Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2004, Síða 20
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 / Fax 481-1293
FJÖLSÝN
- ómissandi fyrir Eyjamenn!
Áskriftarsíminn er 481-1300
LRTlTZmLR
VEITINGAHÚS
BÁRUSTÍG 11 T A ^
SÍMI 481 3393 \xfvy
Þess virði..! |
Sendibílaakstur - innanbæjar
j Vilhjálmur Bergsteii _ „0„ seMBÍre* nsson IBABÍLL
r “ HO l-ÍVHO U 897-1178 I ^
JÓN Ólafur tekur við verðlaunagripnum úr hendi Valgerðar en á milli þeirra er
Andrés Sigmundsson forseti bæjarráðs.
Þrjátíu og einn kosið
utankjörstaðar í for-
setakosningunum
Senn líður að forsetakosningunum
en kosið verður laugardaginn 26.
júní næstkomandi.
I fundargerð bæjarráðs kemur fram
að bæjarráð hefur samið kjörskrá
vegna forsetakosninganna á grund-
velli kjörskrárstofna Hagstofu ís-
lands. Þá barst ráðinu bréf frá Hag-
stofunni þar sem kemur fram að þrír
kjósendur hafi ranglega verið settir
á kjörskrárstofn í Vestmannaeyjum.
Bæjarráð hefur tekið tillit til þessara
mistaka og gert viðeigandi leiðrétt-
ingar áður en kjörskrá var samin.
Annars er það að frétta af sjálfum
kosningunum að samkvæmt upp-
lýsingum sem fengust hjá Sýslu-
mannsembættinu hefur 31 kosið
utankjörstaðar í Vestmannaeyjum.
E
Ástþór, Baldur og Ólafur Ragnar.
Sá fyrsti kaus 19. maí síðastliðinn
en hægt verður að kjósa utan-
kjörstaðar allt til 26. júní.
Á sjálfan kosningadaginn verður
opið milli kl. 10 og 12 fyrir utan-
kjörstaðaratkvæði. Hin hefðbundna
forsetakosning fer svo fram í
Bamaskólanum.
Valið stendur svo á milli Ástþórs
Magnússonar, Baldurs Ágústssonar
og Ólafs Ragnars Grímssonar sem
nú situr að Bessastöðum.
Hvatningarverðlaunin komu í hlut Godthaab í Nöf
Það var vel til fundið að nota tæki-
færið við opnun Nýsköpunarstofu
Vestmannaeyja á föstudaginn og af-
henda hvatningarverðlaun til þeirra
sem þykja hafa skarað fram úr hér
síðustu árin. Auglýst hafði verið
eftir tilnefningum fyrir nokkru og
bárust alls sex tillögur en niður-
staðan var að veita fiskvinnslu-
fyrirtækinu Godthaab í Nöf fyrstu
hvatningarverðlaunin.
Það kom í hlut Valgerðar Sverris-
dóttur, ráðherra, að afhenda Jóni
Ólafi Svanssyni hvatningarverð-
launin og tók hann við þeim fyrir
hönd félaga sinna í Godthaab sem
eru auk hans Björn Þorgrímsson,
Daði Pálsson, Einar Bjarnason og
Sigurjón Óskarsson útgerðarmaður
sem er sá eini sem ekki vinnur í
fyrirtækinu.
Það var haustið 2001 að fisk-
vinnslufyrirtækið Godthaab í Nöf
var stofnað í Vestmannaeyjum. Að
því stóðu fimm menn og starfsemin
hófst 1. febrúar árið 2002. í byrjun
voru starfsmenn 20 en í dag starfa
hjá fyrirtækinu 40 manns og verka
bolfisk sem bæði er frystur og
sendur út ferskur flug- og sjóleiðis.
Einnig eru þeir að þreifa fyrir sér
með framleiðslu á harðfiski og salt-
fiski sem á að fara á innlendan
markað.
„Þetta kom okkur þægilega á
óvart en það verður þó að hafa í
huga að starfsemin er þó nokkur og
nú starfa hjá okkur um 40 manns,“
sagði Jón Ólafur þegar Fréttir ræddu
við hann eftir að verðlaunin voru
afhent.
„Auðvitað er þetta bæði viður-
kenning og auglýsing fyrir okkur og
starfsfólkið. Verðlaunin koma okkur
á kortið meðal fyrirtækja í sjávar-
útvegi og vonandi verður þetta mik-
ils virði fyrir bæjarfélagið. Við
breytum kannski ekki miklu í
rekstrinum en núna veit fólk frekar
af okkur. Þetta er líka hvatning fyrir
okkur að halda áfram á sömu
braut.“
Jón Ólafur segir að ekki sé hægt
að taka eitthvað eitt út úr þegar
mæla eigi árangur í rekstri. „Þetta
byggist á mörgum þáttum og þeir
mikilvægustu eru samstarf, áræðni
og gott starfsfólk og án okkar góða
starfsfólks værum við ekki í þessari
stöðu í dag,“ sagði Jón að lokum.
Á mánudagsmorguninn var verð-
laununum fagnað með tertu og þar
var fólkinu þakkaður hlutur þess í
þessari viðurkenningu til fyrirtæk-
isins.
Eftirfarandi fyrirtæki, félög og
einstaklingar voru tilnefnd: Anna
Dóra og Jóhanna Jóhannsdætur á
Hressó, Sigmar og Grímur í
Höllinni, Selma Ragnarsdóttir,
Godthaab í Nöf, Miðstöðin og
Ægisdyr, áhugamannafélag um
jarðgöng milli lands og Eyja.
Federicci Farafelle
Federicci Fuisilli 3 lifo
Pick WickTe
Mjólkurkex
Freyju Rosa Draumur
Freyju Risa Rís
Capri Sonne safi lOstk
Pepsi dós 0,5 Itr
Appelsín dós 0,5 Itr
Kjörís Luxusís 4 stk
SSKjötvöruró
SS. kryddl Lærissneiðar
SS. kryddl.framhryggjasneiðar
SS. kryddl.tvírifjur
SS. mexicó kótelettur