.00.
Júlí
2. Bikarkeppni karla 16. liða úrslit: ÍBV ■ Stjarnan kl. 19.15.
3. Goslokamót Sjóve.
9. Bikarkeppni kvenna 8 liSa úrslit: ÍBV ■ Próttur kl. 19.00.
Sigurvin Ólafsson
er matgæðingur vikunnar
á döfinni
Stelpurnar í fjórða flokki ÍBV gerðu
góða hluti á Vöruvalsmótinu um
síðustu helgi. Þær urðu Vöruvals-
meistarar í flokki a og b liða auk þess
sem besti leikmaður mótsins var úr
ÍBV. Saga Huld Helgadóttir var valin
best og er hún Eyjamaður vikunnar
að þessu sinni.
Nafn: Saga Huld Helgadóttir.
Fæðingardagur: 11. janúar 1991.
Fæðingarstaður: Reykjavík
Fjölskylda: Mamma mín heitir
Svanhvít, fósturpabbi heitir Egill,
pabbi minn heitir Helgi, bróðir Einar
Kristinn og systir Urður Eir.
Draumabíllinn: Enginn sérstakur.
Uppáhaldsmatur: Taco.
Versti matur: Fiskibollur.
Uppáhaldsvefsíða: Engin.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Tónlist á FM957.
Aðaláhugamál: Fótbolti, handbolti
og vinir.
Hvaða mann/konu myndir þú
helst vilja hitta úr mannkyns-
sögunni? Dettur enginn í hug.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Margir fallegir á landinu
en Vestmannaeyjar eru fallegastar.
Uppáhaldsíþróttamaður eða
íþróttafélag: Ronaldinho, IBV og
Manchester United.
Ertu hjátrúarfull: Nei.
Stundar þú einhverja íþrótt: Já,
fótbolta og handbolta.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Fótboltaleikir og O.C.
Nafnlausi rétturínn
Besta bíómynd sem þú hefur séð:
Sá nýlega Love Actually, hún var
góð.
Átti Breiðablik aldrei möguleika í
úrslitaleiknum? Kannski mögu-
leika í fyrri hálfleik, en við ætluðum
alltaf að vinna mótið.
Hvað er eftirminnilegast eftir
Vöruvalsmótið? Vinna úrslitaleikinn
og að vera valin besti leikmaður 4.
flokks
Stefnir þú á atvinnumennsku í
knattspyrnu? Já.
Eitthvað að lokum? Takk fyrir mig.
Hagf eldi komið a sinn
Grímur Marinó Steindórsson,
listamaður, á hlýjar taugar til
Vestmannaeyja, enda rekur hann
ættir sínar hingað. Nokkur verka
hans hafa verið sett upp í Eyjum og
eru súlumar á Hörgaeyrargarðinum
líklega þekktastar jteirra.
Eitt verka Gríms, Hagfeldi, hefur í
nokkur ár verið í hálgerðu
umkomuleysi á Stakkagerðistúni og
beðið þess að fá varanlegan
samastað. Nú hefur verið úr því
bætt. Þeir Hallarbændur, Sigmar og
Grímur, lögðu fram fyrirspum hjá
Hafnarsjóði sem hafði með verkið að
gera, um hvort þeir mættu setja
verkið upp við Höllina, á sinn
kostnað. Það var auðsótt mál og var
ákveðið að fagna nýjum stað á
sjómannadaginn. Að sjálfsögðu var
listamanninum boðið en við
athöfnina vorn einnig Sigmar
Georgsson, Olafur Kristinsson
hafnarstjóri og Sigurgeir Jónsson
menningarfulltrúi bæjarins, sem
afhenti þeim Grími og Sigmari blóm
og sagðist fagna því að verkið væri
loks komið á sinn stað. Ymsir hafa
velt fyrir sér merkingu nafnsins
Hagfeldi og Grímur upplýsti að það
merki „góð heimkoma."
Ég vil byrja á að þakka Emil Hadzk
kœrlega jyrir að gefa mér tœkifœri
á að breiða út afburða kunnáttu
mína í eldhúsinu. Enginn efast um
að Emil er mikill mathákur (það sér
liver maður) en ekki hafði ég
hugmynd um að í honum blundaði
slíkur matgœðingur. Reikna ég því
með tíðuin matarboðum frá honum
íframtíðinni.
Nafnlaus réttur
Uppskriftina mína fékk ég frá
móður minni fyrir nokkrum árum
og hefur þessi réttur verið vinsæll á
mínu heimili, enda mjög einfaldur
og ódýr. Rétturinn er nafnlaus og
fólk hefur því frelsi til að nefna hann
hvaða nöfnum sem því dettur í hug.
í réttinn þarf hakk, makkarónur,
papriku (helst græna), soya-sósu, ost
og hvítlauksbrauð. Magnið af
hverju og einu fer bara eftir því fyrir
hve ntarga er eldað, menn verða
bara að ráða sig fram úr því.
Fyrst er hakkið brúnað og kryddað á
stórri pönnu og makkarónur soðnar í
potti. Þegar hakkið er léttsteikt er
niðurskorin paprikan sett út í ásamt
vænni slettu af soya-sósu. Þannig er
gumsið látið malla á litlum hita í 10
mínútur eða svo, helst með loki yfir
pönnunni því annars er hætt við að
bragðið tapist og ekki viljum við
það. Þessu næst er makkarónunum
faglega vippað á pönnuna og aftur
lokað og látið malla í aðrar 10
mínútur. Þá er rétturinn í raun
tilbúinn en þeir sem vilja mega rífa
ost yfir réttinn stuttu áður en hann er
borinn fram, þannig að hann bráðni
lítillega. A mínu heimili er osturinn
hins vegar borinn l'ram sérstaklega
með réttinum og stráð yfir eftir
smekk. Með réttinum má einnig
bera fram ferskt salat og
hvítlauksbrauðið er í raun
ómissandi. Soya-sósa skal líka höfð
innan seilingar fyrir þá sem vilja
rneira af henni.
Um helgina verður landsmót
lúðrasveita haldið í Vestmannaeyjum.
Af því tilefni hefur Lúðrasveit
Vestmannaeyja gefið út veglegt blað.
Þar kemur meðal annars fram að
Samband íslenskra lúðrasveita fagnar
um þessar mundir 50 ára afmæli sínu.
Þetta er 18. landsmótið og þótti vel
við hæfi að halda það í Eyjum enda
fagnar Lúðrasveit Vestmannaeyja 65
ára afmæli á árinu. Oddgeir Kristjáns-
son var helsti forvígismaðurinn að
stofnun L.úðrasveitar Vestmannaeyja
og var hann stjómandi sveitarinnar frá
upphafi til dauðadags 1966. Lúðra-
sveitin kom fyrst fram á hvíta-
sunnudag 29. maí 1939 og hefur hún
æ síðan verið órjúfanlegur þáttur í
flestum hátíðarhöldum í Eyjum.
Starfsemin hefur frá upphafi verið í
góðu horfi og aldrei fallið niður ef frá
er talið um tíma gosárið 1973. Síðustu
ár hefur Stefán Sigurjónsson séð um
að stjóma sveitinni.
Ólafur Þór Snorrason er formaður
sveitarinnar og sagði hann í samtali
við lúðrasveitarblaðið að þeim hafi
fundist það bráðsniðug hugmynd að
halda landsmótið í Eyjum enda
fimmtán ár síðan landsmót var síðast
haldið hér. Er þetta í þriðja skiptið
sem slíkt mót er haldið í Vestmanna-
eyjum.
'I
Þegar þetta hefur mnnið ljúflega
niður er auðvitað tilvalið að blanda
saman vænni skál af Royal-búðingi,
helst karamellu, og setjast við
sjónvarpið og gæða sér á honum.
Sem sagt enginn veislumatur, heldur
hollur og léttur hversdagsmatur.
Auðvitað reikna ég með að annar
hver maður á eyjunni reyni við
réttinn og hlakka ég til að heyra
viðbrögðin.
Ólafur Snorrason formaður LV
Átta lúðrasveitir hafa boðað komu
sína um helgina og þar af tvær
lúðrasveitir frá Norðurlöndunum.
Búast má við hátt í 300 hljóðfæra-
leikurum og hápunkturinn á
landsmótinu verður í sameiginlegum
tónleikum á Stakkagerðistúni á
laugardaginn ef veður leyfir. Ef veður
verður slæmt verða tónleikamir fluttir
upp í Höll. Má þá búast við að þama
verði á ferð ein stærsta hljómsveit sem
nokkm sinni hefur spilað í Eyjum með
hátt í 300 meðlimum.
Landsmót lúðrasveita
um helgina
Vilji fólk hins vcgar útbúa veislumat þá eru aðrir hentugri lil að gefa uppskriftir. Til að hjóða upp á slíkan
möguleika ætla ég að skora á matargúrúinn Elliða Aðalsteinsson (Ella Eyjapeyja) en ég hef persónulega fengið
að njóta snilli lians í eldhúsinu.