Baldur - 01.06.1946, Page 1
UTGEFANDI: SÖSlALISTAFÉLAG ÍSAFJARÐAR
XII. ÁRG.
ísafjörður, 1. júní 1946
15. tölublað.
Viðskiptasamningar
milli Islands og Sovét-
ríkjanna.
Þann 27. maí s. 1. var und-
irritaður viðskiptasamning-
ur milli Islands og Sovét-
ríkjanna. Samkvæmt þeim
sanmingi seljum við Islend-
ingar Sovétríkjunum síld,
síldarlýsi og hraðfrystan
fisk, en kaupum aftur á
móti af þeim timbur, kol o.
fl. Mismunurinn á verði
hinna íslenzku afurða og
þeim vörum, sem keyptar
verða af Sovétríkjunum,
greiðist í dollurum.
Þessi viðskiptasamningur
er mjög mikils virði fyrir
okkur Islendinga, bæði
vegna þess að liann er okk-
ur mjög hagstæður, þar sem
gera má ráð fyrir að við
seljum mun meira en við
þurfum að kaupa og fáum
mismuninn greiddan í doll-
urum, en þeir eru viðskipta-
miðill, sem allstaðar gildir,
og ekki síztv'egnaþess,aðvið
komumst með þessum samn-
ingi í verzlunarviðskipti við
land, sem byggir öll innkaup
sín og utfluttning á fyrir-
fram gerðri áætlun og er al-
gerlega laust við kreppur og
hrun auðvaldsskipulagsins
og allar afleiðingar þeirra.
Afköst síldarverksmiðjanna
tvöfaldast á tveimur árum.
I sumar munu heildarafköst síldarverksmiðja ríkisins
verða allt að tvisvar sinnum meiri en þau voru 1944.
Þessi afkastaaukning stafar aðallega af því, að fyrir
næstu síldarvertíð verður lokið byggingu nýrra verk-
smiðja, sem verið er að reisa að tilhlutun atvinnumála-
ráðherra, má þar einkum nefna hinar miklu síldarverk-
smiðjur á Siglufirði (11000 mál) og á Skagaströnd (8500
mál).
Þá er verið að auka afköst flestra eldri verksmiðjanna,
ýmist með því að bæta við nýjum vinnsluvélum, þurkur-
um, pressum, skilvindum — eða með auknu gufumagni.
Þessi auknu afköst sfldarverksmiðjanna munu þegar á
þessu sumri auka framleiðslu landsins á síldarafurðum
um 45—50 mfljónir króna og þjóðhagslega séð gera betur
en að greiða allan byggingarkostnað við hinar nýju verk-
smiðjur og stækkanir.
Glæsilegur fundur Sósíal-
istaflokksins í Bolungarvík.
Sósíalistaflokkurinn boðaði
til almenns stjórnmálafundar í
Bolungarvík s. 1. fimmtudags-
kvöld. Á fundinum mætti Sig-
fús Sigurhjartarson alþingis-
maður, er flutti þar ítarlegt er-
indi um stjórnmálin 1939—
1946 og framtíðarhorfur. Einn-
ig tók Jón Tímóteusson, fram-
bjóðandi Sósíalistaflokksins í
Norður-lsafjarðarsýslu til máls
á fundinum.
Fundurinn var mjög vel
sóttur og ræðumönnum ágæt-
lega tekið.
I -gærkvöldi boðaði Sósíal-
istaflokkurinn til fundar i
Súðavík og mættu þeir Jón
Tímóteusson og Sigfús Sigur-
hj artarson þar einnig. Af þeim
fundi hafði blaðið ekki fréttir,
áður en það fór í pressuna, en
allar líkur benda til þess, að
Álftfirðingar hafi ekki orðið
eftirbátar Bolvíkinga um fund-
arsókn.
Það leikur ekki á tveim
tungum, að síldveiði og fram-
leiðsla og sala síldarafurða er
ein allra þýðingarmesta at-
vinnu grein okkar Islendinga.
Sú var tíðin að með fuílum
rétti mátti segja að það væri
síldin, sem réði stefnunni i ís-
lenzkum stjómmálum. Væri
síldveiði góð og markaður hag-
stæður, batnaði afkoma þjóð-
arbúsins og þá var hægt að
leggja í miklar opinberar
framkvæmdir. Brygðist þetta
aftur á móti, varð að draga
saman seglin.
Reynsla undanfarinna ára
hefur sýnt, að því fer fj arri að
þessi gullnáma hafi verið hag-
nýtt eins vel og nauðsynlegt
var. Hefur það því nær að öllu
leyti stafað af því, að ekki var
hægt að hagnýta þann síldar-
afla, sem barst að landi. Allir,
sem síldveiði hafa stundað,
kannast við biðina eftir lönd-
un, þegar veiðiskipin urðu að
híða dag eftir dag, lilaðin af
síld, eftir því að þau fengju
losað. Skilningur íslenzkra
stjórnarvalda á nauðsyn þess,
að úr þessu yrði bætt, var
þannig, að fullt útlit var fyrir
að þau legðu kapp á að við-
halda þessu ástandi. Má því til
sönnunar minna á, er þjóð-
stjórnin neitaði síldarverk-
smiðjunni Rauðlcu á Siglufirði
að byggja 500 mála verk-
smiðju sumarið 1940.
Nú hefur orðið stórbreyting
til batnaðar á þessum málum.
Samkvæmt stefnuskrá nú-
verandi ríkisstjórnar og fyrir
atheina og dugnað Áka Jakobs-
sonar, a tvinnumá 1 aráðherra,
hefur nú verið hafizt handa
um bjrggingu nýrra síldarverk-
smiðja og stórfelldar endur-
bætur á eldri verksmiðjunum
og það af svo miklum dugnaði
að fullvíst má telja, að þegar
á síldarvertíðinni í sumar verði
afköst síldarverksmiðj a ríkis-
ins tvöfölduð frá því sem þau
voru 1944. Takist þessi fyrir-
ætlun er það met í byggingar-
hraða síldarverksmiðja hér á
landi.
Meirihluti stjórnar Síldar-
verksmiðja ríkisins taldi hæfi-
legt, að þessar verksmiðjur
yrðu byggðar á tveimur til
þremur árum, og nú fyrir
nokkru lagði verksmiðj u-
stjórnin það til við atvinnu-
málaráðherra, að hætt væri við
byggingu verksmiðjunnar á
Skagaströnd, taldi ómögulegt
að koma báðum verksmiðjun-
um upp samtímis.
Atvinnumálaráðherra lagð-
ist þegar gegn þessari stefnu
verksmiðjustjórnar og fyrir
harðfylgi hans og þingmanna
sósíalistaflokksins eru þessi
mál nú komin á þann rekspöl,
sem lýst hefur verið hér að
framan.
Það, sem verið er að byggja
af verksmiðj um og bætist við
frá því sem var 1944 er sem
hér segir (miðað við afköst í
málum á sólarhring.
Síldarverksm. Ingólfsfirði
(stækkun) .............. 2 500
Síldarverksm. Dagverðar-
eyri (stækkun) ......... 1 400
Kveldúlfur, Hjalteyri st.) 2 500
Síldarverksm. ríkisins, —
Skagaströnd ............. 8 500
Síldarverksm. Rauðka, —
Siglufirði .............. 2 500
Síldarverksm. rikisins (SR
40) Siglufirði ......... 11 000
Síldarverksm. ríkisins (SR
30) Siglufirði (st.) .... 3 000
Alls 31 400
Með þessari aukningu
komast heildarafköst sfld-
arverksmiðjanna upp í 76-
400 mál á sólarhring úr
38000 málum 1944 og 45000
málum 1945.
Sjómenn og útgerðarmenn
munu áreiðanlega. fagna því,
hve röggsamlega hefur verið
unnið að því að auka afköst
síldarverksmiðjanna og þar
með séð fyrir þvi að síldarskip
þurfi ekki að bíða eins lengi
eftir losun og áður var, enda
þótt þeim skipum, sem síld-
veiði stunda, fjölgi frá því sem
nú er. Fjárhagslegur ábati sjó-
manna og útgerðarmanna af
þesari ráðstöfun verður geisi-
mikill, þegar þess er gætt, að
síldarmálið verður í sumar á
30 krónur, eins og forsætisráð-
herra hefur tilkynnt. Undan-
farin sumur má óhætt fullyrða,
að hver biðdagur eftir löndun
hefur kostað þjóðarbúið
hundruð þúsunda króna hvað
þá með því háa verði, sem nú
verður.
Til þess að gefa nokkra hug-
mynd um þann hagnað, sem
verður af þessari afkastaaukn-
ingu síldarverksmiðjanna má
benda á það, að nú i suttiar,
eftir að þessi stækkun hefur
verið framkvæmd, geta síldar-
verksmiðj urnar í heild fram-
leitt 40—50 miljón króna
meira verðmæti en 1944.
Þetta er aðeins litið dæmi
þess, hver áhrif nýsköpunar-
stefnan í atvinnumálunum hef-
ur fyrir þjóðina.
Sjómenn og allir þeir, sem
hagnað hafa af þessum
framkvæmdum, ættu að
hafa hugfast, að það var
fyrir atbeina atvinnumála-
ráðherra og þingmanna
Sósíalistaflokksins, að af-
köst síldarverksmiðjanna
eru aukin á þessu sumri og
þar með hagnýtt verðmæti
fyrir tugi miljóna króna.