Baldur - 28.09.1946, Blaðsíða 6
6
B A L D U R
dagskrártillögu, sem fram væri
komin í þessu máli. Eftir
henni átti að vísa tillögu Hall-
dórs frá, þar sem útvarpsum-
ræður væru væntanlegar um
þetta mál og.myndu menn þá
betur geta myndað sér skoðun
um það eftir að liafa hlýtt á
þær umræður. Var till. svo til
umræðu. Halldór Ölafsson tal-
aði jjá örfá orð og bauðst til
að sundurgreina sína tillögu
þannig að til atkv. komi aðeins
sá hluti, sem um þjóðarat-
kvæðagreiðslu fjallaði.
En Halldór var ekki seztur,
þegar fundarstjóri var kominn
með dagskrártill. í hendur og
ætlaði að fara að bera hana
undir atkv. Þá bað ég um orð-
ið. Mér fannst ég verða að
segja þarna örfá orð, þótt þau
yrðu kanske með vanefnum
gerð, þar sem ég er óvanur
ræðumaður.
Eftir a,ð hafa sannað rétt
minn til að taka til máls, hóf
ég mál mitt. En ég hafði ekki
sagt nema örfá orð, þegar
frammítökur byrjuðu. Strax og
það heyrðist, að ég var sam-
mála tillögu Halldórs, var mér
gert ókleyft að taja.
Meðan ég reyndi að skýra
fundarmönnum skoðun mina,
töluðu þrír og fjórir á móti
mér, kölluðu og æptu. Þegar
einn fundarmanna spurði
hvort ég hefði orðið éða ekki
var lionum svarað frá stjórn-
arborðinu og sagt að „haida
kj afti“.
Ég gat því ekki sagt nema
brot af þvx -sem ég ætlaði að
segja, mér var vax-nað að tala
af hinni kratísku kurteisi og
vestrænu lýðræðisást, sem virt-
ist ríkja þarna í ríkum mæli og
lýsti sér ágætlega í þessai'i
framkomu gagnvart mér.
En það var ekki mín lítil-
fjörlega persóna, sem þeir
voru að æpa að þarna á fund-
inum. Ég vildi tala þai’na máli
sjálfstæðis þjóðai’innar, benda
á, að það gæti orðið of seint
fyx’ir Baldur að láta sitt álit í
ljós eftir að hinar væntanlegu
útvai'psumi’æður hefðu farið
fram. Og mér fannst það ski’ít-
ið að nokkur skyldi þurfa að
hlusta á útvarpsumræður til að
mynda sér skoðun um jafn ein-
falt mál og það, hvort hann
væri með eða móti afsali ís-
lenzkx-a landsréttinda. Ég varð
hissa á að heyra þetta í hæ
Skúla Thoroddsen. Varla hefði
hann þurft að lilusta mikið til
að vita hvar hann ætti að
standa. Þeir töluðu því á móti
hans helgasta máli, á móti
helgasta máli íslenzku þjóðar-
innar.
En mér var ekki nokkur leið
að tala, þegar márgir töluðu
samtímis. Ég skoraði á þessi
stéttarsystkini mín, sem þarna
voru samankomin, að fella
dagskrártillöguna og sam-
þykkja tillögu Halldórs.
Dagskrórtillagan var sam-
þykkt. Það þýddi, að Verka-
lýðsfélagið Baldur léti sig engu
skipta um það, hvernig hinn
dulhúni herstöðvasamningur
yrði afgreiddur á Alþingi Is-
lendinga.
Mér mun lengi verða þessi
fundur minnisstæður, sérstak-
lega fyrir það hvað ég fékk
þarna góðar!! móttökur hjá
vinum lýðræðisins og sjálf-
stæðisins.
'Ég vil svo að endingu segja
það hinum Siglfirzku krötum
til hróss, að þeir virðast kunna
betur en þeir ísfirzku að hlýða
á mál manns, sem er á annari
skoðun en þeir sjálfir. A. m. k.
hef ég ekki verið vitni að slíkri
framkomu hjá þeim gagnvart
andstæðingum sínum, og
þeirri, sem mér var sýnd hérna
á Baldursfundi í gærkvöldi.
En ég þakka nú fyrir móttök-
urnar, þær sýndu mér betur en
annað hverskonar menn það
eru, sem vilja gapa við tál-
beitu Bandaríkjanna; — og
sundra hinni stéttarlegu ein-
ingu, sem ríkt hefur innan Al-
þýðusambands Islands nú um
fjögurra ára skeið.
Staddur á Isafirði,
25. sept. 1946.
Einar M. Albertsson,
fél. í vmf. Þrótti, Siglufirði.
-O-
AFMÆLISDAGAR.
Guðmundur Jónsson frá
Mosdal varð sextugur 24. þ. m.
Bárður Guðmundsson, bók-
bindari átti 75 ára afmæli þann
27. þ. m.
Baldur árnar báðum þessum
heiðursmönnum allra heilla á
þessum merku tímamótum á
æfi þeirra.
Framlag til verkamannabú-
staða.
Bæjarstjórn hefur samþykkt
að framlag bæjarins til bygg-
ingarsjóðs verkamanna verði í
hámarki, eða kr. 6,00 á íbúa
hvern.
LEIÐRÉTTING.
I greininni „Sjálfstæði Is-
lands er í hættu“ hefur orðið
prentvilla i 4. málsgr. a. n. á
2. d. 3. s. — Málsgreinin á að
vera svona:
„Islenzka ríkið skortir sam-
kvæmt þjóðarétti vald yfir
sumum mönnum, sem í land-
inu dvelja, t. d. þjóðhöfðingj-
um annara ríkja, ef þeir
dvelja hér á landi“, o. s. frv.
MUNIÐ
Björgunarskútusjóð Vest-
fjarða. öllum fjárstuðningi
veitt móttaka hjá
Kristjáni Kristjánssyni,
Sólgötu 2. Isafirði.
Miðstöðvarketill
1V2 ni2 til sölu.
Sigurður Hannesson, bílstjóri,
Fjarðarstræti 17 — Sími 217.
Samningstilboð Bandaríkjastjórnar.
Hér birtast samningstilboð-
það frá Bandaríkjastjórn, sem
lagt hefur verið fyrir Alþingi.
1. Ríkisstjórn Bandaníkjanna og
ríkisstjórn Islands fallast á að her-
verndarsamningurinn, sem gerður
var 1. júlí 1941, skuli niður falla, og
falli hann úr gildi með gildistöku
samnings þessa.
2. Flugvallarhverfið við Keflavík
og flugvellirnir, sem hér eftir nefn-
ast flugvöllurinn, ósamt öllum ó-
hrejdanlegum mannvirkjuin, er
Bandaríkin hafa reist þar og talin
verða upp í sameiginlegri skrá, er
bandarísk og íslenzk yfirvöld skulu
gera samtímis afhendingu flugvall-
arins, skulu afhent íslenzku stjórn-
inni. Skal flugvöilurinn þá verða
skýlaus eign íslenzka ríkisins, sam-
kvæmt þeim skuldbindingum, er
Bandaríkin hafa áður tekizt á hend-
ur þar að lútandi. .
3. Umferðaréttindi og réttindi til
lendingar og nauðsynlegrar við-
dvalar skal veita flugförum, öðrum
en liervélum, all.ra þjóða er fá slík
réttindi hjá ríkisstjórn Islands.
4. Stjórn Bandaríkjanna mun svo
fljótt sem auðið er flytja á brott
það herlið og sjólið Bandaríkjanna,
sem nú er í Reykjavík, og innan
180 daga frú gildistöku samnings
þessa mun hún smátt og smátt
flytja á brott allt annað herlið og
sjólið Bandaríkjanna, sem nú er á
Islandi.
5. Flugförum þeim, sem rekin
eru af Bandaríkjastjórn eða á henn-
ar vegum í sambandi við fram-
kvæmd þeirrar skyldu, er Banda-
ríkin hafa tekizt á hendur, að hafa
á hendi herstjórn og eftirlit í
Þýzkalandi, skulu áfram heimil af-
not af Keflavíkurflugvellinum. I
þessu skyni skal stjórn Bandaríkj-
anna heimilt að halda uppi á eigin
kostnað, beinlínis eða á sína á-
byrgð, þeim tækjum og því starfs-
liði, sem nauðsynlegt kann að vera
til slíkra afnota. Taka skal sérstakt
tillit til sérstöðu siíkra flugfara og
áhafna þeirra, hvað snertir tolla,
landvistarleyfi og önnur formsat-
riði. Enginn lendingargjöld skal
greiða af slíkum flugförum.
6. 1 samhaudi við rekstur flug-
vallarins munu Bandaríkin, að svo
miklu leýti sem kringumstæður
leyfa, þjálfa íslenzka starfsmenn i
tækni flugvallarrekstrar, svo að
Island geti í vaxandi mæli tekið að
sér rekstur flugvallarins að svo
miklu leyti sem frekast er unnt.
7. Stjórnir Bandaríkjanna, og ís-
lands skulu í samráði setja reglu-
gerð um rekstur, öryggi og önnur
mál, er varða afnot allra flugfara af
flugvellinum. Slík ákvæði raska þó
ekki úrslitayfirráðum ríkisstjórnar
Islands, hvað umráð og rekstur
flugvallarins snertir.
8. Stjórnir Bandaríkjanna og Is-
lands koma sér saman um grund-
völl, er báðar geti við unað, að
sanngjarnri skiptingu sin á milli á
kostnaði þeim, er af viðhaldi og
rekstri flugvallarins stafar, þó
þannig að hvorugri ríkisstjórninni
skuli skylt að leggja í nokkurn þann
kostnað af viðhaldi eða rekstri
flugvallarins, sem hún telur sér
ekki nauðsynlegan vegna eigin
þarfa.
9. Eigi skal leggja neina tolla eða
önnur gjöld á efni það, útbúnað
nauðsynjar eða vörur, sem inn er
flutt t'il afnota fyrir stjórn Banda-
ríkjanna eða umboðsmenn hennar
samkvæmt þessum samningi eða til
afnota fyrir starfslið það, sem dvel-
ur á Islandi vegna starfa, er leiðir
af framkvæmd samnings þessa. Ut-
flutningsgjalda skal heldur eigi
krefjast af útflutningi téðra vara.
10. Eigi skal leggja tekjuskatt á
þær tekjur þess starfsliðs Banda-
ríkjanna, sem á Islandi dvelur við
störf er leiðir af framkvæmd samn-
ings þessa, er koma frá aðiljum ut-
an Islands.
11. Þegar samningi þessuin.lýk-
ur skal stjórn Bandaríkjanna heim-
ilt að flytja af flugvellinum öll
lireyfanleg mannvirki og útbúnað,
sem þau eða umboðsmenn þeirra
hafa látið gera eða lagt til eftir
gildistöku samnings þessa, nema
svo semjist að ríkisstjórn Islands
kaupi mannvirki þessi eða úthún-
að.
12. Samningur þessi skal gilda á
meðan á stjórn Bandaríkjanna hvíl-
ir sú skuldbinding að halda uppi
lierstjórn og eftirliti í Þýzkalandi;
þó má hvor stjórnin um sig livenær
sem er, eftir að fimm ár eru liðin
frá gildistöku samnings þessa, fara
fram.á endurskoðun hans. Skulu þá
stjórnirnar liefja viðræður svo
fljótt sem auðið er. Leiði slíkar
viðræður eigi til samkomulags inn-
an sex mánaða frá því að fyrst kom
fram beiðni um endurskoðun, er
hvorri stjórninni um sig heimilt,
hvenær sem er að þeim tíma liðn-
um, að tilkynna skriflega þá fyrir-
ætlun sína að segja upp samningn-
um. Skal samningurinn þá falla úr
gildi tólf mánuðum eftir dagsetn-
ingu slíkrar uppsagnar.
Þannig hljóðar samningstil-
boðið, sem Bandaríkj astj órn
hefur sent ríkisstjórn Islands
og forsætisráðherra lagt fyrir
Alþingi til samþykktar.
Bíó Alþýðuhússins
sýnir:
Laugardag og
sunnudag kl. 9:
I heimi tóna og
tryllings.
Amerísk stórrggnd frá
Fox Film.
Aðalhlutverk:
LAIRD CREGAR
LINDA DARNELL
GEORG SANDERS
Mánudag kl. 9:
Bör Börson, jr.
Engin sýning á sunnu-
dag kl. 5.
♦!~t**t*4t~$Mw**i*4t**!~t*4?**t*4Í*>t*4t**t~t*4?4***4t~t~t**J*4t*4t*4t*4****~Cv*t*4t**i*4?*4i***~J**!~t**t*4!**!**t«
Ý Y
1 t # ^ # Ý
3 tonna vörubíll með drifi á öllum hjólum er til sölu. 1*1
% Upplýsingar gefur Öskar Jensen prentari.
v *:*
♦!♦♦!♦ **m!m***!***m** *♦*•***♦* *♦* *♦**•* *t* *!**♦* *t* *♦**♦* *♦* *t* *t* *t* *♦**•* *t* *C* *t* *t**tMt* *t* *♦* *t********** *t* *t* ************* *t*
Okkur vantar ungling 14 —17 ára nú þegar, til
innheimtu- og verzlunarstarfa.
Verzlun J. S. Edwald.