Hagtíðindi - 01.12.1986, Síða 31
1986
347
Mannfjöldi eftir kyni, aidri og hjúskaparstétt 1975-85.
Skipting mannfjöldans eftir kyni, aldrí og hjú-
skaparstétt er meðal mikilvægustu atríða mann-
fjöldaskýrslna. Hún er það vegna hvors tveggja,
upplýsingagildis þessara mannfjöldatalna sjálfra
og almenns viðmiðunargildis þeirra vegna ýmiss
konar verkefna. Upplýsingagildið felst í þvf að
kyn, aldur og hjúskaparstétt einstaklings upplýsir
að nokkru leyti stöðu hans f samfélaginu, hagi og
þarfir, og að samsetning mannfjöldans eftir kyni,
aldri og hjúskaparstétt upplýsir að nokkru leyti
gerð samfélagsins, hagi þess og þarfir. Almennt
viðmiðunargildi hafa þessi þtjú einkenni einstakl-
ings og mannfjölda af tveimur meginástæðum.
Annars vegar er það vegna hinna fjöldamörgu
tengsla þeirra við önnur einkenni á sviði náttúru-
og félagsvísinda, sem sýnt hefur verið fram á í
þeim greinum. Hins vegar er það vegna þess að
þau eru einhlítari til skráningar og talningar en
önnur einkenni, einkum félagsleg, sem kunna að
hafa jafnmikið gildi og þau vegna röklegra
tengsla, en erfiðara er að henda reiður 1 Kyn og
aldur eru líffræðileg einkenni og óháð ytri
áhrifum, og hjúskaparstétt, sem er félagslegt
einkenni, breytist aðeins með lögformlegum hætti.
Það hefur verið spurt um kyn, aldur og hjú-
skaparstétt við öll aðalmanntöl sfðan 1703 og
unnar ýmiss konar töflur úr. Síðan 1974 hafa
verið gerðar árlegar mannfjöldatöflur, sem sýna
kyn aldur og hjúskaparstétt eftir þjóðskrá 1.
desember, og birtur útdráttur úr þeim f Hag-
tfðindum, sfðast f janúarblaði 1986. Reiknaðar
tölur miðað við árslok hafa verið unnar
eftir þessum töflum og birtar, síðast í júlíblaði
Hagtíðinda 1986. Áætlaðar tölur eru til fyrir
einstök ár fyrir 1974, og voru töflur með ársloka-
tölum og meðalmannfjöldatölum birtar í Mann-
fjöldaskýrslum 1961-70 (hagskýrsluhefti nr.
11,61). Þar var þó aðeins birt skipting eftir kyni
og aldri. Töflur yfir meðalmannfjölda árin
1971—80 eftir kyni, aldri og hjúskaparstétt liggja
fyrir f handriti og verða birtar í Mannfjölda-
skýrslum 1971-80, sem koma út á næsta ári.
Tölur um meðalmannfjölda árið 1981 og síðan
hafa birst með árslokatölunum f Hagtfðindum (sjá
júlíblað Hagtíðinda 1986). Rétt er að nota ársloka-
tölumar til viðmiðunar, þegar um er að rasða stöðu
f lok árs, en meðalmannfjöldatölur þegar fengist er
við stöðu á miðju ári eða fundnar tíðnitölur yfir
árið.
Mannfjöldatölur þær, sem notaðar eru f þessari
grein, eru:
1. 1975-85 reiknaðar árslokatölur, sem
birst hafa í Hagtíðindum.
2. 1970 reiknaðar árslokatölur, þar sem
skipting á kyn og aldur er reiknuð á sama
hátt og 1975-85, en skipting á
hjúskaparstétt er reiknuð aftur á bak frá
árslokatölum 1974.
3. 1940,1950 og 1960 manntalstölur 1.
desember (1940 2. desember).
Mannfjöldinn skdptist á kyn sem hér segir árin
1940-85:
1940 1950 1960 1970 1975 1980 1985
Mannfjöldi alls 121.474 143.973 175.680 204.834 219.262 229.327 242.203
Kariar 60.325 72.249 88.693 103.566 110.753 115.583 121.721
Konur 61.149 71.724 86.987 101.268 108.509 113.744 120.482
Karlar á móti 1.000 konum 987 1.007 1.020 1.023 1.021 1.016 1.010
Á fslandi hafa fæðst að jafnaði (1851-1985)
5,9% fleiri sveinar en meyjar. Samt hafa konur
verið fleiri en karlar lengst af, en síðan 1950 hafa
karlar verið 1-2% fleiri en konur. Áður fyrr olli
há dánartfðni ungbama þvf, að kynhlutfollin
snemst við, því að dánartíðni sveinbama er meiri
en meybama. Nú er það hærri dánartíðni karla en
kvenna í öllum aldursflokkum sem dregur úr
umframtölu karla.
Tafla 1 sýnir skiptingu mannfjöldans í nokkra
stóra aldursflokka 1940-85 og fjölgun í þeim, svo
og sams konar tölur fyrir fyrir fólk á aldrinum
15-64 ára og á öðmm aldri. Það er alþjóðleg hefð
að telja 15-64 ára fólk á verkfæmm aldri. Áf töfl-
unni sést, að hlutfall bama innan 15 ára aldurs er
lægra árið 1985 en það hefur verið áður á því tíma-
bili sem taflan nær yfir, en hlutfall roskins fólks
og aldraðs, 65 ára og eldra, hærra en áður.
Fjölgunartölumar sýna hvemig hlutfallslegar
breytingar á stærð árganga hafa áhrif á sam-
setningu mannfjöldans. Fámennari árgangar eftir
1970 en að jafnaði áratugina tvo á undan valda
fækkun bama á grunnskólaaldri 1971-85. Fjölg-
un fæðinga 1940 til 1960 olli milrilli fjölgun fólks
á bamaskólaaldri 1951-60, á framhaldsskólaaldri
1961-70 og á þeim aldri, sem tengist fjölskyldu-
myndun, húsnæðisöflun og upphafi atvinnuþátt-
töku 1971-85. Geysimikil fjölgun aldraðra, 80 ára
og eldri, 1971-85 endurspeglar fjölgun fæðinga
og minni ungbamadauða að loknum harðindaámm
fyrir 1890, svo og lækkandi dánartíðni í öllum
aldursflokkum undanfama áratugi.
í töflu 2 er sýnd skipting mannfjöldans eftir
kyni og 5 ára aldursflokkum 1975,1980 og 1985.