Hagtíðindi

Ukioqatigiit

Hagtíðindi - 01.12.1986, Qupperneq 20

Hagtíðindi - 01.12.1986, Qupperneq 20
336 Bráðabirgðatölur mannfjöldans samkvæmt þjóðskrá 1. desember 1986. 1986 Eflir bráðabirgðatölum var mannfjöldi á landinu 1. desember 1986 243.698. Karlar vom 122.438 en konur 121.260. Á einu ári nemur fjölgunin 1.948 eða 0,81%. Það er nokkru meiri fjölgun en áríð 1985, en talsvert minni en árin þar á undan. Áríð 1985 fjölgaði um 0,68% og árín 1981-84 um 1,21% á ári. Nákvæmar tölur um brcytingar mannfjöldans áríð 1986 liggja ekki fyrir enn, en svo virðist sem tala brou- fluttra af landinu hafl orðið um 200 hærri en tala aðfluttra, en tala fæddra um 2100-2200 hærrí en tala dáinna. Árin 1981-83 fluttust um 1.000 fleiri til landsins en frá því, en árin 1984-86 er fluttist sami fjöldi brott umfram þá sem fluttust hingað frá útlöndum. Brott- flutningur umfram aðflutning áríð 1986 varð minni en að jafnaði 20 árin á undan, 1966-85. Horfur eru á að tala bamsfæðinga sé svipuð þvf árið 1986 sem hún var 1985, en þá og árið 1984 fækk- aði þeim mikið frá fyrra árí. Ætla má, að á árínu 1986 hafl fæðst rúmlega 3.800 böm lifandi, en fæddust 3.856 árið 1985 og 4.371 árið 1983. Hafa ekki fæðst svo fá böm sem 1985 og 1986 sfðan árið 1947, og hefúr þó tala kvenna á bamsburðaraldri rfflega tvöfaldast sfðan þl Ef fæðingartfðni á hvetjum aldri kvenna yrði til frambúðar hin sama og hún var árið 1986, yrðu ófæddar kynslóðir um 8% fámennari en kynslóð foreldranna. —Sem kunnugt er hafa um árabil fæðst í flestum löndum Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku færri böm en sem svarar þvf, að komandi kynslóð verði eins mannmörg og sú sem er nú á bameignaraldri. Á árinu 1986 dóu á landinu á 17. hundrað manns, en lala dáinna vex eilftið frá ári til árs með hækkandi tölu roskins og aldraðs fólks. Á þessum áratug hefur það einkennt fólksfjölg- unina að hún hefur mestöll orðið á höfuðborgarsvæð- inu. Á hvcrju ári 1984-86 hefur fóUci fjölgað meira þar en sem ncmur heildarfjölgun landsmanna, svo að bein fækkun hefúr orðið f öðrum landshlutum saman- lögðum. Fækkaði f þeim um 20 árið 1984, um 142 árið 1985 og um 321 árið 1986. Mannfjöldi óx um 1,7% á höfuðborgarsvæðinu árið 1986 og um 0,4% á Suðumesjum. Hann stóð í stað á Austurlandi. Á Vesturiandi og Suðurlandi fækkaði um 0,2%, á Vestljörðum um 0,5%, á Norðuríandi eystra um 0,6% og á Norðuríandi vestra um 1,1%. í Reykjavfk fjölgaði fólki um 1.627 eða 1,8%. Hefurhlutfallsleg fjölgun ekki orðið meiri í Reykjavfk sfðan 1962, og bein fjölgun ekki meiri sfðan 1959. f öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1,4%, mest 4,9% f Bessastaðahreppi, 3,5% f Garðabæ, 2,2% f MosfeUshrcppi, og 1,8% f Hafnar- firði. f Kópavogi stóð mannfjöldi í stað. —Á Suður- nesjum varð mest fjöleun f Sandgerði, um 2,6%, og f Keflavfk, um 1,2%. ÍGarði fækkaði fólld um 1,7% og um 1,6% f Grindavfk. —Á Vesturiandi fjölgaði í Neshrcppi (Hellissandur, Rif), um 6,8%, en fækkaði á flestum öðrum þéubýlisstöðum, um 1,7% f Ólafsvfk og Stykkishólmi, um 13% f Borgamesi, og um 0,7% á Akranesi. —Á mörgum stöðum á Vestfjörðum er það venjulegt að mannfjöldinn sveiflist upp og niður frá ári til árs. Árið 1986 fjölgaði fólki um 12% á Hólmavfk, um 2,3% á Suðurcyri og um 0,9% f Bolungarvfk, en fækkaði um 2,3% á Flateyri, um 13% á ísaflrði og um 0,7% á Patreksfirði. Veruleg fólksfækkun varð í Norður-ísafjarðarsýslu, um 8,6%. —Á Norðuriandi vestra varð eilftil fjölgun á Sauðár- króki, ttm 0,8%, og á Siglufirði og Hvammstanga stóð mannfjöldi í stað. Hins vegar fækkaði um 4,4% á Blönduósi og um 1,4% á Skagaströnd. í Austur- Húnavatnssýslu varð 33% fólksfækkun. —Á Norður- landi eystra stóð mannfjöldinn f stað á Ólafsflrði, Dalvfk og Akurcyri, en fækkaði um 1,0% á Húsavfk. í Suður-Þingeyjarsýslu fækkaði um 2,7%, og hefúr nú fólld f Þingeyjarsýslum og á Húsavfk fækkað um rúmlega 300 á sfðustu þremur árum. —Á Austuriandi varð fjölgun um 4,7% á Djúpavogi, 3,3% á Fáskrúðs- flrði, og 2,1% f Neskaupstað, en fækkun um 3,8% á Seyðisflrði og 2,7% á Eskifírði. —Á Suðuríandi stóð mannfjöldi svo að segja í stað í Vestmanneyjum og á Selfossi, en fjölgaði um 2.2% f Hveragerði. Bæði f Hvolhreppi og Rangárvallahreppi (þareru Hvolsvöllur og Hella) fækkaði um 1,6%, og í ölfushreppi (þar er Þoríákshöfn) um 0,9%. í Rangárvallasýslu fækkaði um 2,1%. Til skýringar skal tekið fram, að fólksfjölgunar- tölumar eru reiknaðar eftir endanlegum mannfjölda- tölum 1985 og bráðabirgðatölum 1986, að viðbættum 0,14%, en það er sú hækkun sem er talin eiga eftir að koma fram f endanlegum mannfjöldatölum 1. desember 1986, sem munu verða birtar f júnfblaði Hagtíðinda 1987. Ekki er getið brcytinga á mannfjölda f sveitar- félögum með fæni en 400 íbúa, en stórar hlutfallstölur f þeim geta byggst á smáum brcytingalölum. Loks má nefna að höfúðborgarsvæðið er hér talið náyflrReykjavfk, Kópavog, Seltjamames, Bessastaða- hrepp, Garðabæ, Hafnarfjörð, Mosfellshrepp, Kjalameshrepp og Kjósartirepp.

x

Hagtíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.