Baldur - 19.12.1942, Page 1
BALDUR
ÚTGEFANDIi SÓSÍ ALISTAFÉLAG ÍSAFJARjÐAR
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Sig. S. Thoroddsen.
Prentstofan ísrún.
ísaHörður, 19. des. 1942 12. tölublað.
VIII. ÁRG.
Rikisstjóri skipar
nýja rikisstjórn.
Afstaða Sósíalistaflokksins til myndunar
þingræðisstjórnar.
Ríkisstjóri Islands hefur
skipað nýja ríkisstjórn. Er
hún skipuð fjórum utanþings-
mönnum, þeim Birni Þórðar-
syni, lögmanni, sem er forsæt-
isráðherra, Einaii Arnórssyni,
hæstaréttardómara, sem er
dómsmálaráðherra, Vilhj álmi
Þór, bankastjóra, sem er utan-
ríkis- og atvinnumálaráðherra
og Birni Ólafssyni, stórkaup-
manni, sem er viðskiptamála-
og fj ármálaráðherra. Hinn nýi
forsætisráðherra hefur tjáð
Jjingheimi, að fimmti ráðherr-
ann muni verða skipaður inn-
an skamms, og mun sá eiga að
fara með félagsmálin.
Forsaga Jiessarar stjórnar-
myndunar er, eins og öllum
mun vera kunnugt, sú, að Bík-
isstjóri fór Jtess á leit við flokk-
ana, áður en Alþingi kom
saman, að hver flokkurinn út-
néfndi tvo menn til að reyna
að koma á fjögra i'lokka
stjórn. Urðu allir flokkar við
Jtessari málaleitan, en eftir
marga fundi varð sýnt, að
ókleift var á þessu stigi máls-
ins, að mynda stjórn með full-
trúum frá öllúm fjórum flokk-
unum. Beyndi Ríkisstjóri því
næst að fá formann hvers
i'Iokks fyrir sig til að mynda
stjórn og ennfremur fór hann
J>ess ó lcit við forseta Samein-
aðs J)ings, Harald Guðmunds-
son, en allt kom fyrir ekki.
Samkomulag náðist ekki. Og
mun Rikisstjóri J)ví hafa talið
allar leiðir lokaðar til mynd-
unar þingræðislegrar stjórnar
og gripið til þess óyndisúrræð-
is, að skipa utanþingsstjórn,
sem ekki hefur ákveðinn þing-
meirihluta að baki sér.
Að svo stöddu skál engu
spáð um hina nýju stjórn, en
heldur þykir Baldri sú ráð-
stöfun vafasöm, að skipa sem
ráðherra viðskiptamála og
fjármála þann manninn, sem
skeleggast hefur barist fyrir
hagsmunum heildsalaklíkunn-
ar íslenzku.
Andstæðingar Sósíalista-
flokksins í öllum gömlu þjóð-
stjórnarflokkunum aja mjög á
því, að þingræðisstjórn hafi
ekki verið hægt að setja á
laggirnar vegna afstöðu sósí-
alista. Ekkert er fjær sanni.
Sósíalistar vildu og vilja enn
taka þátt í stjórnarmyndun
með hvaða flokki, sem er, eða
hvaða flokkum, sem er, en að-
eins undir vissum, ákveðnum
skilyrðum. Sósíalistar vilja að
gerður verði ákveðinn róttæk-
ur málefnasamningur, sem
birtur verði fyrir þjóðinni í
heild. . Hinir þingflokkarnir
vilja J)etta ekki, J)vi J)eir vilja
al' gömlum vana hafa mögu-
leikann opinn til svikráða
gegn kjósendum sínum.
Allt ástand hér á landi er
orðið mjög svo ískyggilegt.
Þetta alvarlega ástand varð til
undir stjórn þjoðstjórnar-
flokkanna, sem létu stríðs-
gróðann flæða taumlaust í
hendur örfárra einstaklinga,
og sem beindu öllum viðski])l-
um í farveg glysvarnings,
vegna J)ess að J)ar skapaðist
mestlu• gróðinn fyrir inn-
flytj endurna. Þj óðstj órnar-
flokkarnir einir l)era því á-
byrgðina á þessu alvarlega á-
standi i þjóðfélagsmálum okk-
ar íslendinga. Til þess að ráða
hót á J)essu ástandi þarf
róttæka og sterka stjórn. Só-
síalistaflokkurinn hefur kom-
ið fram til kosninga með á-
kveðnar róttækar tillögur til
úrbóta. Þjóðin vill J)essa rót-
tækni, sem Sósíalistaflokkur-
inn hefur borið fram. Það
sýna hinir glæsilegu sigrar
flokksins á J)essu ári. Fólkið
vill, að gripið verði föstum
tökum á málum, en ekki neitt
hopp og hí, eins og varð t. d.
undir stjórn „hinna vinnandi
stétta“ á árunum 1934—38. Ef
Sósíalistaflokkurinn myndaði
stjórn með hinum flokkunum
nú, án þess að fullt samkomu-
lag væri fyrir hendi um rót-
tækan málefnagrundvöll og
full trygging væri i'yrir því, að
þessi málefni kæmust í fram-
kvæmd, þá væri hann þar
með að svíkjast að þjóðinni,
sem einmitt heimtar fösl hand-
tök. Minnumst bara stjórnar
Framsóknar og Alþýðuflokks-
ins 1934—1938. Ekki vantaði
að sú stjórn hefði öruggan
þingmeirihluta að haki sér, og
ekki vantaði að gefin höfðu
verið mörg og mikil loforð, en
hvað varð úr efndum? Litið
sem ekki neitt til handa ís-
lenzkri alþýðu. Og hvers-
vegna? Vegna þess, að enginn
ákveðinn málefnasamningur
var fyrir hendi og engin trygg-
ing fyrir því, að þau fáu mál,
sem um hafði verið rætt, yrðu
framkvæmd. Ef Sósíalista-
flokkurinn fetáði í dag í fót-
spor Framsóknar og Alþýðu-
flokksins, þá væri hann að
ganga á gefin loforð sín við
vinstri kjósendur landsins.
í þessu sambandi má minna
á, að Jiegar útséð var, að ekki
var fyrir hendi möguleiki til
myndunar fjögra flokka þing-
ræðisstjórnar, en allir flokk-
arnir höfðu liinsvegar birt
stefnuskrár sínar, sem í sum-
um atriðum dýrtíðarmálanna
fóru saman, þá stakk Sósial-
istafl. upp á þeirri lausn, að
allir flokkarnir sameiginlega
bæru fram á Alþingi tillögur
til úrbóta á J)ýðingarmesta
málinu, dýrtíðarmálinu, og
kæmi það eitt í tillögurnar,
sem allir flokkar höfðu lýst
yfir samþykki sínu. En þar til
þingræðisstjórn kæmist á lagg-
irnar skyldi skipa utanþings-
stjórn í samráði við þing-
flokka, fyrirbrigði, sem al-
þekkt er i þingræðislöndum.
Framsókn lýsti yfir samþykki
sínu við þessar tillögur Sósíal-
ista, en íhaldið og kratar felldu
J)ær. Sýnir þetta vel einlægni
þessara gömlu samherja, i-
haldsins og kratanna, til að
ráða bót á mestu meinsemd-
inni í ísl. þjóðlífi, dýrtíðinni.
En hver voru nú skijyrði
Sósíalistaflokksins fyrir J)átt-
töku í ríkisstjórn? Jónas frá
Hriflu hefur heimskað sig á
því (eftir að blaðstjórn hans
eigin blaðs, Tímans, hafði tek-
ið fram fyrir hendur honum,
og látið brenna heilu upplagi
af Tímanum vegna ritsmíðar
Jónasar) að segja, að skilyrði
„kom'múnista" hafi verið það,
að íslenzka ríkið segði Hitler-
Þýzkalandi stríð á hendur.
Auðvitað er J)etta hin mesta
firra, eins og við m,átti búast
frá þessum herramanni. Skil-
yrðin, sem Sósialistafl. setti
voru í aðalatriðum þessi:
Dýrtíðarmálin:
Afnumdir verði tollar á öll-
um nauðsynjavörum meðan
stríðið stendur og tekin upp
skömmtun á nauðsynjavörum,
sem skortur er á.
Stefnt verði að þvi að hækka
gengi ísl. krónu án þess þó að
smáframleiðendur bíði tjón
við þá ráðstöfun.
Komið verði á landsverzlun,
er annist alla utanríkisverzlun
meðan stríðið stendur og sem
láti nauðsynlegasta innflutn-
inginn sitja í fyrirrúmi.
Kaupgjaldið um allt land verði
samræmt með frjálsum samn-
ingum við verklýðsfélögin.
Otreikningur vísitölunnar
verði endurskoðaður.
Samningar verði gerðir við
fulltrúa bænda um fast afurða-
verð og verðuppbætur, með
það fyrir augum að ákveðið
frumverð á landbúnaðarafurð-
um geti haldist út’striðið, en
hækki eins og kaupið, sam-
kvæmt dýrtíðarvísitölu.
Skattur á stríðsgróðann verði
hækkaður.
Strangt eftirlit með útlán-
um bankanna.
Sala fasteigna, skipa, og
jarða í gróðabrallsskyni verði
bönnuð meðan stríðið stendur
yfir, til J)ess að stöðva i'ast-
eignabraskið með öllu og koma
í veg fyrir að stríðsgróðamenn-
irnir geti sölsað undir sig meg-
inhluta J)jóðarauðsins.
Verðeftirlitið verði stórum
endurbætt.
Fastasamningur verði gerð-
ur við verklýðssamtökin til
J)ess að tryggja nauðsynlegum
atvirtnuvegum nægilegt vinnu-
afl.
Þetta eru J)á skilyrðin, sem
flokkurinn setti í dýrtíðarmál-
um, fyrir þátttöku í ríkis-
stjórn. Róttæk skilyrði, en hér
duga ekki nein vetlingatök, ef
bót á að fást. Ennfremur voru