Baldur - 17.02.1945, Side 4
16
B A L D U R
Aðalfundir Baldurs og
Sj ómannaf élagsins.
Verkalýðsfélagið Baldur hélt að-
alfund sinn s.l. þriðjudagskvöld.
Á fundinum voru samþykktar
lagabreytingar um hækkun félags-
gjalda í 40 kr. hjá körlum og 25
kr. hjá konum, ennfremur um
kosningu trúnaðarráðs, skipað 25
mönnum auk félagsstjórnar.
Tveir listar komu fram við
stjórnarkosningu: A-listi, skipaður
fráfarandi stjórn, og B-listi, en á
honum voru:
Halldór Ólafsson, Odda, for-
maður. Guðm. Bjarnason, Þórs-
hamri, varaform. Þórarinn Jóns-
son, ritari. Þorbjörn Eggertsson,
gjaldkeri. Sigurður Hannesson, bíl-
stjóri, fjármálaritari.
A-listinn fékk 138 atkvæði, B-
listi 31, auðir seðlar vo.ru 7 og 1
\jgildur.
Sjómannafélagið liafði auglýst
fund s.l. miðvikudag, en hann gal
ekki orðið, vegna þess að bátar
voru almennt á sjó. Fundurinn var
því auglýstur aftur á fimmtudags-
morgun og háldinn þann dag.
Á fundinum var samþ. að gjald-
ið hækkaði í 40 kr. og ákvæði um
að listakosning megi fara fram inn-
an félagsins.
Nefnd hafði verið kosinn til að
gera tillögur um stjórn. Hafði
meirihluti hennar lagt til að stjórn-
in yrði óbreytt, en minnihlutinn,
að Árni Magnússon yrði formaður,
Birgir Guðmundsson ritari og Lúð-
vík Kjartansson, meðstjórnandi, en
fjármálaritari og gjaldkeri yrðu
þeir sömu.
Kosið var eftir listum, A-listi
skipaður að tilíögum meirihluta
uppstillingarnefndar fékk 83 at-
kvæði. B-listi skipaður að tillögum
minnihlutans fékk 38 atkvæði.
Stjórnin var því endurkosin
óbreytt.
NYKOMIÐ :
Herrafrakkar
Dömukápur og dragtir
Telpukápur og dragtir
Dömukjólar og margt fleira.
Allt nj’jasta tízka!
KARLSBDÐ.
Bíó Alþýðuhússins
sýnir:
Laugardag og sunnudag
klukkan 9:
Liljur vallarins.
Kvikmynd af skáldsögu
Charles Nordhoffs og
James Norman Halls.
Aðalhlutverk:
Charles Laughton
Jon Hall
Peggy Drake.
Sunnudag kl. 5:
Nú er það svart maður.
Barnasýning.
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■]
Tilkynning
Viðskiptaráðið hefur ákveðið eftirfarandi há-
marksverð á benzíni og olíum:
Benzín......... kr. 0,70 pr. ltr.
Hráolía ......... — 500,00 — tonn
Ljósaolía......— 740,00 — —
Ofangreint verð á benzíni og hráolíu er mið- S
að við afhendingu frá tank í Reykjavík, en ljós- g
olíuverðið við afhendingu í tunnum í Reykjavík. £
Sé hráolía afhent í tunnum, má verðið vera kr. ■
25,00 hærra pr. tonn en að ofan greinir.
Á Akureyri og Eskifirði má verðið á benzíni ■
vera 7 aurum hærra en að ofan segir, en á öðrum ■
stöðum utan Reykjavíkur, sem benzín er flutt til g
á sjó, má verðið vera 9 aurum hærra. Sé benzín jj
flutt landleiðis frá Reykjavík, Akureyri eða Eski- ■
firði, má bæta einum eyri pr. ltr. við grunnverðið ■
á þessum stöðum fyrir hverja fulla 25 km. Verð- ■
lagsstjóri ákveður verðið á hverjum sölustað sam-
kvæmt framansögðu.
1 Eafnarfirði skal verðið á hráolíu vera hið
sama og í Reykjavík. I verstöðvum við Faxaflóa ■
og Suðurnesjum má verðið vera 40,00 krónum ■
hærra pr. tonn, en annars staðar á landinu kr. ■
50,00 hærra pr. tonn.
í Hafnarfirði skal verðið á ljósaolíu vera hið ■
sama og í Reykjavík, en annars staðar á landinu jj
má það vera 70,00 krónum hærra pr. tonn.
Ofangreint hámarksverð gildir frá og með ■
3. febrúar 1945.
Reykjavík, 2. fehrúar 1945.
VERÐLAGSSTJÖRINN.
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Auglýsing
um fyrirkomulag flskflutninga o. 11.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið eftirfarandi reglur um
fyrirkomulag á útflutningi fisks, hagnýtingu afla og
verðjöf nunarsvæði:
I. Verðjöfnunarsvæði skulu vera þessi:
1. Reykjanes og Faxaflói.
2. Snæfellsnes, Breiðafjörður og Vestfirðir að
Bíldudal að honum meðtöldum.
3. Aðrir Vestfirðir og Strandir.
4. Norðurland frá Hrútafirði að Langanesi.
5. Austurland frá Langanesi að Hornafirði að
honum meðtöldum.
6. Vestmannaeyjar og Suðurland.
II. öll skip, sem flytja út ísaðan fisk á vegum sam-
laga útvegsmanna eru undanþegin verðjöfnunar-
gjaldi því, er um ræðir í auglýsingu samninga-
nefndar utanríkisviðskipta, dags. 10. janúar 1945,
enda sé eftirtöldum skilyrðum fullnægt:
a. Samlögin séu opin öllum útvegsmönnum á sam-
lagssvæðinu.
b. Samlögin úthluti arði af rekstri skipanna í hlut-
falli við heildarafla fiskeigenda (báts) án til-
lits til þess hvort aflinn er fluttur út ísaður,
lagður upp í salt, til herzlu, í hraðfrystihús,
eða nýttur á annan hátt, enda geti samlags-
stjórn ráðstafað afla félagsmanna (bátanna)
á þann hátt er hún telur henta bezt í hvert
skipti, til þess að heildarafli hagnýtist sem bezt.
Þeir bátar einir sem eru í samlögum og hlýða
reglum þeirra geta vænst þess að verða aðnjót-
andi réttinda samkvæmt þessum reglum.
c. Skip þau, er annast útflutninginn séu á leigu
hjá samlögunum og rekin á þeirra ábyrgð, sam-
kvæmt skilmálum, sem ríkisstjórnin samþykkir.
d. Að samlögin fallist á að hlíta þeim skilyrðum,
er ríkisstjórnin kann að setja, að öðru leyti,
fyrir starfsemi þeirra.
III. Verðjöfnunarsjóði hvers svæðis skal úthlutað til
fiskeigenda á svæðinu eftir fiskmagni, eftir að
frá hefur verið dregið það fiskmagn sem flutt er
út á vegum samlaganna samkvæmt II. lið þessarar
auglýsingar. Greiðslan skal vera ákveðin upphæð
pr. kg. án tillits til þess hvort fiskurinn er fluttur
út ísaður, lagður upp í hraðfrystihús, herzlu eða
saít eða nýttur á annan hátt. Sjóður þess skal
gerast upp mánaðarlega og fari útborgun fram
eins fljótt og auðið er.
IV. Reglur um úthlutun á arði sem verða kann af
fiskútflutningi þeim, sem fram fer á vegum ríkis-
stjórnarinnar verða settar síðar.
Ákvæði þessi eru hér með sett samkvæmt lögum nr. 11,
12. febrúar 1940, til að öðlast gildi þegar í stað og gilda
fyrst um sinn, þar til öðru vísi kynni að verða ákveðið.
Atvinnumálaráðuneytið, 10. febrúar 1945.
Áki Jakobsson.
/Gunnl. E. Briem.
\