Hagtíðindi

Árgangur

Hagtíðindi - 01.12.1986, Síða 19

Hagtíðindi - 01.12.1986, Síða 19
1986 335 Nýtt auðkennistalnakerfí þjóðskrár og fyrirtækjaskrár. Eins og áður hefur ffam komið verður núverandi nafnnúmerakerfi þjóðskrár og fyrir- tækjaskrár lagt niður en í þess stað teknar upp nýjar auðkennistölur fyrir einstaklinga, fyrirtæki, félög og stofnanir, svonefnd kennitala. Af hálfu Hagstofunnar var stefnt að því að þessi bieyting gæti komið til fiamkvæmda frá og með 1. janúar 1987, en jafnffamt hefur verið lögð áhersla á að naftmúmerakerfinu yiði haldið við í eitt til tvö ár hvað snertir fullorðna einstaklinga og aðila á fyrirtækjaskrl Hagstofan hefur nú lokið undirbúningi sínum vegna þessarar breytingar og af hennar hálfu er því ekkert til fyrirstöðu að breytingin fari fram. Mörg fyrirtæki og stofnanir hafa þegar lokið við að búa sig undir þessa breytingu en auk þess hefur heilbrigðiskerfið um alllangt skeið í raun ekki notað nafnnúmer heldur beitt þvf auð- kennistalnakerfi, sem nú verður tekið upp almennt. Ríkisskattstjóri hefur ákveðið, að kenni- tölum verði beitt þegar við álagningu á árinu 1987, og verða kennitölur prentaðar á skatt- framtöl. Framtöl til launaskatts og söluskatts á hins vegar að auðkenna með nafnnúmerum til árslojca 1987. Ymsir opinberir aðilar eru þó skemmra á veg komnir í undirbúningi sfnum fyrir upptöku kennitölu. Þannig mun breytingum á tekjubók- haldskerfi ríkissjóðs ekki verða lokið fyrr en siðari hluta árs 1987, en það veldur því að ríkissjóður, innheimtumenn ríkissjóðs og launa- deild fjármálaráðuneytis munu halda áfram að beita nafnnúmerum á árinu 1987. Frá og með 1. janúar 1988 munu þessir aðilar eingöngu vinna með kennitölur og áskálja að einstaklingar, fyrirtæki, félög og stofnanir verði auðkennd með kennitölum f stað nafnnúmera. Árið 1987 verðurþvíumþóttunartímiíþessum efnum og er óhjákvæmilegt, að bæði talnakerfin verði notuð það ár meðan breytingamar eru að eiga sér stað. Hins vegar er mikilvægt, að breyting þessi verði sem fyrst og að allir aðilar kappkosti að ljúka sem fyrst undirbúningi sfnum fyrir upptöku kennitölu. Hagstofan hefur nú samið við Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar (SKYRR) og Reiknistofnun Háskóla íslands um að þessir aðilar annist fyrir fyrirtæki og stofnanir skráningu nafnnúmera og samsvarandi kennitalna á segul- bönd eða disklinga svo og skráningu kennitalna á móti nafnnúmerum í tölvuskrár stofnana og fyrirtækja. Ennfremur munu nokkur einkafyrir- tæki veita þessa þjónustu. Nánari upplýsingar um þetta eru gefnar hjá leiðbeiningastöð SKÝRR í síma 695100, hjá Reiknistofnun Háskólans í síma 25088 og á Hagstofunni í síma 26699. Þá má nefna, að kennitölur fyrirtækja, félaga og stofnana eru birtar í prentaðri fyrirtækjaskrá Hagstofunnar. Kennitölur einstaklinga og lögaðila verða ennfremur á skattffamtölum, og þeim mun einnig fylgja sérstakt blað með upplýsingum um kennitöluna. Auk breytinganna á auðkennistalnakerfinu hefur að undanfömu verið unnið að víðtækum breytingum á tölvuskrám og tölvuvinnslu þjóð- skrár og fyrirtækjaskrár. Þar má einkum nefna, að nú hefur verið tekin f notkun ný nafnaskrá þjóðskrár og fyrirtækjaskrár. Skráin inniheldur bæði nafnnúmer og kennitölu. Þessi nýja skrá er frábrugðin hinni eldri að því leyti sérstaklega, að rými fyrir nöfn einstaklinga er 31 stafur í stað 23 í eldri skrá og auk þess er öllum fslenskum bókstöfum beitt. Þessar breytingar valda því að þeir aðilar sem nota nafnaskrá þjóðskrár og fyrirtækjaskrár beint við tölvuvinnslu, verða að breyta skrám sínum og hugbúnaði til samræmis við þessa breytingu. Breytingamar á nafnaskránni gera einnig kleift, að lagfæra nafnritun þar sem hún hefur verið brengluð og að laga skammstöfun nafna. Að þessu hefur verið unnið en víst er að þetta hefur ekki tekist til fulls. Hagstofan mun því leita eftir ábendingum um leiðréttingar með blaði því, sem fylgir skattframtölum 1987. Fyrr á þessu ári bað Hagstofan um nafn á hinni nýju auðkennistölu. Margar og góðar ábendingar hafa borist og meðal þeirra má nefna auðkennisnúmer, persónunúmer, eigintala, einka- tala, kennitala, manntala, séitala, mark, tölnafn og tölunafn. Hagstofan hefur ákveðið að nota orðið kennitala sem nafn á auðkennistölu þjóðskrár og fyrirtækjaskrár og mælir með þvf að það heiti verði tekið upp almennt. Hagstofan vill að lokum hvetja alla sem beita auðkennistölum þjóðskrár og fyrirtækjaskrár við tölvuvinnslu og ekki hafa enn gert nauðsynlegar ráðstafanir vegna ofangreindra breytinga til þess að hefjast þegar handa við undirbúning þeirra. Hið sama á við um þá aðila, sem skrá auðkennistölur f viðskiptum sfnum, svo sem á eyðublöðum, bókhaldsgögnum o.þ.h.

x

Hagtíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.