Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Blaðsíða 9
Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2004 9 Jógvan Hansen er tæknisinnaður tölvugúrú þó styttist í 90 árin Með myndsíma eins og Beckham JÓGVAN: Ætli það sé ekki út af því að ég er nógu forvitinn til þess. Það hefur mikið breyst með tækniþróuninni og menn gefa sér minni tíma til að tala við fólk og kynnast því. Aftur á móti hefur tæknin létt mikið undir varðandi heimilisstöriin. JÓGVAN var mættur á tónleika frænku sinnar, Eyvarar Pálsdóttur sem heillaði gesti upp úr skónum á Diigum lita og tóna. Hann fylgist vel með tækninni, er fljótur að tileinka sér nýjungar og eitt herbergi í húsinu geymir nokkrar tölvur og fylgihluti. Þessi lýsing ó líklega vel við flesta unglinga í dag en hún ó einnig við um Jógvan Hansen, 89 óra gamlan tölvugúrú sem hefur verið duglegur að fikra sig ófram ó tölvuöld. Hann kom til Eyja órið 1951 eftir að hafa búið ó Bakkafirði í níu ór. Jógvan fæddist í Færeyjum 1915 og verður því níræður ó næsta óri. Hann hóf ungur nóm í vélskóla enda segist hann alltaf hafa verið spenntur fyrir vélum. „Það voru tveir vélskólar í Færeyjum, annar í Þórshöfn og hinn í Klakksvík þar sem ég var." Jógvan var aðeins sautjón óra þegar hann hóf vélanóm sitt og stundaði sjó- mennsku meðfram nóminu. Seglbátur á veitíð „Fyrsti báturinn sem ég var á var seglskúta, vélarlaus, hún hét Pilot.“ Næstu vertíð fór hann á skútuna EA Atlantic og var þar næstu þrjú ár. 50 hestafla vél var þar um borð. Síðasta skútan sem hann var á hét Bemaise líkt og sósan góða en var hún talsvert öflugri en Atlantic með 120 hestafla vél. Arið 1942 flutti Jógvan búferlum til Islands og settist að á Bakkafirði. Þar bjó hann í níu ár og um haustið 1951 var stefnan sett á Vestmanna- eyjar. „Eg bjó í kjallaraíbúð í Gamla Hvammi. Seinna keypti ég mér lóð til að byggja héma uppi á Breiðabliks- vegi á lóð númer þrjú. Þá var nú bara kartöflugarður héma og ég borgaði tíu þúsund krónur fyrir lóðina, það vom miklir peningar á þeim tíma.“ Jógvan tók sinn tíma í bygginguna, tók engin lán fyrir byggingunni heldur hélt áfram þegar íjárhagur fjöl- skyldunnar leyfði það. „Fyrst byggði ég neðri hæðina og bjó þar lengi áður en ég byggði ofan á húsið.“ Síðan þá hefur Breiðabliksvegur 3 verið heimili Jógvans og íjölskyldu hans. Hann var kvæntur Ester Hansen en hún lést í fyrra. Saman áttu þau sjö böm. Einn átrolli Sjómennsku stundaði Jógvan eftir að hann kom til Eyja og gerði sjálfur út, átti alls sex báta á útgerðarferli sínum. „Einu sinni átú ég bát sem hét Huginn, það var örugglega fyrsti Huginn á Islandi. Stærsti báturinn og jafnframt sá síðasti í eigu Jógvans var Hrafn Sveinbjamarson VE en það var 25 tonna trébátur byggður í Reykjavík 1917. Hann var ýmist á trolli, línu eða humartrolli og Jógvan segir að það hafi oft verið erfitt að fá mannskap. „Stundum vom fyllibyttur úr Reykja- vík einu mennimir sem ég gat fengið. Þá tók ég stundum upp á því að fara einn á sjó á troll og humartroll.“ Aðspurður hvemig það hafi gengið sagði hann að það hafi oftast gengið mjög vel. „Eg fékk allavega aldrei í skrúfuna þegar ég var einn en það gerðist nokkmm sinnum þegar fleiri vom um borð.“ Jógvan lenti þrívegis í klónum á Landhelgisgæslunni þegar hann var tekinn í landhelgi. „í eitt skiptið var ég einn um borð og það hafði drepist á vélinni og ég niðri í vélarrúmi þegar þeir komu um borð. Þeir fóm auðvitað strax upp í brú en þar var enginn, þá kölluðu þeir niður í vélarrúm á mig, ég kom upp og þeir spurðu mig strax hver væri skipstjóri um borð. -Það mun vera ég, svaraði ég. Hver er þá vélstjóri? Það er ég, stýrimaður, spurði þá gæslumaðurinn hissa. Jú, það er ég og ég er líka háseti. Þeir vom mjög hissa á þessu.“ Kampavín á Jólni Jógvan lenti í mörgum öðmm ævin- týmm og meðal annars fór hann út í Surtsey með fólk. „Páll Helgason ásamt fleimm leigðu skipið hjá mér og ég flutti þá út í Surtsey. Jónas Amason var þama fararstjóri með enskum aðalsmanni og eiginkonu hans, sænskri leikkonu sem átti afmæli. Ég setti þau í land á Jólni, eyjunni sem kom upp við hlið Surtseyjar en hvarf aftur í hafið. Þar settust þeir niður og dmkku kampavín og skáluðu fyrir afmælisbaminu.“ Það var ekki auðvelt að vera á bátnum þetta nálægt gosstöðvunum og þurfti Jógvan að sigla út aftur á meðan fólkið var að sötra kampavínið þar sem sían í vélinni hafði fyllst af vikri og þurfti Jógvan að drepa á og hreinsa. Þetta þurfti hann að gera tvívegis á meðan á heimsókn fólksins stóð. „Þau sögðu mér seinna að þau hafi haldið að ég væri að fara og ekki litist á blikuna. Síðan renndi ég aftur upp að þeim og þau komu aftur út á gúmmíbátnum. Kampavínið hafði mnnið heldur ljúft niður hjá Jónasi sem byrjaði að dansa um borð í gúmmíbátnum. Það vildi nú ekki betur til en svo að hann fór í gegnum botninn á bátnum. Hann var þá einn um borð en náði að grípa í bátinn hjá mér og koma sér um borð. Gúmmíbáturinn var svo dreginn aftur í land þar sem hinir gestimir komu um borð en þau sátu í kringum gatið á botni gúmmíbátsins. Þau komust klakklaust til baka en ég missti árar og fleira úr bátnum vegna dansins hjá Jónasi.“ Bindur inn blöð og tímarit Það kom að því að Jógvan hætti sjómennsku. „Báturinn var orðinn lélegur og það þurfti að leggja mikið í hann til að gera hann góðan aftur. Ég ákvað því að selja vélina úr bátnum og sökkva honum. Þá kom ég í land og byrjaði í Ríkinu,“ sagði Jógvan og þar staifaði hann í sextán ár. Með starfi sínu í Ríkinu vann hann við að binda inn blöð og tímarit og gerir raunar enn og hefur um allnokkurt skeið séð um að binda inn árganga Frétta. Þetta lærði hann þegar hann bjó á Bakkafirði. „Ég hafði lítið að gera og fór yfir til Vopnafjarðar og lærði að binda inn hjá manni sem lengi vel batt inn fyrir Bókasafn Vestmannaeyja," sagði Jógvan sem síðar tók við því starfi. Hann lærði þó stuttan tíma hjá honum og er að mestu leyti sjálfmenntaður í faginu. Fyrir nokkrum árum var Jógvan með námskeið þar sem hann kenndi Eyjamönnum að binda inn og segir hann talsverðan áhuga hafa verið á faginu hér. Hann viðurkennir þó um leið og hann sýnir vinnustofu sína að þetta sé að verða honum erfitt, bækumar séu orðnar ansi þungar fyrir hann. Hann bindur einnig inn fyrir Bókasafn Vestmannaeyja. Frænkan sló í gegn Hann er tryggur föðurlandinu, Fær- eyjum og fylgist vel með sínu fólki. Ein frænka hans heimsótti Eyjamar fyrir tveimur vikum og sló rækilega í gegn á Dögum lita og tóna. Það er stórsöngkonan Eyvör Pálsdóttir. „Já, hún er frænka mín. Ég og langafi hennar emm bræður. Hann er reyndar nýdáinn, dó 1. janúar í fyrra.“ Jógvan lét sig ekki vanta í Akóges og skemmti sér vel yfir söng frænk- unnar þar sem hann sat á fremsta bekk og hún söng til hans, ég veit þú kemur. Jógvan hefur lengi haft áhuga á rit- smíð og hafa margar smásögurnar eftir hann birst í blöðum í Eyjum í kringum jól. Hann byrjaði að skrifa þær á ritvél en þegar tölvan kom var hann ekki lengi að fá sér eina slíka. Reyndar var hann í minnihlutahóp lengi vel enda valdi hann Macintosh tölvur sem aldrei náðu vinsældum í Eyjum. „Ég er svo lélegur í ensku, þess vegna valdi ég Macintosh tölvu, þar var allt á íslensku. I dag er ég reyndar bæði með Mac og PC tölvu. Ég skanna allt á gömlu Macintosh vélina en vinn allt annað á PC, enda er hún miklu hraðvirkari.“ Hann er duglegur að skanna myndir og sýndi blaðamanni innbundnar bækur með ljósmyndum af fjöl- skyldunni og vinum. Aðspurður hvort hann fari mikið á Netið segir hann svo ekki vera en þó kíki hann annað slagið. „Ég var nú bara áðan að skoða hvað þessir pólitíkusar hafa að segja, var að skoða síðuna hjá dómsmála- ráðherranum, bjom.is." Nógu forvftinn til að aðlagast Hann segir að honum hafi gengið vel í gegnum tíðina að aðlagast tækni- nýjungum. ,^Etli það sé ekki út af því að ég er nógu forvitinn til þess. Það hefur mikið breyst með tækni- þróuninni og menn gefa sér minni tíma til að tala við fólk og kynnast því. Aftur á móti hefur tæknin létt mikið undir varðandi heimilisstörfin." Jógvan var ekki lengi að fjárfesta í þvottavél þegar þær komu fyrst fram. „Svo þegar ég kom til Eyja þá keypti ég mér rafmagnseldavél." Jógvan hefur alla tíð verið duglegur að aðlagast tæknibreytingum ýmiss konar og ekki nóg með að maðurinn sé með gsm síma, heldur dugar ekkert minna en myndavélasími, líkur þeim sem knattspymukappinn David Beckham hefur auglýst að undanfömu. „Það em ágætis gæði í þessum myndum,“ sagði Jógvan um leið og hann mundaði símann og smellti af. svenni@eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.