Hagtíðindi - 01.01.1997, Blaðsíða 46
40
1997
Vísitala neysluverðs í janúar 1997
Consumer price index in January 1997
Vísitala neysluverðs miðað við verðlag í janúarbyijun 1997
reyndist vera 178,4 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,3%
frá desember 1996. Vísitala neysluverðs án húsnæðis í janúar
reyndist vera 182,5 stig og hækkaði um 0,2% frá desember
1996.
Grænmeti og ávextir hækkuðu um 7,5%, sem hækkaði
vísitölu neysluverðs um 0,17%. Hækkun á gjöldum vegna
fasteignaum7,0% olli 0,12% hækkun neysluverðsvísitölunnar.
Orlofsferðir til útlanda lækkuðu um 4,6% sem lækkaði
neysluverðsvísitöluna um 0,14%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 2,0% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,9%.
Undanfama þijá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um
0,2%, sem jafngildir 0,2% verðhjöðnun á ári. Sambærileg
þriggja mánaða breyting á vísitölu neysluverðs án húsnæðis
svarar til 0,7% verðhjöðnunar á ári.
Árið 1996 var vísitala neysluverðs að meðaltali 2,3% hærri
en árið áður, en sambærileg meðalhækkun 1995 var 1,7% og
1,5% árið 1994.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis var árið 1996 2,7% hærri
en að meðaltali árið áður, en sambærileg meðalhækkun 1995
var 1,4% og 1994 1,7%.
Vísitala neysluverðs í janúar 1997, sem er 178,4 stig, gildir
til verðtryggingar í febrúar 1997. Vísitala fyrir eldri ljárskuld-
bindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 3.523 stig
fyrir febrúar 1997.
Breytingar vísitölu neysluverðs 1995-1997
Changes in the consumer price index 1995-1997
Vísitala Index Maí 1988 = 100 Breytingfrá fyrramánuði, Change on previous month, % Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar Annual rate based on the change in the last
Síðasta mánuð, Month, % Síðustu 3 mánuði, 3 months, % Síðustu 6 mánuði, 6 months, % Síðustu 12 mánuði, 12 months, %
1995 1995
Janúar 172,1 0,8 9,5 3,1 2,0 1,7 January
Febrúar 172,3 0,1 1,4 3,8 2,1 1,7 February
Mars 172,0 -0,2 -2,1 2,8 1,2 1,4 March
Aprfl 171,8 -0,1 -1,4 -0,7 1,2 1,1 April
Maí 172,1 0,2 2,1 -0,5 1,6 1,3 May
Júní 172,3 0,1 1,4 0,7 1,8 1,3 June
Júlí 172,8 0,3 3,5 2,3 0,8 1,4 July
Agúst 173,5 0,4 5,0 3,3 1,4 1,8 August
September 174,1 0,3 4,2 4,2 2,5 1,8 September
Október 174,9 0,5 5,7 5,0 3,6 2,4 October
Nóvember 174,3 -0,3 -4,0 1,9 2,6 2,1 November
Desember 174,2 -0,1 -0,7 0,2 2,2 2,0 December
Meðaltal 173,2 • 1,7 Average
1996 1996
Janúar 174,9 0,4 4,9 0,0 2,4 1,6 January
Febrúar 175,2 0,2 2,1 2,1 2,0 1,7 February
Mars 175,5 0,2 2,1 3,0 1,6 2,0 March
Apríl 175,8 0,2 2,1 2,1 1,0 2,3 April
Maí 176,9 0,6 7,8 3,9 3,0 2,8 May
Júní 176,7 -0,1 -1,3 2,8 2,9 2,6 June
Júlí 176,9 0,1 1,4 2,5 2,3 2,4 July
Agúst 178,0 0,6 7,7 2,5 3,2 2,6 August
September 178,4 0,2 2,7 3,9 3,3 2,5 September
Október 178,5 0,1 0,7 3,7 3,1 2,1 October
Nóvember 178,6 0,1 0,7 1,4 1,9 2,5 November
Desember 177,8 -0,4 -5,2 -1,3 1,2 2,1 December
Meðaltal 177,1 • • 2,3 Average
1997 1997
Janúar 178,4 0,3 4,1 -0,2 1,7 2,0 January